Skinfaxi - 01.08.2005, Side 7
árangri, lærði að standa sig og
takast á við álag sem hann hafði
ekki kunnað áður Með þessu sýn-
ir einstaklingurinn að hann getur
öðlast mjög fjölþærtta reynslu úr
íþróttunum.
Ymsir menn hafa gagnrýnt
þessar rannsóknir og benda á að
krakkan sem koma frá góðum
heimilum, fari gjarnan í íþróttir.
„Það var ekki þannig í okkar
rannsóknum, heldur hitt, að það
að taka þátt í íþróttum hjálpaði
þeim krökkum mest sem stóðu
höllum fæti í lífinu að öðru leyti.
Þetta voru því ekki rökin. Síðan
hefur umhverfið breyst töluvert
og núna á síðustu árum hefur
tvennt tekið áberandi breytingum.
Foreldrar með nám að baki leggja
áherslu á að börnin sín fari í
íþróttin Fólk er farið að líta á þetta
sem hluta af góðu uppeldi og fyrir
vikið breytist þessi mynd örlítið.
Hitt, sem hefur verið gerast á
síðustu árum, er að það er orðið
dýrt að taka þátt í íþróttum. Þess
sjást merki að útgerðarkostn-
aður hjá foreldrum, sem standa
kannski höllum fæti efnahagslega,
hefur aukist til muna. Fyrir þessa
foreldra er það orðinn verulegur
kostnaður að halda úti 2-3 börn-
um í íþróttum,” segir Þórólfun
- Hvað fmnst þér sjálfum um þessa
breytingu?
„Eg er mjög óánægður með þessa
þróun mála vegna þess að allt
gott tómstundastarf hjálpar oft
þessum krökkum mest. Þau þurfa
mest á því að halda að taka þátt í
tómstundastarfi í einhverri mynd
og hvað þetta varðar hefur orðið
pínulítið bakslag. Ég er ánægður
með hvernig nágrannasveitarfé-
lögin eru í meira mæli að greiða
niður kostnaðinn við íþróttaiðkan-
in Mér finnst uppbyggingin í Kópa-
vogi, Hafnarfirði og nú í Garðabæ
vera til fyrirmyndan Það er miklu
ódýrara til lengri tíma litið fyrir
okkur að búa vel að börnum og
unglingum og hluti af því er að
bjóða þeim upp á hollt og gott
tómstundastarf. Iþróttirnar geta
verið þar til fyrirmyndan Ég vil líka
breyta þessu aðeins þannig að
samstarfið á milli skóla og i'þrótta-
félaga verði meira en áður. Skól-
arnir viðurkenna þetta starf að
einhverju leyti og að íþróttafélögin
viðurkenni líka skólana og lagi sig
eins og þau geta að því sem er að
gerast þar," segir Þórlindur.
I umræðunni er að menn geri
langtímarannsóknir til að átta sig á
hvort að íþróttirnar komi á undan
námsárangrinum. Þórólfur segir
að nú þegar séu til í Bandarikjun-
um nokkrar góðar rannsóknir í
þessum efnum. Þær sýna allar hið
sama, það að taka þátt í íþróttum
leiðir til betri námsárangurs þegar
tímar líða.
„Ég hef séð það í síðustu rann-
sóknum mínum að farið að bera
á því að sumir krakkar í 10. bekk
æfa ofsalega marga tíma á viku. I
sumum greinum er mikið álag, allt
að 20-25 tímar í viku, og þarna
fer að verða bakslag. I þessum til-
fellum er álagið orðið allt of mikið,
árekstrar verða við heimanámið,
og einkunnirnar fara niðurVið get-
um tekið dæmi eins og sund þar
sem krakkarnir eru ungir að æfa
mikið, þar sem stundum þarf að
æfa á morgnana og á kvöldin.
Mín skoðun er sú að það
þurfi að huga betur að því núna,
meira en nokkru sinni fyrr; að
tengja skólana og íþróttastarfið
betur saman.Við vitum það öll
að til að takast á við nútímann í
dag, með öllum þeim áreitum og
álagi sem á krökkunum er, það er
bara hörkuvinna. Það að hreyfa
sig og vera í góðu líkamlegu formi
hjálpar krökkunum að takast á
við umhverfið,” segir Þórólfur
Þórlindsson.
Mikið úrval af bikurum
og verðlaunapeningum
Verið velkomin í verslun
okkar að Síðumúla 17
eða hafið samband í
síma 588-3244
Fax 588-3246
email: isspor@simnet.is
Framleiðum barmmerki
í öllum stærðum og
gerðum