Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.2003, Blaðsíða 11

Skinfaxi - 01.08.2003, Blaðsíða 11
Eofvarnablað-Skinfaxa líkamsmál. Eskimo er með fáar en góðar fyrirsætur sem hafa reynt fyrirsætustörfin og einnig new faces/ný andlit, sem eru að feta sín fyrstu fótspor." Allir velkomnir á skrá Getur hvaða stúlka sem er komið til ykkar og þið setjið hana á skrá? „Það eru allir velkomnir á skrá hjá okkur og þá skiptir hvorki aldur né formið máli. Það er ekki alltaf verið að leita að fyrirsætum í verkefni, heldur má kannski segja að oftar en ekki er verið að velja fólk á öllum aldri í verkefni í dag. Fólk kemur einfaldlega til okkar fyllir út eyðublað, skrifar undir skilmála og lætur taka af sér mynd.“ Hvað þurfa fyrirsætur að bera til að komast í fremstu röð? „Ef stelpa eða strákur ætla sér á annað borð að ná langt í fyrirsætuheiminum þurfa þau fyrst og fremst að hafa bein í nefinu. Það eru margar fyrirsætur til í heiminum og margir um bitann þannig að viðkomandi þarf að hafa sterkann og ákveðinn persónuleika og þá er auðveldara að komast í fremstu röð.“ Hvað eru margar fyrirsætur á skrá hjá ykkur? „Við erum með um 30 til 40 fyrirsætur og að auki um það bil 20 new faces/ný andlit." Nú fer oft neikvætt orð af erlendum fyrirsætum. Þær taldar of grannar og slæmar fyrirmyndir fyrir ungar áhrifagjarnar stúlkur. Skiptir enn öllu máli að vera ekkert nema beinin eða er þetta að breytast? „Það eru tískusveiflur í öllu s.s. klæðnaði, hártísku, bílatísku o.s.frv. Það sama gildir um tískuheiminn sem fyrirsæturnar lifa í en hann kallar stanslaust á ný og öðruvísi andlit. Það er rétt að sýningartúlkurnar hafa þótt verulega grannar en það hefur sem betur fer verið að breytast. Hraustlegt útlit með jákvæðri útgeislun er alltaf eitthvað sem á eftir að tolla í tísku.“ Stúlkurnar eru stanslaust undir eftirliti Og er alltaf eitthvað að gera fyrir þær? „Það er mis mikið að gera fyrir fyrirsæturnar. Mest er að gera á sumrin hér á íslandi, þegar erlendir Ijósmyndarar koma hingað til lands til að vinna verkefni." Hvernig er þessi markaður hérna heima - er mikið af verkefnum? „Islenskar fyrirrsætur geta ekki lifað á því að vinna sem fyrirsætur hér á landi. Það er ekki markaður til þess. Þetta er því meiri aukavinna hérna heima og stóru vinningarnir koma erlendis frá.“ Fylgist þið grannt með ykkar fyrirsætum - að þær lendi ekki í neinu rugli eins og t.d. vímuefnaneyslu? „Já. Þær eru stanslaust undir eftirliti. Ef það vakna einhverjar grunsemdir hjá okkur um að fyrirsæturnar séu í einhverju rugli eða að beita óheilbrigðum og óskynsömum aðferðum til að grenna sig þá grípum við í taumana eins og skot.“ Hvað gerið þið ef það kemst upp að einhver sem starfar hjá ykkur sé í neyslu? „Ef við kæmumst að því að einhver væri í neyslu þá myndum við strax setja okkur inn í málið og reyna að aðstoða viðkomandi við það að koma sér út úr þeim vítahring." Hvernig er það þegar þið eruð að senda ungar stúlkur út - getur það ekki verið dálítið varasamt? „Við fylgjum ákveðnum reglum. Fyrirsæturnar okkar verða t.d. að vera orðnar 16 ára þegar þær fara út til að vinna. Við störfum með þekktum modelskrifstofum erlendis sem leggja metnað sinn í það að fyrirsætunum líði vel og allt sé á hreinu með starfsemi þeirra. Það er Því fylgst vel með þeim.” Hvetja stelpurnar til þess að sinna skólanum Hvernig er þessu þá háttað með stúlkur sem eru komnar af léttasta skeiði - er líkt farið með þeim og knattspyrnumönnunum sem þurfa að leggja skóna á hilluna rúmlega þrítugir? ’>Það má likja þessu pínulítið saman. Þess vegna höfum við hjá Eskimo alltaf hvatt stelpurnar til þess að sinna skólanum eins mikið og þær geta. Bæði svo þær 9eti haldið námi áfram þegar fer að hægja á verkefnum eða verið búnar að klára skólann og skellt sér beint á vinnumarkaðinn." Þannig að þið hlúið vel að ykkar stúlkum og fylgið þeim vel eftir hvort sem þær starfa hérna heima eða erlendis? „Já, það gerum við.“ Á ►/ ty ' I T)| SINDRAGÖTU ÍSAFIRÐI Sími: 456-3556 Krílið er staðurinn á ísafirði Þar sem þú þarft ekki út úr bílnum til að fá bestu pulsurnar, heitar /grillaðar. Samlokur kaldar og heitar. Grilluðu Sælubrauðin og Besta bitann. Emmess-ísinn, líka úrvél. Kaffi á brúsann eða í glasið. Úrval af sælgæti og gosi. Nætursala um helgar. Verið ávallt velkomin. Starfsfólkið í Krílinu.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.