Skinfaxi - 01.02.1998, Side 37
þessar breytingar leiða til þess að hlúa verður að rekstrinum eins og
hverjum öörum „business
■ Nú eru margar deildir starfræktar hjá félaginu en
hvernig gengur rekstur þeirra?
„Það er hægt að segja að allar deildir séu vel reknar nema knatt-
spyrnudeildin en hún er að glíma við gamlar skuldir en samt geng-
ur ágætlega að grynnka á. Ég get sagt hér og nú að allar deildir
eru reknar í plús nema knattspyrnudeildin.11
- Ég veit aö það er nóg að gera hjá þér við rekstur
hinna ýmsu deilda en aöalmálið þessa dagana hlýtur aö
vera Unglingalandsmótið sem halda á hér í Grafarvogi
í sumar. Enginn framkvæmdastjóri hefur verið ráðinn
fyrir félagiö svo undirbúningurinn hlýtur að lenda tölu-
vert á þér?
„Það hefur verið nánast fullt starf fyrir mig að standa í undirbún-
ingnum fyrir Unglingalandsmótið en ætlunin er að ráða sérstakan
framkvæmdastjóra fyrir mótið vonandi núna ívikunni. Það hafa þrír
mjög hæfir menn sótt um starfið og ég vonast til að frá þessu verði
gengið fljótlega."
- Hvað búist þið Fjölnismenn við miklum fjölda þátt-
takenda á Unglingalandsmótiö?
„Við eigum von á því að um 2000 þátttakendur komi hér og keppi
við sjálfa sig og aðra á Unglingalandsmótinu."
- Hvernig hefur gengið aö fá styrktaraöila fyrir mót-
ið?
„Fyrirtæki hér á Reykjavíkursvæðinu hafa verið mjög jákvæö og
ég er fullur bjartsýni um að endar nái saman fjárhagslega. Við erum
komnir með nokkra mjög sterka aðila og svo eru nokkrir í deiglunni."
- Það er semsagt allt á fullu hjá Fjölnismönnum og við hjá Skin-
faxa munum ab sjálfsögðu fylgjast með hverju skrefi sem þeir taka
og að auðvitað Unglingalandsmótinu sjálfu í júlí.
Næsta Unglingalandsmót Ungmenna-
félags íslands verður haldið ■ Grafarvogi
og það er Ungmennafélagið Fjölnir sem
heldur mótið. Á mótið er áætlað að komi
um 2000 unglingar víða að af landinu til
að etja kappi í íþróttum og um leið
þroskast og takast á við lífið sem
framundan er.
Menn keppa við sjálfan sig, setja
persónuleg met, læra að lifa með öðrum
þátttakendum og vera félagi sínu til sóma
sem er aðalsmerki hvers íþróttamanns.
Unglingalandsmót UMFÍ veröur haldið
dagana 3. - 5. júlí 1998 og verður keppt í
eftirtöldum aldurshópum.
1. Yngstir eru þeir sem fæddir eru 1986
og 1987
2. Miðhópur eru þeir sem fæddir eru
1984 og 1985
3. Elstir eru þeir sem fæddir eru 1982 og
1983
Á Unglingalandsmótinu veröur keppt í
fjölmörgum greinum og allir ættu að finna
eitthvað við sitt hæfi hvort sem um
keppanda eða áhorfanda er að ræða:
•Knattspyrna karla
•Knattspyrna kvenna
•Handknattleikur karla
•Handknattleikur kvenna
•Körfuknattleikur karla
•Körfuknattleikur kvenna
•Skák
•Glíma
•Sund
•Golf
•Frjálsar íþróttir, hlaup, hástökk, lang-
stökk, kúluvarp og spjótkast.
Ef ykkur vantar einhverjar upplýsingar
um Unglingalandsmótiö þá er best aö
hafa samband við Aöalstein Örnólfsson,
framkvæmdastjóra Umf. Fjölnis, á
skrifstofu félagsins að Dalhúsum 2 eða í
síma 567-2085. Númer myndsendis er
587-4584.
37