Skinfaxi - 01.06.1999, Síða 4
selma
Selmu Björnsdóttur söngkonu hefur heldur betur skotið upp á
stjörnuhiminínn. Hún hefur sungið í ótal dans- og söngleikjum
á undanförnum árum og má þar m.a. nefna West Síde Story,
Rocky Horror Picture Show, Litlu hryllingsbúðinni og Grease.
Eftir að hún náði síðan 2. sætinu í Eurovision í ár með laginu
All out of Luck gerði Universal-fyrirtækið við hana þriggja plötu
samning og er hún nýbúin að Ijúka við tyrstu plötuna sem
kemur út um jólin.
að
skemmta
vímuefna!
segir Selma Björnsdóttir
Hvenær byrjaðir þú að koma fram í söngleikjum?
,,Þegar ég var 21 árs sótti ég um sem dansari í West
Side Stoiy og fékk þá lítið hlutverk í söngleiknum,''
Tókst þú aldrei þátt í skólaleikritum á þínumyngri
árum?
,,|ú, en ekki sem söngvari heldur sem dansari. Ég
byrjaði að dansa þegar ég var ellefu ára og síðan var
ég með í söngleik sem Verslunarskólinn setti upp.
Mitt fyrsta hlutverk í leikhúsi var síðan þegar ég
fékk lítið danshlutverk í West side Stoiy."
Hafði þig dreymt um að verða söngvari og dansari
frá því að þú varst lítil stúlka?
,,Ég hafði margar hugmyndir sem lítil stúlka hvað
ég ætlaði að gera þegar égyrði stór. M.a. ætlaði
texti: valdimar kristófersson
myndir: sigurjón ragnar
ég að verða kántrísöngkona, lögfræðingur, búðar-
kona og læknir, svo fátt eitt sé nefnt. En ég held að
ég hafi aldrei stefnt að þessu því þegar ég fékk
hlutverkið í West Side Story var ég á leiðinni í
Háskólann."
Söngleikir eru oftast sýndir á kvöldin og um helgar;
er vinnutíminn ekki svolítið óreglulegur?
„|ú, það má segja það. Þegar ég er að æfa fyrir
söngleikina er vinnutíminn reyndar jdirleitt á
daginn frá tíu til fjögur. Þegar fer síðan að líða að
frumsýningu byrja kvöldæfingar og þegar
sýningarnar byrja er mest unnið á kvöldin og um
helgar. Síðan kemur stundum fyrir að það eru
sýningar í gangi og æfingar hafnar fyrir annað
hlutverk. Þá er vinnutíminn alla daga, kvöld og
helgar þannig að vinnan er mikil í kringum
söngleikina. En svo geta komið rólegir tímar á milli
söngleikjanna því þetta er verkefnavinna."
Er erfitt að komast að í söngleikjum hérna heima?
„|á, það eru margir um hituna, enda er mikið af
hæfileikaríkum einstaklingum hérna heima. Seni
dæmi um þetta komu 400 manns í prufu fybr
söngleikinn Grease. Þannig að það eru margT
tilkallaðir en fáir útvaldir.”
Söngleikir hafa notið mikilla vinsælda hérna heima
á síðustu misserum:
„|ú, það hefur sýnt sig að söngleikirnir draga að ser
flesta áhorfendurna. Þeir höfða líka til stórs
aldurshóps eða allt frá litlum börnum til afa og
ömmu þannig að þetta eru sýningarnar sem ganga
lengst."
Hvert er skemmtilegasta hlutverkið sem þú hefur
leikið hingað til?
„Það er góð spurning. Þessi hlutverk sem ég hef
sungið eru ólík en ég á þó erfitt með að gera upp 3
milli þeirra. Ætli mér finnist ekki skemmtilegasta
hlutverkið það hlutverk sem ég er að leika hverju
sinni."