Skinfaxi - 01.08.2002, Side 37
ur ekki framar en hann gerir núna. í lönd-
unum í kringum mig er leyft að hafa tvo
Ameríkukana f hverju félagi sem gerir
deildirnar t.d. mun sterkari."
Þú hefur vakið mikla athygli fyrir hrað-
ann, snerpuna og stökkkraftinn. Ertu að
æfa eitthvað öðruvísi en aðrir?
„Ég var lánsamur að vera skapaður með
góða líkamsburði, en ég hef æft stíft frá því
að ég byrjaði og það hefur sitt að segja. Ég
var með mjög góðan þjálfara sem keyrði
mig út alla yngri flokkana og þegar ég fór til
Ameríku þá lenti ég líka á þrusugóðum
þjálfara, þar bætti ég snerpuna og stökk-
kraftinn svo um munaði, held ég. Þar var
mikið af séræfingum sem ég gerði og mikið
puðaðl"
Þú ert ekki að borða einhverja sérstaka
fæðu?
„Mamma hefur kokkað ofan í mig toppmat
síðan ég var á brjósti," segir hann í léttu
gríni. „Ég lærði að borða hollan og góðan
mat á mínu heimili og það er mömmu að
þakka.“
Hvernig er með mataræðið - skiptir það
miklu máli fyrir íþróttamenn að borða
hollan mat?
„Það skiptir öllu máli. Þegar mikil keyrsla er
á íþróttamönnum og brennslan mikil þá er
gríðarlega mikilvægt að vera alltaf vel
nærður og fullur af orku þegar komið er á
æfingar og í leiki. Taka inn vítamín og
borða orkuríka fæðu!“
Reykingar og áfengi eiga enga
samleið með íþróttum
Hvað með reykingar og áfengi - fer
þetta saman við íþróttir?
„Nei, ég myndi segja að þessir hlutir eigi
enga samleið með íþróttum."
Hvað finnst þér um reykingar og þá
staðreynd að unglingar sem byrja að
fikta/ reykja eru alltaf að verða yngri?
„Ég er á móti reykingum og maður verður
alltaf hálf reiður og undrandi þegar maður
sér ungt fólk reykja. Nú vita allir hversu
skaðlegar reykingar eru, það hefur verið
fjallað það mikið um reykingar í gegnum
árin. Nei, ég hef ekki svarið við því af hverju
ungt fólk er að sækjast í þetta.“
Hvaða leiðir sérð þú til þess að hefta
þessa þróun?
„Ég trúi að það sé verið að gera mikið til
þess að vara ungt fólk við reykingum, allir
vita hversu skaðlegar þær eru. Það þarf því
að reyna að koma í veg fyrir að unga fólkið
kaupi sígarettur. Ein leið er t.d. að taka
sama stigi og hinar þjóðirnar. Við erum með
ungt og hæfileikaríkt lið og við þurfum bara
að spila á móti þeim bestu til að verða betri,
annars tökum við ekki framförum.“
Getum við einhvern tímann ógnað þeim
bestu í Evrópu?
„Já, ég trúi því. Með mikilli vinnu og nægum
verkefnum getum við öðlast þá reynslu og
getu sem við þurfum til að stríða þeim
bestu.“
Það hefur ekki farið framhjá fólki að þú
kemur úr mikilli íþróttafjölskyldu, m.a.
áttu tvo bræður sem standa framarlega í
sinni íþróttagrein, en það eru Ólafur
Stefánsson handknattleiksmaður og
Eggert Stefánsson knattspyrnumaður.
Þið völduð hver sína íþróttagreinina -
hvernig stóð á því?
„Ég var nú í fótbolta fyrst en var ekki lengi
að skipta yfir í körfuna þegar ég kynntist
henni. Ég held að það sé ekkert svar við
þessari spurningu, bara örlög held ég.“
Hver er ykkar fremstur?
„Það er ekkert spurning um að vera frem-
stur held ég, ekki hjá okkur allavega. Við
reynum allir að vera sem fremst í okkar
íþróttagrein en milli okkar er engin sam-
keppni. Við peppum hver annan upp og
styðjum fram í rauðan dauðann!"
Þar sem Ólafur og Eggert fá ekki að
svara fyrir sig. Hverjir eru þá þeirra
helstu gallar?
„Hægri höndin hjá Óla og vinstri höndin hjá
Eggerti í böskunni!"
Og að lokum, hver er uppáhaldsíþrótta-
maður Jóns Arnórs?
„Michael Jordan," segir hann fljótsvarað.
harðar á því þegar aðilar
eru að selja fólki undir
aldri sígarettur svo að þeir
hinir sömu hugsi sig tvis-
var um þegar unglingur er
að biðja þá um sígarettur.
Það er alltof auðvelt fyrir
ungt fólk að útvega sér
sígarettur og það þarf að
laga.“
Menn komast varla í
landsliðsklassa með því
að lifa óheilbrigðu lífi,
en hvernig er annars
með íslenska landsliðið
í dag. Hvar stöndum
við?
„Við erum alltaf að verða
betri. Þegar fleiri menn
fara að spila erlendis þá
getum við farið að spila á
i