Skinfaxi - 01.08.2002, Qupperneq 2
ritstjörinn
FORELDRAR
MEGA EKKI
VÍKJA SÉR
UNDAN ÁBYRGÐ
Stöðugt verðum við vitni að fréttum í fjölmiðlum, af innbrotum,
ofbeldi og jafnvel morðum, sem má rekja beint til notkunar
ávana- og fíkniefna. Innbrotum inn á heimili og fyrirtæki hefur
fjölgað mjög á undanfömum tveimur til þremur árum. Má í
flestum tilvikum rekja brotið til einstaklinga sem eru orðnir blind-
ir í myrkri fíkniefnanna og eru að reyna að bjarga sér vegna
fíkniefnaskulda eða að fjármagna eigin neyslu. Ofbeldið hefur
aukist og morðum fjölgar og eru gerendur undantekningalaust
undir áhrifum vímuefna. Þetta fólk svífst einskis enda oftast í
öðrum og óraunverulegum heimi.
Staðan er ekki góð og nú hafa sölumenn dauðans, eins og þeir
hafa löngum verið nefndir, vakið áhuga unglinga á fíkniefnum,
sem hefur aldrei verið meiri en um þessar mundir og að sama
skapi eru viðhorf þeirra jákvæð gagnvart neyslunni.
í hvað stefnir? Því er erfitt að svara en þrátt fyrir aukna neyslu
og meiri hörku í þessum heimi þá mega menn aldrei gefast upp.
Mikið og gott forvarnastarf er unnið hér á landi, en betur má ef
duga skal. Landsmeim verða að þjappa sér betur saman og legg-
jast á eitt gegn þeim vágesti sem fíkniefnin eru.
Foreldrar mega ekki skella skuldinni á lögreglu, ríkið, skóla eða
önnur samtök sem vinna í þessum málum og víkja sér sjálfir und-
an ábyrgðinni. Þeir verða að líta í eigin barm. Þetta eru jú þeirra
börn og forvarnastarfið fer því að mestu leyti fram á heimilum
landsmanna.
Ungmennafélag Islands hefur undanfarin sjö ár staðið fyrir
útgáfu forvarnablaðs. Þetta rit er ætlað ungu fólki og hefur feng-
ið geysigóðar viðtökur undanfarin ár. Þar tjá þekktir einstaklingar
úr þjóðfélaginu skoðanir sínar á reykingum, vímuefnavandanum
og framtíðarlausnum, auk þess sem við komust að því hvað þau
eru að fást við. Þetta er fjölbreyttur hópur og meðal þeirra sem
Skinfaxi fékk í viðtal þetta árið er Manúela Ósk Harðardóttir,
fegurðardrottning Islands, Lárus Orri Sigurðsson, atvinnumaður
í knattspyrnu, Erp Eyvindarson söngvari og þáttagerðamaður,
Þórey Edda Elísdóttir stangastökkvari, Jón Arnór Stefánsson
atvinnumaður í körfuknattleik, Karl Steinar Valsson yfirmaður
forvarnadeildar lögreglunnar o.fl. Þá er viðtal við Stefán Karl
Stefánsson leikara en hann heldur fyrirlestra og ræðir við
unglinga og foreldra um einelti og afleiðingar þess.
Eg held að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi í blaðinu og
ekki væri óvitlaust fyrir foreldra barna á unglingsaldri að glugga
í greinarnar og skoða hin mismunandi sjónarmið sem viðmæl-
endur okkar hafa á vímuefnavandanum.
Valdimar Tryggvi Kristófersson
Það er Manúela Ósk Harðardóttir,
fegurðardrottning íslands 2002,
sem prýðir forsíðuna að þessu
sinni. Það var Sigurjón Ragnar,
ljósmyndari Skinfaxa, sem tók
myndirnar af Manúelu og öðrum
viðmælendum blaðsins.
Skinfaxi
RITSTJÓRI
Valdimar Tryggvi Kristófersson
LJÓSMyNDIR
Sigurjón Ragnar
UMBROTOG HÖNNUN
Valdimar Tryggvi Kristófersson
FRAMKVÆMDASTJÓRI ÁByRGÐARMAÐUR
Sæmundur Runólfsson Björn B. Jónsson
AUGLýSINGAR Markaðsmenn
PRENTUN Svansprent
PRÓFARKALESTUR Málvísindastofa
PÖKKUN Ás Vinnustofa
RITSTJÓRN
Anna R. Möller
Vilmar Pétursson
Sigurlaug Ragnarsdóttir
Birgir Gunnlaugsson
Ester Jónsdóttir
STJÓRN UMFÍ
Björn B. Jónsson
Helga Guðjónsdóttir
Kristín Gísladóttir
Anna R. Möller
Sigurbjörn Gunnarsson
Ásdís H. Bjarnadóttir
Hildur Aðalsteinsdóttir
Sigurður Viggósson
Kjartan P. Einarsson
Svanur M. Gestsson
Birgir Gunnlaugsson
SKRIFSTOFA SKINFAXA
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ UMFÍ
FELLSMÚLA 26, 108 REyKJAVÍK
SÍMI: 568-2929, FAX: 568-2935
NETFANG: umfi@umfi.is
HEIMASÍÐA: www.umfi.is
Ársáskrift af Skinfaxa kostar 1.796.- krónur
Skinfaxi kemur út 4-5 sinnum á ári.