Skinfaxi - 01.06.1999, Side 55
IHNGER EN LEITAR NÚ AÐ NÝJU LIÐI ÚTI í HEIMI!
nokkrum neðri deildar liðum sem mér fannst
ekki spennandi og ég kom því heim.“
Varstu ekki svekktur að þurfa að yfirgefa
liðið?
„Jú, en þrátt fyrir það var ég ánægður að
komast í burtu frá félaginu.”
Voru vandamál hjá félaginu á
þessum tíma?
„Já. Það gekk ekkert hjá liðinu að skora en
þjálfarinn vildi ekki horfast í augu við
vandamálin. Ég fékk að t.d. að spila fimm
fyrstu leikina í deildinni en síðan var ég ekki
inn í myndinni hjá honum næstu tvo
mánuðina.”
Hvaða ástæðu gaf hann fyrir því?
„Hann sagði einfaldlega að ég væri ekki
i nógu góður. Hann prófaði níu aðra framherja
á þessum tíma og enginn þeirra skoraði.
Vandamálið var það að við vorum með ónýta
miðju. Miðjumennirnir unnu ekki einn einasta
leik á miðjunni. Við náðum aldrei að stjórna
gangi leiksins og síðan spiluðum við aðeins
með einn framherja og hann fékk enga
aðstoð.”
Þannig að þú varst í erfiðu hlutverki
þarna?
„Já, svona vægt til orða tekið. Ég mundi
segja í vonlausu hlutverki því áður en ég kom
til Kongsvinger frá Brann var ég búinn að
spila vel fyrir Brann.”
Hvernig stóð á því að þú varst þá
seldur þaðan?
„Jaa, það var eiginlega út af þeningavandræðum
líka. Brann átti í miklum fjárhagserfiðleikum sem
varð til þess að þeir seldu mig, því miður því Brann
er stór og flottur klúbbur. En þeir áttu í erfiðleikum
og settu alla leikmenn sína á sölulista.”
Þú gerðir rúmlega þriggja ára samning
við Kongsvinger og síðan þremur
mánuðum seinna vilja þeir losna við þig?
„Já, ég skildi ekki hvað þeir voru að rembast við að
tá mig þegar staðan var orðin þetta slæm. Enda
kom á daginn að þeir gátu ekki staðið undir því.”
Varstu með góðan samning við
Kongsvinger?
„Já, mjög góðan og ég var mjög sáttur enda átti ég
rúm þrjú ár eftir af samningnum.”
Hvernig var þetta gert upp þegar þeir
vildu rifta samningnum við þig?
’,Ég náði góðu samkomulagi við stjórnarmenn
Kongsvinger sem ég er mjög sáttur við. Ég á mig
sjálfur núna og get þvf samið við hvaða lið sem er
i án þess að þeir geti skipt sér nokkuð af því.”
Fékkstu þá stóran hluta borgaðan af
samningnum þínum?
„Við komumst að góðu samkomulagi og báðir
aðilar eru mjög sáttir. Ég er hálfþartinn feginn að
hafa losnað þaðan fyrst staðan var orðin svona.
Takmarkið hjá mér núna er að leika vel fyrir
Skagann og komast í góða leikæfingu og þá geta
fafnvel einhverjar dyr opnast. Þetta byggist allt á
hianni sjálfum.”
þú komst heim og fórst upp á Skaga. Var
ekkert annað félag sem kom til greina?
„Nei, það kom aldrei neitt annað til greina. Eg fékk
nokkrar hringingar frá öðrum liðum en ég er bara
það mikill Skagamaður að það kom ekkert annað
til greina.”
Gengi Skagamanna hefur ekki verið neitt
sérstakt það sem af er sumri. Segir
staðan í dag til um getu liðsins?
„Árangur er ekki tilviljun þannig að við verðum
taka okkur saman í andlitinu og fara að vinna eins
og menn. Árangur næst ekki með öðru en baráttu.
Við erum með góðan mannskap en menn verða að
leggja sig fram. Við erum þó komnir í úrslit í
bikarnum og vonandi náum við að fylgja þeim
árangri eftir í deildinni.”
Þegar þú komst heim hafði liðinu gengið
illa. Var erfitt að koma inn í hópinn á
þessum tíma?
„Nei, mórallinn hjá liðinu er í góðu lagi þótt gengið
hafi ekki verið neitt sérstakt til að byrja með.
Kröfurnar hér á Skaganum eru miklar og
bæjarbúar hafa ekki verið ánægðir með gengi
liðsins. En það hjálpar ekki ef menn ætla að fara
að tala illa um liðið eða leikmenn þess. Leikmenn
og bæjarbúar verða að snúa bökum saman og
vinna á vandamálinu.”
Hvað heldur þú með framhaldið hjá
ykkur? Þið eruð farnir að skora og virðist
vera á uppleið?
„Við ætlum okkur þriðja sætið og allt fram yfir það
er plús. Það getur allt gerst ennþá en ég tel þó
erfitt að ná ofar en i þriðja sætið. Við erum þó
ákveðnir að koma okkur uþþ úr þessum pakka og
losna frá fallbaráttunni.”
Þið ætlið að koma ykkur frá fallbaráttunni
en getur þú sagt mér hvaða lið séu
líklegust til að falla?
„Nei, ég á erfitt með að segja til um það, enda er
deildin það jöfn ennþá. Reyndar eru Víkingarnir að
skilja sig dálítið frá hinum liðunum enda eru þeir
ekki að spila fótbolta. Mér finnst þeir vera í tómu
rugli. Þeir eru að spila alltof grófan leik og reyna
ekki einu sinni að spila fótbolta. Þeir gætu þó allt
eins hrokkið í gang og unnið sig upp töfluna.”
Nú hafa ÍBV og KR stungið hin liðin af í
deildinni. Viltu spá um hvort liðið mun
hampa íslandsmeistaratitlinum?
„Það er ómögulegt að segja. Bæði lið eru með
hörkuhóp og næstu leikir þessara liða eru sem
úrslitaleikir. Við eigum reyndar ÍBV úti í sfðasta leik
og þar ætlum við okkur að sjálfsögðu sigur. Svo
það er spurning hvort við eyðileggjum fyrir þeim í
lokaumferðinni.”
Þú hefur verið að leika eitthvað með landsliði
íslands að undanförnu. Nú þegar þú ert
kominn heim telurðu þig þá eiga minni
möguleika á að komast í landsliðið?
„Já, það er mjög erfitt að komast í landsliðið sem
leikmaður hérna heima. Sérstaklega í Ijósi þess að
það eru allt önnur gæði á boltanum úti. Úti eru
menn náttúrlega eingöngu í fótbolta og einbeita sér
alfarið að honum. Atvinnumennirnir hafa þvf
töluvert forskot á leikmennina hérna heima.”
Þú hefur verið að spila nokkuð vel eftir að
þú komst heim. Finnst þér ekkert
ósanngjarnt ef þú færð ekki tækifæri með
landsliðinu?
„Nei, alls ekki. Það er þjálfarinn sem velur liðið og
ég treysti honum til að meta þetta rétt. Ég veit að
hann fylgist vel með og síðan er ég ekki að keppa
við neina sleða um framherjastöðuna hjá lands-
liðinu.”
Þú hefur fengið að kynnast landsliðinu og
leggur væntanlega metnað þinn í að
komast í landsliðshópinn aftur?
„Já, það er algjör draumur að fá að leika fyrir
landsliðið. Við erum komnir með hörkulandslið og
það er engin tilviljun hvernig árangurinn hefur verið
undanfarið.”
Þú fórst um daginn út til Oxford til að
reyna fyrir þér en komst heim aftur. Á
hverju strandaði?
„Þetta strandaði í raun ekki á neinu. Þjálfarinn var
nokkuð ánægður með mig og vildi koma hingað til
lands og fylgjast betur með mér. Reyndar er hann
nýbúinn að kaupa leikmann í mína stöðu og ég veit
að hann hefur lítið fjármagn til að kaupa leikmenn
en hann vildi samt ekki loka þessu dæmi.
Framhaldið verður síðan bara að koma í Ijós. Ég
verð bara að halda áfram, tækifærin koma.”
Þú stefnir á það að fara út aftur og getur
í raun farið hvenær sem þú vilt frá
Skaganum?
„Já, já, ég er frjáls leikmaður, á mig sjálfur.
Umboðsmaðurinn minn er að vinna í þessum
málum fyrir mig og síðan sjáum við bara til hvað
gerist.”