Skinfaxi - 01.08.2002, Síða 15
Eorvarnablad-SkinteKa-
takmörk eru. Ég þarf því ekki að hafa
áhyggjur af að vera útúrfull einhvers-
staðar á skemmtistað og vita ekkert í
minn haus. Hvað sviðsljósið varðar þá
finnst mér það stundum óþægilegt því
ég er dálítill einfari og fjölmiðlar eru að
reyna að komast inn í mitt einkalíf, en
það fylgir þessu hlutverki sem ég er í.“
Fólk fylgist eðlilega betur með þér
nú en áður. Ertu meira meðvituð um
hvað þú gerir í dag eða ertu enn
sama gamla Manúela? ,,Ég hef ekk-
ert breyst. Ég fer enn út að skemmta
mér og dansa eins og vitleysingur og
mér er alveg sama þótt það séu
Ijósmyndarar að taka myndir af mér.
Ég var reyndar á tímabili hætt að
nenna að fara út því ég varð fyrir stöð-
ugu áreiti, bæði frá fólki og Ijósmynd-
urum, en það er ekki eins mikið í dag.“
Nú ert þú fegursta kona landsins.
Er einhver galdur á bak við feg-
urðina? ,,Já, auðvitað skiptir máli að
Þaö eru ekki
margir krakkar
sem eru nógu
sterkir til að
segja nei,
sérstaklega
ekki á þessuni
ertiöu árum
þegar allir eru
að reyna að
falla í hópinn.
Þá falla margir
í þá gryfju að
slá til að reyna
að vera svalir,
en það er í
raun ekkert
hallærislegra.
hugsa vel um sig og lifa
heilbrigðu lífi. Ég er dugleg að
æfa og ég borða bara hollan
mat, nema einu sinni í viku
þegar það er nammidagur. Þá
held ég líka að það hafi rosa-
lega mikið að segja að ég
hvorki reyki né drekk. Mér
finnst samt að fegurðin komi
að mestu leyti innan frá. Þá
skiptir aðallega máli að vera
maður sjálfur og hafa smá út-
geislun, a.m.k. finnst mér það
mjög heillandi við fólk.“
Þú hvorki reykir né drekkur
og ert t.d. alfarið á móti
reykingum? ,,Mér finnst bara
ógeðslegt að reykja. Það er
svo óaðlaðandi. Ég hef reynd-
ar aldrei prófað að reykja né
drekka og er því kannski ekki
beint dómbær á þetta, en þetta
eru hlutir sem ég vil ekki hafa í
mínu lífi. Það vita flestir hverjar
afleiðingarnar geta orðið og ég sé ekkert
jákvætt við þetta, lyktin er vond, fólk fær
gular tennur, þetta er heilsuspillandi o.fl.“
Nú byrja margir unglingar að reykja
snemma og aldurinn er sífellt að færast
neðar. Hver er ástæðan? ,,Ég hugsa að
það sé þessi blessaði hópþrýstingur. Ég
get ekki trúað öðru. Það eru ekki margir
krakkar sem eru nógu sterkir til að segja
nei, sérstaklega ekki á þessum erfiðu árum
þegar allir eru að reyna að falla í hópinn.
Þá falla margir í þá gryfju að slá til og reyna
að vera svalir, en það er í raun ekkert hall-
ærislegra."
Hvernig stóð á því að þú lést ekki
glepjast? ,,Ég man að krökkunum fannst
það mjög svalt að reykja þegar ég var
unglingur. Það bjargaði mér að ég var alltaf
hrædd við reykingar og drykkju. Ég var
hrædd við að drekka því ég óttaðist mjög
að gera einhvern skandal, en ég hef alltaf
verið þannig manneskja að ég vil hafa allt
mitt á hreinu.“