Skinfaxi - 01.06.1999, Qupperneq 6
selma
Nú náðir þú glæsilegum árangri í Eurovisoin með
því að enda í öðru sæti. Hefur þessi árangur opnað
dyrnar fyrir þig erlendis?
,,|á, ég fékk samning við Universal vegna góðs
árangurs í Eurovision. Þannig að Eurovision-
keppnin var ákveðinn stökkpallur fyrir mig."
Hvernig hljóðar samningurinn?
,,Ég gerði samning við Universal upp á þrjár plötur
og ég var að klára að syngja inn á fyrstu plötuna.
Unglingar verða
alltaf unglingar og
finnst spenn-
andi að gera það
sem má ekki
þeim
Nú á eftir að hljóðblanda hana aðeins og síðan er
stefnt að því að hún komi út fyrir jól.”
Hvernig plata er þetta og hverjir vinni hana með
þér?
..Platan er byggð upp sem poppplata en það eru
nokkur rokklög og ballöður á henni líka. Ég mundi
segja að lögin á plötunni séu þyngri en All out of
Luck. Þorvaldur Bjarni, sem fékk einnig samning
við Universal, semur öll lögin á plötunni en ég sem
alla textana ásamt Sveinbirni Baldurssjmi. Þá hefur
Máni Svavars útsett nokkur lög á henni ásamt
Bjarka og svo komaj/msir fleiri að plötunni.”
Hvernig hefur til tekist?
,,Ég er mjög sátt við útkomuna.”
Hvar fer platan sfðan á markað?
,,Hún fer náttúrlega á markað hérna heima en
einnig erlendis. Hún fer á markað um alla Evrópu
og ef vel gengur er plötufyrirtækið skuldbundið að
gefa plötuna út um allan heim.”
Hvort leggur þú meiri áherslu á að s_yngja inn á
plötur eða vera með í söngleikjum?
,,Mér finnst hvort tveggja rosalega gaman. En ég
er ekki lærð leikkona og ef ég ætlaði að leggja
leiklistina fyrir mig þá þyrfti ég að fara í skóla og
kannski geri ég það. En eins og stendur þá er ég
mest í söngnum því ég er að vinna í þessari plötu
og að því ætla ég að einbeita mér á næstunni.”
Hvernig fer það saman að syngja in á plötu og taka
þátt í söngleikjum?
,,Bara mjög vel. Ég hef gaman af að breyta til og
vera ekki alltaf föst í því sama. Þannig að mér
finnst allt jafngaman að fara upp í leikhús og leika
í einni sýningu."
Ef við skiptum aðeins um umræðuefni þá fylgir oft
mikil óregla söng- og
leikarastéttinni. Hvernig
stendur á því?
,,Það er rétt, þetta hefur
fylgt þessum stéttum
nokkuð mikið. Ég hef svo
sem engar sérstakar
skýringar á því nema þá að
það er mikil streita og álag
sem fylgir þessu. Fólkið
hefur mikið að gera og
þarf alltaf að vera tilbúið
að koma vel fyrir og svo
þarf það alltaf að halda
góða skapinu er það
kemur fram fyrir framan
þúsundir áhorfenda. Ég
held að sumir kikni undan
álaginu, missi sjálfstraustið og hætti að þora að
gera þetta nema á einhverjum vímuefnum. Ég veit
það ekki en það er gefið mál að það er líka sukk í
öðrum stéttum en þetta virðist helst loða við leikara
og söngvara og kannski fyrst og fremst vegna þess
að leikarar t.d. sýna um helgar og geta því ekki
drukkið þá. En þeir eru síðan kannski að drekka á
sínum frídögum sem eru í miðri viku og ef fólk sér
þá fulla á kaffihúsum þá er það fljótt að dæma.”
Þannig að fólk fær oft ranga mynd af þessu?
,,|á, ég mundi segja það. En eins og ég þekki þetta
þá finnst mér ekki vera mikið rugl í söng- og
leikarastéttinni hérna heima, að minnsta kosti ekki
á fólki sem ég umgengst í þessu."
En hvað finnst þér um áfengisneyslu unglinga?
,,)aa, ég verð ekkert ofboðslega mikið vör við hana.
En mér finnst að unglingar eigi ekki að vera flýta sér
að þessu. Tíminn er nægur og þeir eiga að reyna
draga þetta eins lengi og þeir geta vegna þess að
það er skemmtilegra að skemmta sér án áfengis.
Unglingum liggur dálítið mikið á að verða
fullorðnir og prófa allt strax sem þeim þykir
spennandi en þeir hafa nægan tíma.”
Hver heldur þú að ástæðan sé fyrir því að unglingar
byrja að drekka svona snemma?
Ég get til dæmis ekki vitað
hvort fólk er að nota fíkniefni
,,Eins og ég sagði held ég að unglingar séu að flýta
sér svolítið mikið í því að verða fullorðnir. Kannski
stafar þetta líka af þörfinni fyrir að vera með, vera
„in", falla inn í hópinn og þora. En ég veit það sjálf
að krakkar sem byrjuðu að drekka snemma þegar ég
var unglingur voru að gera hluti sem þeir sáu eftir
og eru enn stimplaðir fyrir það. Því er betra að
byrja að drekka seinna og vera með ráð og rænu og (
halda mannorðinu sínu. Þegar ég lít til baka eru
sumir af jafnöldrum mínum enn með nöfn föst við
sig því þeir voru ungir og óreyndir og voru að gera
vitlausa hluti því þeir voru undir áhrifum áfengis-
Þannig að unglingar eiga að gefa sér tíma til að
þroskast og vitkast áður en þeir byrja að bragða
áfengi. Því þá hafa þeir kannski skynsemi til að
drekka í hófi í staðinn fyrir að drekka sig út úr og
drepast einhvers staðar eða gera hluti sem þeir
munu alltaf sjá eftir."
Unglingar byrja oft að drekka í laumi. Finnst þér
að foreldrarnir eigi að vera opnari fyrir þessu og
taka þátt í þessu með börnunum sínum?
,,Mér finnst sjálfsagt að foreldrar eigi að ræða
þessi mál opinskátt við börnin sín áður en þau byrja
að drekka. Þau eiga að skýra út fyrir þeim hvernig
þetta er og þegar börnin ákveða að byrja að drekka
er betra að foreldrarnir viti af því svo þeir geti fylgst
með þeim, t.d. hvað þau eru að drekka og hve
mikið. Því það eru ýmsir vökvar sem geta verið
hættulegir, eins og t.d. spíri og landi.”
Unglingar á aldrinum 16-18 ára hanga oft í
miðbænum um helgar. Finnst þér vanta einhvern
samastað fyrir þá?
,,Það er ekki spurning. Maður tekur alltaf eftir
þessum aldurshóp veltandi niður í miðbæ þegar
maður fer þangað. Ég man eftir sjálfri mér á
þessum aldri. Þá vantaði samastað og ef það var
ákveðið að fara eitthvað kom lítið annað til greina
en miðbærinn. Það er alltof lítið í gangi fyrir
þennan aldur og ég er á því að það þurfi að gera
meira fyrir unglingana.”
Hvers vegna byrja unglingar svona snemma að
drekka? Stafar það af uppeldinu hjá foreldrunum
eða býður þjóðfélagið upp þetta?
..Unglingar verða alltaf unglinga og það er alltaf
spennandi að gera það sem má ekki. Ég held að
það sé ekki hægt að kenna neinum um þetta. Það
þarf einfaldlega að vinna í þessu þannig að þeir viti
hvað þeir eru að fara í áður en þeir leggja af stað.'
Fíkiniefnanotkun virðist stundum jylgja í kjölfarið.
Verður þú mikið vör við fíkniefnaneyslu hja
unglingum?
,,Ég er alveg græn á þetta því ég þekki þetta ekki
og get t.d. ekki séð hvort fólk er að nota
fíkniefni eða ekki. Ég veit þó um fólk sem
hefur farið illa út úr þessu og ég veit það
að fíkniefni hafa aldrei leitt neitt gott af
sér. Mér finnst asnalegt að fólk noti
fíkniefni, það sekkur alltaf dýpra og dýpra
og endar alltaf að lokum í eymd og
eða ekki
volæði."