Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.2005, Blaðsíða 27

Skinfaxi - 01.08.2005, Blaðsíða 27
 Vestnordisk Ungdomsforum, sem UMFÍ er aðili að, stóð fyrir nám- skeiði í kvikmyndaleik á Isafirði dagana 15. til 22. júní í sumar Á námskeiðið komu 15 ungmenni, 5 frá hverju vestur-norðurlandanna, íslandi, Færeyjum og Grænlandi. Skemmst er frá því að segja að námskeiðið gekk vonum framar og þátttakendur sem og aðstandendur voru yfir sig ánægð- ir með árangurinn. Námskeiðið fór þannig fram að Hilmar Oddsson kvikmyndaleik- stjóri kenndi kvikmyndaleik með aðstoð nokkurra tæknimanna sem hjálpuðu til við að búa til myndina The Wedding. Ummæli eins þátttakandans frá Færeyjum segja sína sögu um hrifninguna vegna námskeiðsins. „Bravó, takk fyrir frábært nám- skeið.” Annar var svo yfir sig hrif- inn að hann ætlar að hefja nám í kvikmyndaleik við Listaháskóla íslands í haust. Fyrir námskeiðið stóð það ekki til. SKINFAXI - gefið út samfieytt síðan 1909 ]J

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.