Skinfaxi - 01.08.2005, Blaðsíða 8
1
Mjög góður árangur hefur náðst í baráttunni gegn einelti á Islandi. Þessi
árangur hefur vakið athygli um allan heim en kannanir hafa leitt í Ijós að í
kringum 4500 nemenduraf 45 þúsundum í grunnskólum landsins eru lagðir
í einelti
að vinna samkvæmt því eftir nið-
urstöðum í hverjum skóla fyrir sig.
Að mati Þorláks er mikilvægt að
allir starfsmenn skólanna komi að
þessari vinnu því að einelti þrífst í
skólunum.
„Eftir 2006 verðum við
komnir með 2/3 af grunnskól-
um landsins. Þetta fjallar fyrst og
fremst um líðan barnanna en við
erum að segja að barn, sem kem-
ur í skólann á mánudegi, á ekki að
líða fyrir ótta alla vikuna. Kannanir
hafa leitt í Ijós að í kringum 450Q
nemendur af 45 þúsundum í
grunnskólum landsins eru lagðir í
einelti. Það eru ekki einungis þol-
endurnir sem eru í hættu heldur
einnig gerendurnin Það er nefni-
lega mikil hætta á því að þeir lenti
íverulegum vandræðum á seinni
stigum. Það getur komið fram í
hegðunarvanda og afbrotum af
öllu tagi og þessir einstaklingar eru
komnir á sakaskrá langt um fram
meðaltalið. Þetta er á báða bóga
og því afar brýnt að foreldrar séu
á varðbergi,” segir Þorlákur.
- Hvað getur þú sagt okkur um
árangurinn til þessa?
„Eftir fyrsta árið hafði einelti
dregist saman um þriðjung og þá
alveg sérstaklega á unglingastiginu
sem er mjög gott. Þessi árangur
hefur vakið heimsathygli en það
sama hefur ekki gerst í Noregi og
á heimsvísu. Ég vil hrósa skólun-
um, því að þeir eru að ná árangri
á unglingastiginu sem ekki hefur
tekist annars staðar Þessi áætlun
þarf að vera þannig ræktuð að
sama rödd sé í skólanum og á
heimilunum. Iþróttahreyfingin þarf
líka að taka sér tak og átta sig á
því hvers konar mórall er í gangi.
Því að eftir því sem ofbeldi eykst í
íþróttunum verður hættan meiri
á því að þátttakendur þar fari að
leggja aðra i' einelti.”
- Þegar þú lítur til baka, finnst þér
þá áætlunin hafa náð því markmiði
sem henni var ætlað?
„Já, við erum alveg í skýjun-
um með hvernigtil hefurtekist.
Það þarf að rækta skólana betur
en við höfum til þessa ekki haft
fjárhagslegan grundvöll til þess.
Þeir skólar sem eru raunverulega
inni í verkefninu eru að ná glimr-
andi árangri. Heilt yfir línuna þá
er árangurinn mjög góður en við
viljum auðvitað gera enn betur, Ef
allir skólar í landinu væru með í
Olweusverkefninu væru þúsund
börn að losna við einelti sem þau
annars myndu verða fyrir. Það má
segja að þessu verkefni Ijúki aldrei
og því verði haldið gangandi um
ókomin án” segir Þorlákur Helga-
son, framkvæmdastjóri Olweus-
verkefnisins á Islandi.
Framkvæmdastjóri Olwesuarverkefnisins
á Islandi er Þorlákur H. Helgason.
Framkvæmdastjóri Olweusverk-
efnisins á Islandi er Þorlákur H.
Helgason. Olweusarverkefnið er
samstarfsverkefni menntamála-
ráðuneytisins, Kennarasambands
Islands, Sambands íslenskra
sveitarfélaga, Heimilis og skóla og
með stuðningi Kennaraháskóla
Islands. Astæðan fyrir því því að
verkefninu var ýtt úr vör hér á
landi er sú að sögn Þorláks að
á árunum 1998-1999 var gerð
könnun á einelti í skólum af RUN,
Rannsóknastofnun upplýsinga- og
menntamála eins og hún hét þá,
en í dag Námsmatsstofnun.
„Ráðherra menntamála vildi
í framhaldinu koma af stað hópi
sem ætti að leggja fram tillögur
Við lögðum til að farið yrði í
þessa áætlun og fetuðum þannig í
fótspor Norðmanna en ríkisstjórn-
in þar í landi hafði þá boðið öllum
skólum að fara í Olweusáætlunina.
Svarið við spurningunni af
hverju var af stað með Olweus á
Islandi er ósköp einfalt Ástæð-
an er sú að Dan Olweus er
langþekktasti eineltisprófessorinn.
Hann rannsakaði einelti strax í
kringum 1970, fyrst í Stokkhólmi
en fluttist síðan til Noregs.Við
erum í nánu sambandi við stofnun
hans í Bergen og ég er í rauninni
hluti af hópnum sem kallast Ol-
weushópurinn í Bergen.Við fórum
si'ðan af stað hér 2002 en verkefn-
ið gengur í stuttu máli út á það
að allur skólinn er lagður undir
og næsta verkefni er að fara í leik-
skólana sem eru að vísu nú þegar
aðeins farnir af stað. Framhalds-
skólinn hundsar það að einelti eigi
sér stað en staðreyndin er samt
sú að ef 15-16 ára unglingar eru
lagðir í einelti á það sér sögu aftur
í tímann,” segir Þorlákur
Olweusverkefnið hófst eins
og áður kom fram árið 2002 hér
á landi með rannsókn á öllum
krökkum sem tóku þátt í verkefn-
inu, fyrst í 4,-10. bekk. Unnið er
með krökkunum neðan úr I. bekk
og öllum starfsmönnum skólanna
en könnunin sem slík er ekki
unnin nema fyrir nemendur úr
4,-10. bekk. Eitt skylduverkefnið í
Olweusáætluninni er að vera með
risakönnun einu sinni á ári sem
gefur góða mynd af því hvernig
ástandið er i' skólanum. Þá er hægt
Einelti:
Með eineltisáætlun í skólum, sem allir starfsmenn taka þátt í, dregur
ekki bara úr einelti. Skemmdarverkum, hnupli og skrópum fækkar.
Bekkjarandinn verður betri og nemendum líður betur
Miklar væntingar eru bundnar við Olweusáætlunina enda leiddu
markviss vinnubrögð í skólunum sem hófu þátttöku 2002 til þess að
það dró úr einelti um rúmlega þriðjung þegar eftir aðeins árs vinnu
í aðgerðaráætluninni. Með eineltisáætluninni er verið að endurskapa
félagslegt kerfi skólanna. Hvað skiptir hér máli?
SKINFAXI - tímorit Ungmennafélags ísiands