Skinfaxi - 01.06.1999, Qupperneq 35
Var tímabilið 1997/98 þitt besta tímabil á ferlinum?
,,Nei, ég held að sfðasta ár hafi verið mitt besta ár
þrátt fyrir að ég hafi verið valinn bestur 1997/98.
Við urðum Belgíumeistarar í fyrra og ég tel mig
hafa verið að spila betur á köflum í fyrra heldur en
tímabilið á undan. Að vísu var ég dálítið meiddur
í fyrra en þegar ég var kominn á ról gekk mér mjög
vel."
Þú lékst með Bochum í fjögur ár áður en þú fórst
til Genk. Var þetta ekki skref afturábak fyrir þig?
,,Ef ég ber saman deildirnar þá er belgíska deildin
mun slakari en sú þýska og að því leytinu til var
þetta skref afturábak. En fyrir mig sem leikmann
þurfti ég að komast á stað þar sem ég fengi
tækifæri til að spila og vaxa sem knattspyrnumaður.
Ég sé því alls ekki eftir því að hafa skipt yfir í
Genk."
Voru þetta búin að vera erfið ár í Þýskalandi?
,,Þau voru búin að vera upp og ofan. Ég var
töluvert meiddur en fyrstu þrjú árin voru nokkuð
góð og ég spilaði alltaf þegar ég var heill heilsu.
En síðasta árið var erfitt og ég átti í raun mjög litla
möguleika því þjálfarinn vildi ekki nota mig."
Þú varst Belgíumeistari í fyrra með Genk. Hvert er
markmiðiykkar í ár?
,,Við stefnum ótrauðir á að halda titlinum. Það er
okkur efst í huga."
Nú leika bræður þínir, þeir Bjarni og jóhannes,
einnig með Genk. Hvernig stóð á að þeir fóru til
Genk?
..fóhannesi var boðið að konia út til æfinga síðasta
sumar í víkutíma og stóð sig vel og var í kjölfarið
keyptur. Hvað Bjarna varðar þá vissi þjálfarinn að
hann væri að spila með Newcastle. Þegar þjálfar-
inn frétti síðan af að hann væri óánægður hjá
Newcastle bauð hann honum að komayfir og æfa
með Genk. Bjarni var síðan keyptur innan tveggja
daga frá því að hann kom."
Hvernig hafa þeir verið að standa sig í ár?
..Bjarni hefur verið að spila með aðalliðinu og
lóhannes er að æfa á fullu með aðalliðinu en á enn
nokkuð í land nieð að komast í liðið."
Hvernig er að hafa bræðurna með sér í útlandinu?
,,Það er mjög gaman og sérstaklega er gott að hafa
þá fyrir utan fótboltann. Genk er 70.000 manna
bær en við búum nálægt hver öðrum sem er mjög
þægilegt. Á æfingum styðjum við síðan hver annan
og hvetjum til dáða þannig að þetta getur ekki verið
betra."
Þú hefur staðið þig frábærlega með Genk frá því þú
komst þangað. En á hvað stefnir þú í framtíðinni?
,,Ég stefni á að
komast eins langt og
ég get. Ég er að vísu
með samning við
Genk til 2003 en ég
stefni á að fara hærra
og lengra.”
íslenska landsliðið í
knattspyrnu hefur
staðið sig frábærlega
og átti á tímabili
möguleika á að
komast upp úr
riðlinum Voru það
vonbrigði að komast
ekki áfrani?
,,Nei, ég held ekki.
Ég heid að menn geti verið mjög sáttir og stoltir af
árangrinum sem við erum búnir að ná nú þegar.
Við gerðum allt sent við gátum til að ná 2. sætinu
en það gekk ekki eftir í þetta skiptið."
Hvað um framhaldið og næstu ár, geta íslendingar
átt von á því og gert kröfu um að landsliðið komist
í úrslitakeppnina á HM eða EM?
,,Ég held að það þurfi margt að gerast svo að það
geti orðið áframhald á þessu góða gengi, m.a. hjá
foiystu KSÍ. Þar á bæ verða nienn að spyrja sig
hvort þeir vilja áframhaldandi árangur og vera á
topp 50 listanum yfir bestu knattspyrnuþjóðirnar
eða hvort þeir vilja í raun detta niður í
meðalmennsku og verða taldir á meðal lakari
knattspyrnuþjóða í heiminum."
Hvað er að hjá foiystunni?
,,Ég held menn þurfi fyrst og fremst að horfa til
leikmannanna og gera allt til þess að gera þá sem
ánægðasta, t.d. að gera þeim auðvelt að komast í
landsleikina. Svo eru þjálfaramálin mjög mikilvæg
og það verður að finna réttu mennina til að vera í
þessu."
Tekur það oft mikinn kraft frá leikmönnum að
standa í þessum ferðalögum?
,,|á, það gerir það. Þetta eru oft ekkert
skemmtilegar ferðir, eins og ferðin til Armeníu.
Þessar ferðir taka oft mikla orku frá mönnum."
Ef við förum aðeins í aðra sálma þá reykir þú hvorki
né drekkur. Finnst þér þetta hafa gert þig að betri
knattspyrnumanni?
,,Ég held að það sé engin spurning. Ef þú ætlar þér
að verða toppíþróttamaður í dag þá geturðu ekki
leyft þér þessa hluti. Þú getur það kannski í einhver
ár meðan þú ert ungur og heilsan í góðu lagi en
það kemur samt tvímælalaust niður á þér og ég tala
Mér finnst einfald-
lega reykingar og
áfengisdrykkja ekki
fara saman við
íþróttir
nú ekki um þegar farið er að síga a seinni hlutann
á ferlinum.”
Hvernig er tekið á þessum hlutum innan
landsliðsins?
,,Þetta er í ágætu horfi. Það eru vissar agareglur
sem gilda innan hópsins og t.d. erum við reyklaust
landslið. Þá er áfengisbann innan hópsins á rneðan
við erum saman sem er sjálfsagður hlutur því við
erum jyrirniyndir og andlit landsliðsins út á við. Þá
hefur verið mikið rætt um snusið og það er búið að
vera bannað hjá okkur undanfarið."
Geturðu sagt mér hvaða áhrif reykingar og áfengis-
notkun hefur á líkamann?
,.Nikótín dregur úr og hægir á blóðstreymi
líkamans sem verður til þess að það hægist á
súrefnisflutningi um líkamann, sem kemur m.a.
niður á þoli og þreki íþróttamanna. Áfengisdiykkja
hefur svipuð áhrif þar sem það tekur lifrina 2-3
daga að vinna áfengið úr líkamanum. Því hafa
æfingar eftir diykkju mjög lítið að segja.”
Þannig að þú ert alfarið á móti reykingum og
diykkju?
,,|á, ég er aifarið á móti þessu. Mér finnst
einfaldlega reykingar og áfengisdiykkja ekki fara
saman við íþróttir."
1 *