Skinfaxi - 01.06.1999, Blaðsíða 63
SKRIFAÐI UNDIR NÝJAN SAMNING
Lífið hjá Jóhanni snýst um fótbolta og aftur fótbolta. Þegar hann er ekki á
æfingu eða að spila með Watford sest hann niður og spilar Championship
Manager í tölvunni eða les nýútgefnu bókina eftir Sir Alex Ferguson.
Jóhann Birnir Guðmundsson var í aðal-
viðtali síðasta tölublaðs Sportlífs og
þar talaði hann um að á næstunni
myndi hann setjast niður með Graham
Taylor, framkvæmdastjóra Watford, og
ræða áframhaldandi veru sína hjá félaginu.
Þau mál eru öll komin á hreint - Jóhann
skrifaði undir nýjan fjögurra ára samning við
Watford og því Ijóst að Graham Taylor,
fyrrum landsliðsþjálfari Englands, vill fyrir
enga muni missa þennan unga íslending frá
félaginu.
Jóhanni líkar því lífið vel þessa dagana og
hefur að undanförnu verið að koma sér fyrir
í íbúðinni sem hann keypti á síðustu leiktíð.
íbúðin er í Watford og það er mjög stutt fyrir
Jóhann að fara á æfingar og í leiki. „Ég er
búinn að vera hérna síðan vorið 1997 og
ekki enn þá haft ástæðu til að kaupa mér
bíl. Það er mjög stutt í allt hérna hjá mér og
ef ég þarf að fara eitthvað lengra nota ég
bara lestirnar."
- Ertu eitthvað mikið að ferðast?
„Nei, ég fer nú aðallega bara hérna um í
Watford en ég fer stundum og heimsæki
vinn minn hann Hauk Inga í Liverpool. Ég
þarf ekkert nauðsynlega á bíl að halda en
ég er nú búinn að ákveða að kaupa mér bíl
núna, enda orðið Ijóst að ég verð hérna að
minnsta kosti næstu fjögur, fimm árin.“
- Þú ert væntanlega mjög sáttur við
nýja samninginn við Watford?
„Eins og ég talaði um í síðasta Sportlífi
hefði ég verið ánægður með svona tvö ár til
viðbótar. Ég skrifaði hins vegar undir til
fjögurra ára og það hlýtur að þýða það að
ég sé inni í framtíðaráætlunum Grahams
Taylors framkvæmdastjóra. Ég er mjög
ánægður með nýja samninginn minn.“
Jóhann Birnir hefur verið viðloðandi lið
Watford í upphafi leiktíðar og nokkrum
sinnum komið inn á sem varamaður. Hver
veit nema hann eigi eftir að tryggja sér fast
sæti í liðinu á þessari leiktíð.
BUD MEÐ NYJfl