Skinfaxi - 01.08.2005, Blaðsíða 5
Samverustundir barna 09 Joreldra shipta mdli
Börnin eru það dýrmætasta sem
við eigum, við umvefjum þau ást,
veitum þeim öryggi og kappkost-
um að koma þeim til manns. A
þessari göngu er auðvelt að mis-
stíga sig. Foreldrar verða að vera
á varðbergi og mega í raun aldrei
sofna á verðinum, því að þá getur
illa farið.Aðgengi að stórhættuleg-
um vímuefnum er mun meira og
opnara en áður og sölumenn þess-
ara efna svífast einskis í að ota
þeim að unglingunum. Unglingar
eru vænlegasti markaðshópurinn
fyrirýmsan varning sem hellist
yfir á degi hverjum í fjölmiðlum
og þá ekki síst á Netinu. Eins og
heimurinn er í dag verða unglingar
stöðugt fyrir áreiti vegna alls kon-
ar gylliboða. Það getur því verið
erfitt fyrir foreldra að feta hinn
gullna meðalveg og átta sig á því
hvað sé best fyrir barnið.
Ti'minn, sem foreldrar verja
með börnunum si'num, skiptir
miklu máli en íhinu hraða samfé-
lagi nútímans hafa samverustundir
við börnin minnkað. Kröfurnar;
sem gerðar eru til alls í dag, taka
sinn toll og fyrir vikið verður
tíminn minni eða alls enginn fyrir
fjölskylduna til að ræða saman.
Það eitt fyrir foreldra að eiga
góða stund með börnunum, ræða
saman og taka á vandamálunum,
getur skipt sköpum. Góð og sterk
samskipti á milli foreldris og barns
eru geysilega mikilvæg. Þau skapa
öryggiskennd fyrir báða aðila, þá
ekki síst fyrir barnið, sem eflir það
og gerir það sterkt til að takast á
við li'fið. Foreldrar verða, þrátt fyrir
mikið vinnuálag, að áætla einhvern
tíma með börnunum sínum. Þetta
er tími sem kemur aldrei til baka
og því afar brýnt að fara vel með
hann og skipuleggja vel.
I allri umræðunni um unglinga
hafa forvarnir líklega aldrei skipað
stærra hlutverk en einmitt nú um
stundin Rannsóknir hér innanlands
og erlendis staðfesta að þátttaka
barna og unglinga í i'þróttum og
öðru tómstundastarfi skiptir gríð-
arlega miklu máli. Hún eflir börn
og unglinga í alla staði, í námi og í
öðru sem þau taka sér fyrir hend-
ur Fyrst að íþróttaiðkun skiptir
svona miklu máli verður aðgengi
að þeim að vera jafnt fyrir alla.
Kostnaður barna og unglinga í
íþrótta- og tómstundastarfi getur
verið stór biti fýrir fjölskyldu þar
sem tekjur eru ekki miklar. Það
vita flestir; sem eru kannski með
nokkur börn í iþróttum á sama
tíma, að það getur kostað sitt og
þessi útgjöld hafa verið að hækka
hin síðustu ár
íþróttir hafa mikið forvarna-
gildi og þegar upp er staðið hlýtur
það að skipta samfélagið miklu
máli. Nokkur sveitarfélög hafa
sýnt lofsvert framtak með því að
styrkja þátttöku barna og unglinga
með ákveðinni upphæð. Það
hljóta samt sem áður að vera sjálf-
sögð réttindi að börn og unglingar
eigi greiða leið til að stunda íþrótt-
ir án tillits til efnahags foreldra og
forráðamanna.
Hverníg d ég oii bregðast i ef Mii mitt lendir í wM
Ef þig grunar að barnið þitt
misnoti vímuefni er mikilvægt að
bregðast rétt við. Það er eðlilegt
að finna til vanmáttarkenndar og
hræðslu, en ífæstum tilfellum er
barnið í bráðri lífshættu.
Haltu ró þinni og ekki ráð-
ast á barnið með ásökunum og
æsingi þvf að þá missir þú traust
þess.
Ekki sökkva þér niður í sjálfs-
ásökun. Það þarf ekki að vera að
þú hafir brugðist í foreldrahlut-
verkinu.
Aflaðu þér upplýsinga um vímu-
efni. Þær má finna á bókasöfnum,
á Netinu, hjá forvarnaraðilum og
heilbrigðisaðilum.
Þekktu vini barnsins þíns.
Vinahópur, lífsstíll og áhugamál
barnsins segja mikið um líkurnar á
vímuefnamisnotkun.
Hafðu samband við aðra for-
eldra sem eru í svipaðri stöðu.
Reynsla þeirra getur hjálpað mjög
mikið.
SaíwnmnMíiS
pr
Iþróttaiðkun og félagslegur
oski skilar sér alla leið
þrosk
Ritstjórí:
Jón Kristján Sigurðsson,
jonkristjan@umfi.is
Ljósmyndir:
Jón Kristján Sigurðsson.Jónas
Erlendsson
Umbrot og hönnun:
Jóhann Páll Kristbjörnsson,
Prentun:
Prentmet.
Prófarkalestur:
Helgi Magnússon.
Auglýsingar:
PSN samskipti ehf. og Gunnar
Bender
Ábyrgðarmaður:
Björn B.Jónsson.formaður UMFI.
Ritstjórn:
Anna R. Möller, Sigurlaug Ragnars-
dóttir; Birgir Gunnlaugsson, Ester
Jónsdóttir
Þjónustumiðstöð UMFÍ:
Fellsmúla 26 - 108 Reykjavík.
Sími 568-2929.
Netfang: umfi@umfi.is.
Heimasíða: www.umfi.is
Starfsmenn:
Sæmundur Runólfsson fram-
kvæmdastjóri.Valdimar Gunn-
arsson landsfulltrúi, Ómar Bragi
Stefánsson landsfulltrúi með
aðsetur á Sauðárkróki, Hafdís
Ranfsdóttir ritari, Þóra Kristinsdótt-
ir bókhald, Jón Kristján Sigurðsson
ritstjóri Skinfaxa og kynningar- og
upplýsingafulltrúi.SvavaBjörnsdótt-
ir Blátt áfram.
SKINFAXI - gefiö út samfleytt síöan 1909 |