Skinfaxi - 01.08.2002, Side 35
Forvarnablað Skinfaxa
Hvaö meö gerendurna. Vita þeir alltaf
hvað þeir eru aö gera? ,,Það er bara mis-
jafnt. Það fer eftir því hve gott tilfinningalegt
uppeldi þeir fá heima fyrir hversu meðvit-
aðir þeir eru um það sem þeir eru að gera.“
Foreldrar mega ekki sitja auðum
höndum
Hvert geta foreldrar leitað og hvað geta
þeir gert ef barnið þeirra lendir í einelti?
„Menntamálaráðuneytið er að setja í gang
starf til prufu í nokkrum skólum sem byggist
á hugmyndum Dans Olweus sálfræðings
og er í nokkrum stigum. Þetta er mjög góð
byrjun og hugmyndafræði sem við þurfum
að laga að okkar samfélagi. Foreldrar geta
með tíð og tíma farið að treysta á þetta kerfi
þannig að þeir ættu að kynna sér það.
Eitt er á hreinu að ef börn verða fyrir þess-
um skakkaföllum í lífinu þá mega foreldrar
ekki sitja auðum höndum, þeir mega heldur
ekki varpa allri ábyrgð yfir á skólayfirvöld,
þeir verða að axla ábyrgðina sjálfir. í Gulu
síðunum í símaskránni má finna endalaust
af sálfræðingum og geðlæknum til þess að
sinna þessu. Þessir menn eru ekki upp á
punt í símaskránni. Foreldrar verða að tala
við þá, þeir verða einnig að axla ábyrgð og
þeir eiga stöðugt að vera að hrósa börn-
unum sínum, virða þau, hjálpa þeim við
heimalærdóminn, hvetja þau áfram, taka
utan um þau og kyssa og knúsa, láta þau
finna fyrir því að þau séu elskuð og að
foreldrarnir séu þeirra stoð og stytta.
Ef þetta vandamál kemur upp, að barnið
sé lagt í einelti, þá verða foreldrar einnig að
láta skólayfirvöld vita, ganga í málið með
skynsömum hætti og síðan getur skólinn
hjálpað foreldrum upp að vissu marki og
einnig getur skólinn oft aðstoðað foreldra
við að leita aðstoðar út fyrir skólann, en allt
er þetta á ábyrgð foreldranna."
Nú er fólk oft og tíðum dálítið smeykt
við að tala við þessa aðila og hrætt við
að það fréttist? „Þetta er algjör vitleysa
og engin ástæða til að óttast. Ég er búinn
að hitta sálfræðinga, geðlækna og geð-
hjúkrunarfræðinga og það er eitt af því
yndislegasta sem ég geri. Hjá þeim er ég
virtur eins og ég er og fæ að láta í Ijós
skoðanir mínar og áhyggjur að vild, án
þess að það sé verið að snúa út úr.“
Eineltislaust land
Eitthvað að lokum? „Hættum að hugsa
um þetta bara sem einelti, því þegar við
förum að tala um einelti erum við farin að
tala um einhvern hóp af fólki. í staðinn eig-
um við að horfa á þetta sem félagslegt og
samfélagslegt áreiti sem er sameiginlegt
verkefni sem við þurfum að leysa. Ég er
ekki eineltiskarlinn, eins og Mummi í Mótor-
smiðjunni eða Bubbi með Essó, heldur er
ég bara venjulegur maður sem kom fram til
að opna ákveðna umræðu. Ég ætla ekki að
vera í þessu alla ævi, ég ætla að fara að
binda enda á þetta, þ.e.a.s. minn hluta og
ég vil að aðrir fari að koma og taka við af
mér, því þetta hefur þróast og þetta heldur
áfram. Þess vegna má þessi umræða ekki
deyja út þegar ég hætti. Ég er bara að
segja ákveðna hluti með þessum fyrir-
lestrum mínum sem mér finnst hafa vantað
inn í umræðuna svo hægt sé að halda
áfram á vistmunalegum grundvelli og
einhvern tímann sé hægt að komast að
niðurstöðu. Ég vil koma með ábendingu til
stjórnvalda: Gerum eins og Svíar, gerum
25 ára áætlun, en ekki fjögurra ára, og að
þeim tíma liðnum viljum við sjá eineltislaust
land. Það er raunhæft."
Þess má geta að Stefán er um þessar
mundir á fuilu í Þjóðleikhúsinu við leik í
leikritinu „Lífið 3X“ ásamt meðleikurum
sínum Sigurði Sigurjónssyni, Ólafíu
Hrönn og Steinunni Ólínu í leikstjórn
Viðars Eggertssonar. Þetta er heimspe-
kilegur gamanleikur þar sem Stefán og
meðleikarar glíma við hversdagslegt
fólk í hversdagslegum aðstæðum.
Einelti er ofbeldi
Á undanfömum árum hefur umræða um
einelti í skólum farið mjög vaxandi hér á
landi. Skólafólk er farið að gera sér betur
grein fyrir langvarandi áhrifum eineltis á
þolendur og tilbúnara en áður að viður-
kenna vandann og takast á við hann.
Árið 1998 gerði Rannsóknastofnun upp-
eldis- og menntamála rannsókn á umfangi
og eðli eineltis í íslenskum grunnskólum.
Niðurstöður rannsóknarinnar voru birtar
1999. Stofnunin gerði síðan framhalds-
ranrtsókn um úrræði skóla. Niðurstöður
lágu fyrir í september 2000. Fram kom
meðal annars óöryggi og kvíði meðal
kennara gagnvart einelti og þeir fundu sig
vanbúna til þess að takast á við einelti.
í kjölfar þessara rannsókna var settur
niður starfshópur á vegum samráðs-
nefndar grunnskóla. Starfshópnum var
falið að koma með tillögur um hvemig
bregðast skuli við þegar einelti kemur
upp í grunnskólum. Starfshópurinn skil-
aði tillögum sínum í maí 2001 og lagði til
að teknar yrði upp hugmyndir og fram-
kvæmdaáætlun sem kenndar eru við
Svíann Dan Olweus og hafa skilað mikl-
um árangri í baráttu við einelti. Samkom-
ulag var gert vorið 2002 við Olweus og
háskólann í Bergen um notkun á hug-
myndum hans í baráttu við einelti hér á
landi. í kjölfarið var samið við 19 skóla
um allt land um að þeir tækju að sér að
vera móðurskólar í eineltisátaki hér á
landi. Hugmyndin er að hver þeirra verði
ráðgefandi fyrir tvo til þrjá skóla. í júni
var haldið námskeið fyrir fulltrúa þessara
skóla. Átakið hefst síðan um næstu ára-
mót og stendur í 18 mánuði.
Hér fyrir neðan eru sett fram lykilatriði
sem snúa að einelti og fyrirbyggjandi
starfi í skólum.
- Einelti felur í sér að nemandi er tekinn
fyrir af einum eða fleirum nemendum
með síendurtekinni stríðni, látbragði, nið-
randi unrmælum, sögusögnum, andlegri
kúgun, hótunum af ýmsu tagi sem koma
þolanda illa, líkamlegri höfnun eða mark-
vissri einangrun eða útskúfun.
- Ef bam er lagt í einelti líður ekki langur
tími áður en því fer að líða illa, verður
hrætt, örýggislaust, einmana og tortrygg-
ið gagnvart félögum. Sjálfstraustið hverf-
ur, það einangrar sig og verður jafnvel
veikt án sýnilegra sjúkdóma. Langvarandi
einelti veldur streitu sem leitt getur til
alvarlegra vandamála eins og mjög
neikvæðrar hegðunar, lystarleysis og
þunglyndis.
- Einelti er tengt skólabrag einstakra skóla
og því hegðunar- og samskiptamynstri
sem viðgengst í skólanum.
- Stefnumótun í eineltismálum hefur það
að markmiði að tryggja skólaumhverfi
þar sem nemendum líður vel og þeir búa
við öryggi.
- Góður bekkjarandi er lykilatriði við að
byggja upp jákvæðan skólabrag.
- Nemendum líður vel þar sem gagn-
kvæm virðing ríkir og hver og einn fær að
vera á eigin forsendum.
- Nemendum líður vel þar sem samskipti
nemenda helgast af virðingu fyrir skóla-
félögum, samábyrgð, umhyggju og ábyr-
gri hegðun.
- Einelti er ofbeldi sem getur haft varanleg
áhrif á sálarlíf fórnarlambs.
- Skólar verða að viðurkenna að einelti á
sér stað í skólum óháð stærð og stað-
setningu. Leiða má að því líkum að allt að
5.000 nemendur verði fyrir, eða taki þátt í
einelti, í grunnskólum landsins.
Arthur Morthens, forstöðumaður
þjónustusviðs Fræðslumiðstöðvar
Reykjavíkur.