Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.2002, Blaðsíða 30

Skinfaxi - 01.08.2002, Blaðsíða 30
Ölöf Ásta Farestveit Pressan er mikil í vinahópnum Ólöf Ásta Farestveit er afbrotafræðingur, menntuð í Háskólanum í Stokkhólmi. Hún hefur í mörg ár starfað með unglingum, m.a. á Unglingaheimili ríkisins, á Stuðlum, á Fangelsisstofnun ríkisins og víðar. Undanfarið hefur Ásta séð um námskeið á vegum Foreldrahússins og Vímulausrar æsku. Námskeiðin kallast „Börn eru líka fólk“ og er ætlað fyrir börn á aldrinum 6-12 ára og foreldra þeirra. Þetta eru oftast nær börn alkóhólista og þar er þeim kennt að skilja tilfinningar sínar og að þau stjórni ekki á heimilinu. Einnig hefurÁsta verið með námskeið í sjálfstyrkingu fyrir unglinga á aldrinum 12-16 ára. Valdimar Kristófersson hitti Ástu að máli og spjallaði stuttlega við hana um námskeiðin og unglinga í dag. Getur verið erfitt að vera unglingur í dag! Um hvað snýst þetta námskeið? „Námskeiðið „Sjálfsstyrking ung- linga“ snýst um það að fá unglinga til þess að finna stöðu sína í samfélag- inu og efla sjálfsvirðingu sína. Nám- skeiðið er forvarnanámskeið og ætl- unin er að gera unglingana sterka andlega þannig að þeir geti myndað sér sjálfstæðar skoðanir og verði síður áhrifagjarnir. Farið er í gegnum ýmiss konar fíkniefni og hversu skað- leg áhrif þau hafa á líkama og sál en megináherslan er lögð á að skilgreina eigin líðan og tilfinningar. Þegar við vitum hvernig okkur líður og hvers vegna okkur líður á þennan hátt er hægt að reyna að hafa áhrif á líðan okkar. Það getur verið erfitt að vera unglingur í því samfélagi sem við búum við í dag og því þarf að styrkja unglingana til þess að takast á við lífið og þær freistingar sem til eru.“ Hvers vegna fórst þú af stað með þetta verkefni? „Ástæð- an var fyrst og fremst sú að mikið var verið að spyrjast fyrir um námskeið fyrir unglinga sem ekki væru komnir í vanda. Fólk var hrætt við þá hörðu neyslu sem margir unglingar voru komnir í og vildi því leggja sitt af mörkum til að styrkja börnin sín. Vímulaus æska var líka með námskeið þá fyrir börn á aldrinum 6-12 ára og þvi vildi fólk reyna að fá eldri börn inn á námskeiðið svo úr varð að farið var að hanna námskeið sem hentaði þessum markhópi." Þetta er mjög fjölbreytt nám- skeið og unglingarnir fá að spreyta sig á ýmsum sviðum, t.d. í listnámi, í samskiptum og í ræðukeppni. Hver er tilgangurinn? „Tilgangurinn með því að hafa námskeiðið Pressan er mikil í vinahópnum varðandi útlit, klæðnað og framkomu og getur jiað reynst unglingum erfitt að standast þá pressu og vera sjálfstæð. Það þarf sterka einstaklinga til þess að fara sínar eigin leiðir. sem fjölbreyttast er að kynna unglingunum mismunandi tækni og aðferðir til þess að skilja sjálfa sig og fá útrás fyrir hinar ýmsu tilfinningar, eins og reiði, særindi, gleði o.fl. á sem fjölbreyttastan hátt. Sumir eiga til dæmis erfitt með að tjá sig munnlega en geta nýtt sér líkamlega tjáningu eða mynd- ræna. Sumir teikna eitthvað ákveðið og geta síðan útskýrt það sem er á myndinni og á þann hátt fært sig yfir í það að fara að tala um sjálfan sig án þess að nota þess háttar hjálpartæki. Mikilvægt er fyrir alla unglinga að þora að tjá sig fyrir framan hóp því mun meiri áhersla er lögð á það í skólum landsins. Það þarf að reyna að búa börnin sem best undir það að koma fram og hvernig þau eiga að gera það. Að standa uppi í pontu er æfing og þau eru æfð í því hvernig þau geta stjórnað huganum til þess að minnka spennuna við það að standa fyrir framan fullt af fólki. En þetta er bara hluti af því sem gert er. Unglingarnir reyna einnig að setja sig í spor annarra og reyna að hugsa um það hvernig öðrum líður og hvaða líkamstjáningu fólk sýnir.“

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.