Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.2003, Blaðsíða 18

Skinfaxi - 01.08.2003, Blaðsíða 18
Guðni Bergsson Knattspyrnukappinn Guðni Bergsson lagði skóna á hilluna eftir tveggja áratuga spark í boltanum nú í sumarbyrjun. Guðni sem varð 38 ára 21. júlí hefur eflst með hverju árinu sem hefur liðið og ekki hægt að sjá að aldurinn færist yfir. Hann hefur leikið með enska úrvalsdeildarliðinu Bolton undanfarin átta ár við góðan orðstýr en Guðni hefur hvað eftir annað unnið til fjölda einstaklingsverðlauna hjá félaginu m.a. verið kosinn leikmaður ársins oftar en einu sinni. Guðni lék sinn fyrsta meistaraflokksleik 17 ára með Val og hefur því verið lengi í boltanum. Það eru fimm vikur liðnar síðan Guðni lagði skóna á hilluna og blaðamanni lék forvitni á að vita hvort hann væri kominn með einhver timburmenni? - segir Guöni Bergsson sem hefur lagt knattspyrnuskóna á hilluna eftir glæstan feril Þetta var orðið alltof vandræðalegt Spennandi og skemmtilegt líf „Já, það má eiginlega segja það þó ekki sé liðinn langur tími síðan ég hætti. Þetta er einkennileg tilfinning og ég hef fundið fyrir henni fyrr en ég ætlaði. Ég er fyrst núna að átta mig á því að ég er ekki bara hérna heima í fríi heldur í ævilöngu fríi frá keppnisknattspyrnu. Það er dálítið undarlegt að átta sig á því að maður sé hættur í fótbolta. Ég vissi þó að það kæmi að þessu og auðvitað kemur smá tómarúm í kjölfarið er maður hættir í knatt- spyrnunni enda hefur hún gefið manni mikið. Þetta er náttúrulega geysilega spennandi og skemmti- legt líf á flestan hátt. Þannig að maður á eftir að sakna þess og kannski ekki síst að fá að hlaupa út á völl fyrir framan 30-50 þúsund áhorfendur. En svona er gangur lífsins. Maður getur ekki haldið áfram endalaust og ég tel mig hætt- a á góðum tima því við kláruðum mótið vel og ég skilaði mínu.“ Bolton lagði mikla áherslu á að halda þér áfram a.m.k. eitt ár til viðbótar. Hvað réð þeirri ákvörð- un að þú sagðir skilið við atvinnumennskuna? „Þetta var eiginlega orðið alltof vandræðalegt," segir hann glottandi. ,,í nokkur ár var fólk búið að reikna með að ég væri að hætta og á leiðinni heim. Ég gat ekki látið allt þetta fólk vera með endalausar vangaveltur hvað ég ætlaði að gera og ákvað því að hætta í eitt skipti fyrir öll,“ segir hann brosandi. ,,En í alvöru talað þá voru það í raun margir samverkandi þættir sem réðu því að ég tók þessa ákvörðun núna. Ég fann að það var orðið erfiðara að komast í gegnum þetta og líkaminn var farinn að kvarta. Ég var búinn að taka bólgueyðandi og verkjastillandi töflur í nokkur ár og undir það síðasta var ég farinn að fá sprautur fyrir leiki. Ég hafði svo sem engar stórar áhyggjur af þessu en líkaminn var farinn að bera þess merki að þetta væri að verða nóg. Það tók mikið á að komast í gegnum leik og yfirleitt var ég 2-3 daga að jafna mig eftir leikina. Ég hafði auk þess sett mér þau viðmið að hætta undir þeim kringumstæðum að ég væri sáttur við mitt leikform og mína spilamennsku. Mér fannst ef ég mundi halda áfram þá mundi ég eiga á hættu að meiðast og lenda í vand- ræðum með leikformið. Ég vildi síður hætta á þann hátt. En það sem hafði úrslitaáhrif á ákvörðun mína var fjölskyldan. Það eru þrjú ár síðan ég hugsaði fyrst um að fara heim og þá flutti fjölskyldan heim til íslands. Ég hef því verið að hætta í þrjú ár og þetta var orðinn langur tími í viðskilnað frá fjölskyldunni þótt við hefðum náð að vera saman í kannski hálft ár á hverju ári. Þegar ég tók þetta allt saman taldi ég þetta vera góðan tíma til að taka föggur mínar og fara heim.“ Hafnaði tiiboði upp á hundruð milljóna En þér var boðinn nýr samningur og maður getur ímyndað sér að þú hafir verið með 140-170 milljónir í árstekjur. Var ekki erfitt að segja nei við þessum „krónum"? ,,Auð- vitað viðurkenni ég að það hafi verið miklir peningar í boði. Það er óneitanlega dálítið skrítið að hafna samningi þar sem slíkar upp- hæðir eru á borðinu. Peningar spila stóra rullu í atvinnumennskunni og i kringum þennan Ijóma sem atvinnumennskunni fylgir. En ég er reyndar búinn að vera lengi í þessu og er því orðinn ágætlega stæður. Ég get því kannski sagt eins og þeir sem eiga eitthvað af peningum að þeir séu ekki allt. Ég á kannski eitthvað að þeim og a.m.k. nóg til að geta staðið nokkuð traustum fótum fjárhagslega. Ég ætti því að geta sinnt mér og mínum það sem eftir er. Ég lét því ekki peningana hafa áhrif á ákvörðun mína.“ Það sem er kannski dálítið furðulegt við þinn feril er að þú ert að spila þín bestu ár kominn vel yfir þrítugt og þú efldist í raun með hverju árinu sem leið. Hefur þú aldrei verið í jafn góðu formi og undanfarin ár eða

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.