Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.2003, Blaðsíða 17

Skinfaxi - 01.08.2003, Blaðsíða 17
Liggur þér á að komast í gröfina? SNIFPEPNI Sljólciki, yfirlið og varanlegur heilaskaSnifefni eru lyktarsterk efni, s.s. lím, gas og lökk sem hafa bein áhrif á taugakerfi og hjarta. Einstaklingur undir áhrifum verður mjög sljór og ruglaður í ríminu. Hjartsláttur eykst og oft fellur neytandinn í yfirlið fyrst eftir inntöku. Mikil hætta er á lostaástandi hjartastoppi. Mörg dæmi eru um að sniffefni hafi valdið varanlegum heilaskaða. SVEPPIR Ofskynjunarsveppir valda skyntruflunum og tilfinningáföskun sem geta Ieitt til brenglunar á persónuleika og varanlegum heilaskaða. Oft innihalda þessir sveppir önnur eiturefni, eins og blý, sem hefur áhrif á minni og aðra heilastarfsemi. E-PILLA Lífshættulegar breytingar á líkamsstarfsemi. Virka vímugefandi efnið í E-pillunni er MDA, MDMA eða MDEA. Þetta eru amfetamínafbrigði með líka verkun og amfetamín og LSD. Áhrifin geta verið lífshættuleg þar sem þreytu-, hungur- og þorstatilfinning hverfur sem getur leitt til ofreynslu og vökvataps. Einnig er hætta á slæmum krampaflogum. Líkamshiti getur rokið upp úr öllu valdi, truflanir á blóðþrýstingi og/eða æðakerfi. Hætta er á varanlegum nýmaskemmdum og heilablæðingum. Ofan á þetta bætast geðræn áhrif svo sem þunglyndi og ofsóknarkennd. ...þeir sem neyta ofskynjunarlyf ja fá oft þær ranghugmyndir að skyntruflanir þeirra séu yfirskilvitsleg upplifun á veruleikanum... Samtaka ■iú!^r^v Áætlunin ísland án eiturlyfja er samstarfsverkefni ríkisstjórnarinnar, Reykjavíkurborgar, Sambands íslenskra sveitarfélaga og evrópsku samtakanna European Cities Against Drugs (ECAD). Markmið áætlunarinnar er að leita leiða til að sameina krafta þjóðarinnar í baráttunni gegn ólöglegum fíkniefnum, efla forvarnir, hefta innflutning og skipuleggja verkefni og aðgerðir sem hafa þetta að leiðarljósi. ísland hefur alla burði til að ná miklum árangri í baráttunni gegn eiturlyfjum. Við erum fámenn og vel menntuð þjóð, þar sem almenn velmegun ríkir, þekking á neytendum eiturlyfja er til staðar og umtalsverð kunnátta í forvarnar- og meðferðarmálum. Andstaðan við eiturlyf er almenn meðal landsmanna og aðkomuleiðir eiturlyfja til landsins eru takmarkaðar sökum legu landsins. Baráttan gegn útbreiðslu eiturlyfja er barátta við skipulagða glæpastarfsemi þar sem peningar ráða ferðinni og börn og unglingar eru fórnarlömb. Flestir sem ánetjast eiturlyfjum hefja snemma áfengisneyslu og leiðast út í eiturlyfjaneyslu fyrir tvítugsaldur. Lykilatriðið er að allir láti sig málið varða. ísland án eiturlyfja Ráðhús Reykjavíkur • 101 Reykjavík • Símar 563 2000, 563 2092 og 585 1473 • Fax 562 2415 • netfang iae@rvk.is SUNDLAUGAR ÍSAFJARÐARBÆJAR Sundhöll ísafjarðar Sími 456 3200 Sundhöll Flateyrar Sími 456 7738 Opnunartímar frá 10. júní til 25. ágúst: Mánudaga til föstudaga frákl. 07:00-21:00 Laugardaga og sunnudaga frá kl. 10:00-16:00 Opnunartímar frá 1. júní til 25. ágúst: Mánudaga til föstudaga frákl. 13:00-21:00 Laugardaga og sunnudaga frákl. 12:00-16:00 Almenningstímar sumarið 2003 Sundlaug Suðureyrar Sími 456 6121 Opnunartímar frá 1. júní til 25. ágúst: Mánudaga til föstudaga frá kl. 12:00 - 21:00 Laugardaga og sunnudaga frákl. 11:00-18:00 Sundlaug Þingeyrar Sínti 456 8375 Opnunartímar frá 10. júní til 25. ágúst: Mánudaga til föstudaga frá kl. 07:45 - 21:00 Laugardaga frá kl. 13:00 -19:00 Sunnudaga frá kl. 11:00 -17:00 Verðskrá: Böm kr. 120 • Fullorðnir kr. 280 • 10 miða kort fyrir böm kr. 900 ■ 10 miða kort fyrir fullorðna kr. 2300 ■ 30 miða kort fyrir böm kr. 2200 • 30 miða kort fyrir fullorðna kr. 5400. Alh! Ókeypis fyrir börn að skólaaldri (6 ára og yngri). Ath! Böm 8 ára og yngri þurfa að vera í fylgd með 14 ára og eldri.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.