Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.2002, Blaðsíða 27

Skinfaxi - 01.08.2002, Blaðsíða 27
EorvQmnbtQð-Skwfottft Hvað með gengi ykkar í vetur; verður þetta erfiður vetur? ,,Já, það er engin spurning. Þetta verður langur og erfiður vetur. Hvað hæfileika varðar þá stöndum við höllum fæti gagnvart flestum liðunum í deildinni en við erum þekktir fyrir að leggja okkur alla fram og berjast um hvern bolta. Með baráttuna að vopni komumst við upp í úrvalsdeild og það kemur enginn til með að fá auðveld stig hjá okkur þótt við séum komnir upp í úrvalsdeild og með reynslulítið lið.“ Byggja á sterkum varnarleik Varnarleikurinn var ykkar sterkasti hlekkur í fyrra, með þig sem lykilmann og svo verður sjálfsagt áfram í vetur? ,,Já, við munum byggja upp á sterkum varnarleik í vetur. Við höfum reyndar fengið mörg mörk á okkur í upphafi móts en það tekur smá tíma fyrir okkur að ná áttum, en um síðustu helgi héldum við hreinu og unnum okkar fyrsta sigur í deildinni á móti Fulham. Þannig að ég hef trú á að við séum aðeins að sjóast og ég er sannfærð- ur um að fleiri stig eigi eftir að detta inn á næstunni með sterkum varnarleik. Ég er með tvo mjög góða miðverði með mér í vörninni og svo erum við með mjög vinnu- sama baráttuhunda á miðjunni sem vinna vel fyrir vörnina og við ætlum að reyna að loka fyrir rnarkið." Það er kannski dálítil kaldhæðni í þessu en þú og Hermann Hreiðarsson deilið sama herbergi hjá landsliðinu, en hann neitaði að skrifa undir samning við WBA fyrir tímabilið. Sagðist ekki vilja rífa fjölskylduna upp og að auki vildi hann ekki standa í fallbaráttu enn eitt árið í úrvalsdeild. Verður það hlutverk ykkar í vetur að berjast á botninum? ,,Já, það eru miklar líkur á því að við verðum við fallsætin. En það veit enginn hvað verður og við ætlum að reyná okkar besta og njóta tímabilsins. Það eru aðeins örfáir leikmenn hjá okkur sem hafa leikið í úrvalsdeildinni þannig að við rennum mjög blint í sjóinn og vitum ekki alveg hvað við erum að fara út í. Það verður bara gaman að sjá hvað gerist.“ En það hefði væntanlega styrkt ykkur að fá Hermann til liðs við ykkur? ,,Já, það er engin spurning og það hefði verið skemmti- legt að fá hann til okkar. Ég hringdi í hann á meðan á viðræðunum stóð og sagði hon- um hvernig staðið væri að málum hjá okkur. En hann tók þá ákvörðun að vera áfram í Ipswich sem ég skil að vissu leyti, en það hefði verið gaman að fá hann.“ Hvað með Gary Megson, þjálfara WBA. Nú var hann látinn fara frá Stoke þegar íslensku fjárfestarnir tóku við liðinu. Hann þjálfaði þig einnig hjá Stoke og þú þekkir hann vel, en var rangt hjá íslendingunum hjá Stoke að láta hann fara? ,,Það er erfitt að segja til um það, en Megson er hæfur þjálfari. Hann er mjög harður og það er ekkert gefið eftir. Ég er búinn að vera lengi í boltanum en undirbúningstímabilið í ár er það erfiðasta sem ég hef tekið þátt í. Það byggist á því að hafa liðið í mjög góðu formi svo það geti unnið hart allan leikinn. Þótt að lið eigi eftir að taka stig frá okkur í vetur þá verða það ekki auðunnin stig.“ Enska deildin er mjög erfið, leikirnir eru margir og álagið mikið. Er ekki erfitt að halda út heilt tímabil? ,,Það er geysilega erfitt og tekur mikið á líkamann. Maður þarf

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.