Skinfaxi - 01.08.2002, Qupperneq 23
Þórey Edda Elxsdóttir
Þórey Edda Elísdóttir, stangastökkvari úr
FH, hefur skipað sér á sess á meðal
fremstu stangastökkskvenna heims. Hún er
um þessar mundir í 26. sæti á heims-
listanum og stefnir hærra. Þórey á íslands-
og Norðurlandamet innanhúss, 4,51 m, en
utanhúss hefur hún hæst stokkið 4,45 m á
HM í Edmonton þar sem hún hafnaði í 6.
sæti. Hún undirbýr sig nú af krafti fyrir HM
innanhúss sem fer fram eftir áramót og svo
HM utanhúss í sumar. Hún er aðeins 25 ára
og það verður fróðlegt að fylgjast með
henni á stórmótum næsta árs. Valdimar
Kristófersson ræddi við Þóreyju en hún var
á dögunum valin frjálsíþróttakona FRÍ.
Hef gaman af að
vera í mikilli hæð
Byrjaði í hálfgerðu gríni
Það er auðvelt að átta sig á af hverju
krakkar fá áhuga á knattspyrnu, körfu-
bolta, sundi, hlaupi o.fl. þar sem
auðvelt er að redda sér fótbolta og
körfubolta til að leika sér með, auðvelt
að fara í sund eða bara fara út að
hlaupa. En maður sér ekki alveg fyrir
sér að krakkar fari að kaupa sér
stangastökksstöng og byrja að
stökkva út um allar trissur. Hvernig
stóð á því að þú valdir stöngina? ,,Ég
var orðin 19 ára og búin að æfa fimleika
í næstum 10 ár þegar ég byrjaði að æfa
stangastökk. Ég hef æft stangastökk frá
því í október 1996 og byrjaði bara í hálf-
gerðu gríni. Ég og Nína vinkona mín
höfðum reyndar mætt einu sinni ári áður
á æfingu en ákváðum þá að halda frekar
áfram í fimleikum. Ári seinna mætti ég
aftur á æfingu og þá varð ekki aftur snúið
og ég hef ekki stoppað síðan.“
Þannig að þú hefur stundað aðrar
íþróttir áður en þú fórst að einbeita þér
að stönginni? ,,Já, fimleika og svo var ég
mjög mikið á skíðum á sínum tíma, en
núna get ég ekki tekið þá áhættu að slasast
á þeim.“
Hvernig æfir maður fyrir stangastökk;
þú hlýtur að gera eitthvað annað en
bara að stökkva? ,,Já, ég stekk bara 2-3
sinnum í viku, það fer eftir því hvort það er
uppbyggingartímabil eða keppnistímabil.
Ég stekk meira yfir keppnistímabilið. Á milli
stökkæfinga er mikið um ólympískar lyfting-
ar, en þær auka snerpuna og eru góðar
fyrir atrennuna. Svo hleyp ég mikið, spretti
eða lengri hlaup, og svo eru alltaf teknar
þrekæfingar í lok æfingar."
Þú fékkst nýverið styrk frá Ólympíusam-
hjálpinni og ert auk þess á styrk frá
Afreksmannasjóði ÍSÍ. Hversu mikil-
vægir eru þessi styrkir fyrir þig og aðra
afreksmenn? „Þeireru undirstaða alls. Án
styrkjanna þyrfti maður að stunda vinnu til
að geta haldið sér uppi. Vinna tekur mikinn
tíma og kraft og það væri því erfiðara að
gefa sig alla í æfingarnar, en það er mjög
mikilvægt að vera ferskur á hverri æfingu
og tilbúinn að taka á, þ.e.a.s. ef maður
ætlar sér að ná langt. Það er dýrt að stunda
íþróttagrein af krafti. Það þarf að leggja út
fyrir ýmsum vítamínum og fæðubótavörum.
Einnig þarf að fara í æfingabúðir minnst
tvisvar á ári og fara í alls konar nudd, nála-
stungur o.fl. sem allt kostar peninga."
Hvað eyðir þú mörgum tímum á viku í
æfingar? ,,Mjög misjafnt, á uppbyggingar-
tímabili fara um það bil 20 tímar í æfingar
en þar fyrir utan fara um 4-5 tímar í sjúkra-
þjálfun eða nudd og annars konar aðhald
sem er nauðsynlegt."
Stangastökk kvenna er sífellt að verða
vinsælla. Fer samkeppnin harðnandi?
,,Já, samkeppnin er rosalega hörð í dag.
Það er orðið mjög erfitt að komast á erlend