Skinfaxi - 01.06.1999, Qupperneq 21
Það er sama staða hjá Ragnhildi og hjá Biyndísi.
Hún á eitt ár eftir að skólanum þannig að Haukur
býr enn þangað til Ragnhildur flytur til hans á næsta
ári. Ragnhildur reynir þó að koma eins oft og hún
getur út til Hauksyfir vetrartfmann.
Þegar knattspyrnumenn fara út ungir að árum fórna
þeir oft skólanum í staðin. Þú varst aðeins 19 ára
þegar þú forst til Liverpool - hættir þú í skólanum?
..Nei, ég útskrifaðist frá Fjölbrautarskóla
Suðurnesja áður en ég fór út sem var mikill léttir.
Ég var reyndar skráður á íþróttabraut og
náttúrufræðibraut en náði bara að útskrifast á
íþróttabrautinni. Ég á átta einingar eftir til að
útskrifast af náttúrufræðibraut.”
Stefnir þú á að læra meira?
.,|á, ég er alltaf að hugsa um að taka nokkur
námskeið hérna í háskólanum í Liverpool. En ég
veit ekki alveg hvaða greinar ég á að velja. Ég get
náttúrlega ekki hellt mér út í fullt nám því
atvinnumennskan er full vinna þannig að ég get
bara tekið fá námskeið í einu.”
Hefur þú _yfir höfuð einhvern tíma til að stunda
skóla á meðan þú ert leikmaður hjá Liverpool?
..|á, ég hef ágætan tíma. Það erj'firleitt bara ein
æfing á dag því leikjaprógrammið er það stíft. Ég
er því kominn heim um tvöleytið og hef því
þokkalegan tíma til að læra. Einnig væri ágætt að
taka eitt til tvö námskeið til að dreifa huganum
aðeins frá knattspyrnunni og kynnast nýju fólki sem
stendur fyrir utan boltann."
Stefnir þú á að klára eitthvert nám úti?
..Ég vona að ég geti klárað eitthvert nám hérna úti
og haft að einhverju að hverfa þegar knattspyrnu-
ferlinum lýkur. Knattspyrnuferillinn er stuttur og
maður endist kannski til 35 ára aldurs í mesta lagi
og þá er lífið rétt að byrja. Þannig að það er mikið
öiyggi að hafa eitthvað tiyggt á bak við sig þegar
maður hættir í boltanum."
Hvort mælir þú með að ungir strákar klári skólann
áður en þeir fari út í atvinnumennskuna eða skelli
sér út án þess að vera búnir með t.d.
framhaldsnám?
,,Það er mjög erfitt að segja. Það er náttúrlega
mjög gott að vera búinn með framhaldsnám því oft
gerist það að þegar fólk tekur sér frí frá framhalds-
námi nennir það ekki að byrja aftur. En aftur á móti
er það freistandi að fara út ef maður fær tilboð þótt
maður sé ekki búinn með skólann því maður veit
ekki hvort og maður fær sama tækifærið aftur.
Þannig að hver og einn verður að gera þetta upp við
sig sjálfur."
Ef við snúum okkur aðeins að ensku deildinni þá
hafa nokkrir breskir frjálsíþróttamenn verið teknir
vegna lyfjanotkunar. Er mikið um lyfjanotkun hjá
knattspyrnumönnum í Englandi?
,,Ég veit ekki hversu mikið það er en ég veit að það
hafa fundist kannabisefni í blóðinu hjá nokkrum
knattspyrnumönnum hérna á Englandi. Sérstaklega
hafa leikmenn Charlton verið drjúgir við þetta. Ég
held að þrír hafi fallið hjá þeim í fýrra. En ég þekki
þetta ekki og er því blindur á þetta þannig að ég
veit ekkert hvað er að gerast í kringum mig. Hjá
Liverpool er mjög strangt tekið á þessu og læknir
félagsins fylgist grannt með leikmönnum með því
að taka þá í lyfjapróf reglulega og gá hvort það séu
einhver ólögleg efni í líkamanum.”
haukur
Er enska knattspyrnusambandið með eitthvert
reglubundið eftirlit vegna lyfjanotkunar?
,,)á, þeir eru með það og mér skilst að þeir ætli að
taka sig veruiega á í þeim efnum í ár. Áður fýrr
komu þeir eingöngu í leiki og tóku menn í lyfjapróf
en nú geta þeir mætt á æfingar hjá liðunum þegar
þeim hentar og tekið leikmenn í lyfjapróf. Þannig
að menn vita aldrei með vissu hvenær þeir birtast.
Þeir geta meira að segja mætt á undirbúnings-
tímabilinu þegar liðin eru í æfingabúðum í allt öðru
landi. Þá eru þeir líka búnir að fá leyfi til að fylgjast
með unglingaliðum liðanna og taka leikmenn þeirra
í lyfjapróf."
En hvað með leikmenn eins og Paul Merson, Paul
Casgoigne og Tony Adams?
,,Mér skilst að fíkniefni séu ótrúleg aðgengileg í
Englandi og lífsstílinn er þannig að mönnum þykir
eðlilegt að menn prófi þetta. Ég held reyndar að
Merson sé sá eini sem var tekinn vegna fíkniefna-
misnotkunar en hinir voru mikið í áfenginu."
En hvernig stendur á þessu. Heldur þú að þetta sé
vegna álags sem menn leita á náðir fíkniefna eða
áfengis?
,,Ég veit það ekki. Þetta virðist bara vera í enska
þjóðfélaginu en knattspyrnumenn ættu að vita
betur.”
Eru einhverjar agareglur hjá Liverpool?
,,)á, það var bannað að drekka á undirbúnings-
tímabilinu og menn eiga ekki að drekka þremur,
fjórum dögum fyrir leiki. Gerard Houllier á það
meira að segja til að labba á milli helstu skemmti-
staða borgarinnar kvöldin fyrir leiki til að athuga
hvort leikmenn liðsins séu þar. Þannig að reglurnar
eru orðnar mun strangari eftir að Houllier tók við.
En leikmenn liðsins mega þó fá sér í glas einstaka
sinnum eftir sigurleiki. Og leikmenn létu ekki segja
sér það tvisvar eftir sigurleikinn á móti Arsenal um
daginn."
Svona að lokum, ertu á móti lyfjanotkun?
,,)á, að sjálfsögðu. íþróttamenn eru bara að svindla
á sjálfum sér með því að nota lyf.”
Houllier á það til að labba á milli
helstu skemmtistaða borgarinnar
kvöldin fyrir leiki til að athuga
hvort leikmenn séu þar