Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.2003, Blaðsíða 10

Skinfaxi - 01.08.2003, Blaðsíða 10
Bjarney S. Lúðvíksdóttir Eins og marga unga drengi dreymir um að verða atvinnumenn í knattspyrnu þá dreymir margar ungar stúlkur að verða fyrirsætur. Einhverjar þeirra fá ósk sína uppfyllta en hjá öðrum verður þetta áfram bara draumur sem fjarlægist með hverju ári sem líður. Bjarney S. Lúðvíksdóttir er einn eigenda módelskrifstof- unnar Eskimó módels ásamt Andreu Brabin sem gerði það gott sem fyrirsæta fyrir nokkrum árum. Hlutverk Bjarneyjar er m.a. að velja leikara og fyrirsætur í auglýsingar, myndatökur, kvikmyndir o. s.frv. Þær uppfylla því drauma annarra íslenskra stúlkna sem langa til að feta sig áfram innan tískuheimsins. Skinfaxi hitti Bjarney að máli og ræddi við hana um Eskimó módels og fyrirsætustörfin. í fyrirsætuheiminum gilda sérstök lögmál varðandi útlit og líkamsmál - segir Bjarney S. Lúðvíksdóttir hjá módelskrifstofunni Eskimó Geta átt fyrir útborgun í íbúð Þar sem blaðamaður Skinfaxa er karl- maður og áttar sig ekki alveg á þessum draumum ungra stúlkna að verða fyrir- sætur, þótt hann skilji drengina mjög vel, þá leikur honum forvitni á að vita hvað það sé sem heillar stúlkurnar við fyrirsætustörfin? „Það sem heillar ungar stúlkur aðalega við „fyrirsætustarfið" er glysið í kringum fyrir- sætustörfin. Þeim finnst spennandi öll sú athygli sem fyrirsæturnarfá. Fólk hefur hins vegar yfirleitt ekki hugmynd um að vinnan sem fylgir því að starfa sem fyrirsæta er ekki eins auðveld og hún lítur út fyrir að vera. Við leggjum því mikla áherslu á að starfandi fyrirsætur haldi fyrirlestra um störf sín á Framkomu og fyrirsætunámskeiðum sem við höldum reglulega.” Þetta er sem sagt mikil vinna? „Fyrir þær fyrirsætur sem komast á samn- ing hjá erlendum módelskrifstofum er þetta mikil vinna." Og fyrirsætur geta efnast mikið ef þeim gengur vel? „Það er trúnaðarmál hvað fyrirsætur eru að fá. Fyrirsætur geta verið að taka að sér lítil verkefni þar sem ekki eru miklir peningar í spilinu og svo allt upp í stór verkefni þar sem miklir peningar eru í boði. Hversu háar upphæðir þetta eru er ekki hægt að segja frá en þær geta stundum tekið sér gott frí eða átt fyrir útborgun í íbúð. Þannig að fyrirsæturnar þurfa að vera skynsamar í peningamálum, kunna að fara með pen- inga og líka að lifa án þeirra." Nú er íslenskt kvenfólk annálað fydr mikla fegurð. Eruð þið með mikið af fyrirsætum sem geta náð langt úti i hinum stóra heimi? „íslenskar stúlkur eru svo sannalega fall- egar, en það er margt annað en fagurt útlit sem skiptir máli í fyrirsætuheiminum Þvl þar gilda sérstök lögmál varðandi útlit og

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.