Skinfaxi - 01.08.2002, Side 14
Eorwarnablað-Skifttexa
Tækifærin gefast ekki á
hverjum degi
Hvernig stóð á því að þú tókst þátt í
Ungfrú Reykjavík? ,,Það var hringt í mig
og ég beðin um að koma í prufa. Ég var
mjög lengi að velta því fyrir mér hvort ég
ætti að fara og lét síðan verða af því eftir að
ættingjar og vinir höfðu hvatt mig til að
fara.“
Af hverju varstu á báðum áttum með að
taka þátt í keppninni? ,,Það var margt
sem ég velti fyrir mér áður en ég tók
ákvörðun um að vera með, t.d. eru svona
keppnir oft umdeildar, þær eru mjög
tímafrekar og ég vissi að stúlkurnar sem
tækju þátt í keppninni fengju mikla athygli,
sem ég var ekkert voða hrifin af. Ég hafði
verið mikið á milli tannanna á fólki þegar ég
var í barnaskóla og lent í einelti og ég vildi
ekki vera að storka örlögunum og eiga það
á hættu aftur að vera umtöluð. Síðan var
fólkið í kringum mig bara svo jákvætt og
vildi að ég nýtti tækifærið því það gæfist
ekki á hverjum degi, þannig að ég ákvað að
slá til og hafa gaman af þessu.“
Þú segir að fegurðarsamkeppnir séu oft
umdeildar. Hvað finnst þér í dag; ertu
sátt við þátttökuna? ,,Já, ég er það. Mér
fannst þó skemmtilegra að taka þátt í Ung-
frú Reykjavík. Þar var hópurinn einstakur,
eins og hann var einnig í Fegurðarsam-
keppni íslands, en þar var samkeppnin
töluverð á milli keppenda, enda allar stúlk-
urnar miklar keppnismanneskjur. Ég hafði
samt alveg ofboðslega gaman af að vera
með og fékk töluverða reynslu út úr þessu.
Ég kynntist mörgum frábærum stelpum
sem ég hef enn samband við í dag og eru
vinkonur mínir. Auk þess vinnur maður á
feimninni með því að koma fram og tala við
dómarana og síðan gerir keppnin mikið fyrir
okkur sjálfar, t.d. fengum við allar frítt kort í
World Class, Ijósatíma, frítt í Trimform
Berglindar, gervineglur o.fl., þannig að það
var dúllað dálítið við okkur sem var mjög
gaman. Við gerðum því hluti sem maður
leyfir sér ekki oft. Þátttaka í svona keppni
gefur því manni mjög mikið.“
Manúela skartaði sínu fegursta á úrslita-
kvöldinu sem fram fór á Broadway í lok
maí og kjóllinn sem hún var í vakti mikla
athygli, en það var Mike Tyson hnefa-
leikakappi sem gaf Manúelu kjólinn og
er talað um að hann hafi kostað nokkur
hundruð þúsund. Hvernig kom þetta til
með kjólinn og Tyson? ,,Ég var lengi búin
að leita mér að kjól hérna heima fyrir
keppnina en fann ekkert. Mamma á margt
vinafólk í New York og við ákváðum að
skella okkur út og finna kjól. Við fórum síð-
an inn í Versachebúð í einni af fínni götum
New York bara til að skoða enda kjólarnir
þar rándýrir og þar gekk ég eiginlega beint
í fangið á Tyson um leið og ég steig inn í
verslunina. Hann byrjaði eitthvað að tala
við mig, en ég dreif mig bara upp á næstu
hæð og fór að skoða. Þá kom lífvörðurinn
hans til mín, lét mig fá nafnspjaldið hans og
vildi að ég hringdi í hann. Ég tók við
nafnspjaldinu, en ætlaði ekki að gera neitt
meira í málinu. Þegar við vorum síðan að
fara út úr versluninni þá stendur hann enn
við útganginn og spyr mig hvort ég hafi ekki
fundið neitt. Ég hló bara að honum og
sagðist hafa fundið fullt. Þá kallaði hann á
eina afgreiðsludömuna og sagði henni að
fara með mig upp, aðstoða mig við að finna
eitthvað á mig og síðan átti hún að skrifa
það á hann. Auðvitað trylltist ég alveg innra
með mér, brosti út að eyrun og hafði ekki
hugmynd um hvernig ég átti að haga mér.“
Þú hefur eðlilega valið dýrasta kjólinn?
,,Nei, alls ekki. Ég fór bara upp aftur og
valdi kjól sem ég hafði skoðað áður, og leist
vel á. Hann var að vísu nokkuð dýr en langt
frá því að vera dýrasti kjóllinn í versluninni."
Hafði ekki áhyggjur af því að setja
Mike Tyson á hausinn!
Þetta hefur líklega bara verið einhver
skiptimynt fyrir Tyson? ,,Já, ég reikna
með því a.m.k. hafði ég engar áhyggjur af
því að setja hann á hausinn,“ segir hún
hlæjandi.
Hvernig var það þegar þú rakst á hann.
Vissir þú strax hver þetta var? ,,Nei, ég
og mamma vorum ekki alveg vissar fyrst,
en við áttuðum okkur fljótlega á því, enda
er hann frægur og umdeildur maður og
nokkuð mikið í sviðsljósinu."
Ertu mikill boxáhugamaður? ,,Nei, ég er
það nú ekki en ég hef þó séð hann í
hringnum, í beinni á Sýn.“
Hefur þú eitthvað heyrt í honum eftir
þetta? ,,Já, ég hringdi nú í hann stuttu
seinna því mér fannst það almenn kurteisi
að þakka honum fyrir kjólinn. Við höfum
síðan skrifast á annað slagið í gegnum
netið.“
Við fáum yfirleitt ekkert fagrar sögur af
kappanum í gegnum fjölmiðla. Hvernig
kom hann þér fyrir sjónir? ,,Ég þekki
eiginlega bara góðu hliðarnar á honum. Ég
las í slúðurblöðunum að hann væri hálf-
gerður villimaður. en hann kemur mjög vel
fyrir og virðist mjög almennilegur."
Ef við snúum okkur aftur að fegurðar-
samkeppninni þá vilja sjálfsagt margar
stúlkur vera í þínum sporum. Geta allar
stúlkur tekið þátt í Fegurðarsamkeppni
íslands? ,,Nei, ekki þær sem eru giftar og
ekki þær sem eiga börn. Annars geta allar
skráð sig til þátttöku og farið í prufu. Ég
held að það sé hægt að skrá sig á t
www.broadway.is. Síðan velja forsvars-
menn keppninnar 18-20 stúlkur til að taka
þátt í Ungfrú Reykjavík, sem er undan-
keppni fyrir íslandskeppnina. Ég held að
það hafi yfir 300 stúlkur verið skráðar í fyrra
fyrir Ungfrú Reykjavík. Undankeppnir eru
einnig haldnar út um allt land og sigur-
vegarar í þeim keppnum, og þær sem eru
valdar sérstaklega úr, taka þátt í íslands-
keppninni.“
Naut þess að vera með
Með hvaða markmiði fórst þú í keppn-
ina? ,,Ég fór bara til að hafa gaman af
henni, njóta þess að vera með og fá sem
mest út úr keppninni. Ég er mjög ánægð
með að ég gerði mér engar vonir. Ég hefði
því ekki orðið fyrir vonbrigðum ef ég hefði
ekki komist neitt áfram. Ég held að það
skipti geysilega miklu máli að taka þátt í
keppninni með því hugarfari að hafa ein-
göngu gaman af henni.“
Hvað felst í því að vera Fegurðardrottn-
ing íslands? ,,Það eru í raun engar sér-
stakar skyldur hérna heima, en mér hafa
borist ákveðin atvinnutilboð og fleira í þeim
dúr. Tvær ferðir út eru í raun það eina sem
er skylda. í október fer ég til Finnlands og
tek þátt í Ungfrú Skandinavía og síðan fer
ég til Panama City þar sem ég tek þátt í
keppninni Miss Universe, sem er rosalega
flott keppni og mjög virt, en hún fer fram í
lok maí á næsta ári. Það er að sjálfsögðu
mikil ábyrgð að taka þátt í svona keppnum
og vera fulltrúi íslands, en líka mjög gam-
an. Það versta við Miss Universe er tíma-
setningin, en ég verð í stúdentsprófum í
MR á sama tíma, en það hlýtur að bjarg-
ast,“ segir hún með dálitlum áhyggjusvip.
Hefur aldrei reykt né drukkið
Það hlýtur að vera mikill heiður að vera
Fegurðardrottning íslands en því hlýtur
einnig að fylgja mikil ábyrgð. Þú ert
frekar í sviðsljósinu og þarft að gæta
þess að vera vel til höfð og haga þér
skikkanlega á almannafæri, ekki rétt?
„Jú, það er alveg rétt. Þetta er mikill heiður
og hvað ábyrgðina varðar þá hef ég ekki
áhyggjur af henni. Ég hef aldrei reykt né
drukkið þannig að ég er alltaf meðvituð um
hvað ég er að gera og veit hver mín