Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.2002, Blaðsíða 26

Skinfaxi - 01.08.2002, Blaðsíða 26
Ætlaði aldrei að verða atvinnumaður Lárus Orri Sigurðsson, knattspyrnumaður frá Akureyri, hefur gert það gott sem atvinnumaður á undanförnum árum. Hann hélt í víking árið 1994 er hann gerði samn- ing við íslendingaliðið Stoke, en á þeim tíma komu íslenskir fjárfestar hvergi nálægt liðinu. Árið 1999 færði hann sig um set og gerði samning við WBA sem lák þá í fyrstu deildinni ensku. Þar hefur Lárus leikið við góðan orðstír og verið einn besti leikmaður liðsins, en eins og flestum ætti að vera kunnugt leikur Lárus Orri nú í úrvals- deildinni með liðinu eftir að það tryggði sér sæti á meðal þeirra bestu á síðasta tímabili. Valdimar Kristófersson hitti Lárus Orra á stuttbuxunum einum klæða á Hótel Loftleiðum fyrir skömmu, en þá var hann nýkominn af æfingu með landsliðinu sem átti leik við Ungverja daginn eftir. Ætlaði heim höfum verið að ná áttum að undanförnu enda mikil upplifun fyrir leikmenn WBA og gaman að fá að spila á móti öllum þessum stóru nöfnum og stjörnum fyrir framan tugi þúsunda áhorfenda. Viðbrigðin og breytingarnar eru því miklar frá því í fyrra, en við erum að ná tökum á hlutunum og venjast aðstæðum." Stjörnurnar meðhöndlaðar eins og hver annar andstæðingur En eru þetta nokkuð stærri leikmenn en þið þegar á hólminn er komið? ,,Þetta eru vissulega miklar stjörnur sem við vorum að leika gegn í upphafi, en það er rétt að þegar við erum mættir á völlinn og leikurinn er hafinn þá er Ijóminn farinn af stjörnunum og þeir teknir eins og hver annar andstæðingur." Samningur þinn við WBA rann út í sumar og það var dálítið tvísýnt hvort þú lékir með þeim áfram, enda gekk nokkuð erfiðlega að semja aftur. Hver var ástæðan? ,,Það er rétt að samningurinn minn var runninn út þegar ég samdi loks við þá aftur. Eins og ég sagði þá togaði það mikið í okkur að flytja heim og ég gerði því ákveðnar kröfur sem félagið þurfti að uppfylla til að ég yrði áfram. Það gekk upp á endanum þannig að við ákváðum að vera áfram.“ Varstu orðinn svartsýnn á að þetta mundi ganga? „Já, bæði og, en hefði þetta ekki gengið upp þá hefði ég alveg verið sáttur við að fara heim og ekki séð eftir neinu. En þetta gekk upp og það verður því gaman að takast á við næstu tvö ár.“ Lárus gerði nýjan tveggja ára samning við WBA í ár með möguleika á árs framlengingu? ,,Ég vildi bara tveggja ára samning, en þeir vildu semja til þriggja ára. Ég ætlaði upphaflega að koma heim í sumar og segja skilið við atvinnumennskuna. Ég er búinn að vera úti lengi og mér fannst þetta orðinn góður tími. Ég á einnig tvo stráka og er annar þeirra kominn á skólaaldur og við ætluðum því að koma heim og flytja norður.“ Ertu orðinn leiður á atvinnumennskunni? ,,Nei, alls ekki. Þetta er mjög góð vinna og maður lifir góðu lífi af þessu. En það er meira í lífinu en bara fótbolti og okkur hjónin var farið að hlakka til að flytja aftur heim til íslands. En það togaði dálítið í mann að vera áfram þar sem við komumst upp í úrvalsdeild. Það kitlaði því hégómagirnd- ina eilítið að prufa að spila á meðal þeirra bestu og athuga hvernig manni gengi." Nú átt þú mikið eftir sem knattspyrnumaður, enda ekki nema 29 ára, og gætir sjálfsagt spilað í a.m.k. 6 ár í viðbót. Þú ætlar ekki að nýta þann tíma sem þú hefur og spila meðan þú getur? ,,Nei, ég hugsa ekki. Það skrýtna við mig, í samanburði við aðra knattspyrnumenn, er kannski að það var aldrei draumur minn að verða atvinnumaður í knattspyrnu. Það var hálfgerð tilviljun að ég varð atvinnumaður. Ég fór á sínum tíma út til frænda míns, Þorvalds Örlygssonar, núverandi þjálfara KA, og þá leik- manns Stoke, til að halda mér í formi fyrir leik með 21 árs landsliði íslands. Ég mætti því á nokkrar æfingar með þeim og var boðinn samningur hjá félaginu í framhaldinu. Eftir að ég hafði hugsað mig um í nokkurn tíma ákvað ég að taka tilboðinu og ég sé ekki eftir því. Þetta er búið að vera rosalega gaman og þess virði að leggja þetta allt á sig.“ En hvert er nú uppáhaldsliðið þitt í enska boltanum? ,,Það er Arsenal. Ég hélt með þeim áður en ég fór út og hef enn mikið dálæti á þeim. Það var skemmtilegt að spila á móti þeim á dögunum, en ég hefði viljað ná betri úrslitum þótt Arsenal hafi alltaf verið mitt uppáhaldslið." Hvernig er síðan að vera kominn í úrvalsdeildina? ,,Það er mjög spennandi. Við erum reyndar ekki búnir að spila marga leiki, en leikjadagskráin var erfið hjá okkur í byrjun og við fórum ekki vel af stað í fyrstu leikjunum. Við Þið töpuðuð 5 - 2 fyrir þeim. Þú hefur ekkert verið hlutdrægur í leiknum? ,,Nei, alls ekki. Það hefði verið gaman að vinna þá og við lögðum allt í sölurnar, en því miður var þetta ekki okkar dagur og þeir fóru oft illa með okkur enda frábært lið á ferð.“

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.