Skinfaxi - 01.08.2005, Qupperneq 12
Vímuvarnaviha 200$ -17. - 2). október:
Guðni R. Björnsson sér um upplýsingar, útgáfau og ráðgjöf hjá Fræðslumiðstöð í flknivörnum.
Nú stendur yfir undirbúningur
vegnaVímuvarnaviku 2005 sem
verður dagana 17. - 23. október
nk. Sem fyrr stendur Samstarfsráð
um forvarnir, sem er samstarfsvett-
vangur forvarnasamtaka á Islandi,
fyrirVímuvarnavikunni, en að
undirbúningi koma einnig íþrótta-
og æskulýðshreyfingar og frjálsar
almenningshreyfingar í landinu
ásamt stofnunum og fyrirtækj-
um. Undirbúningur er í höndum
fulltrúa þessara aðila og sem fyrr
er athyglinni beint að börnum og
forvarnastarfi.
YfirskriftVímuvarnaviku 2005
er „Byrjunaraldur - hvað er í húfi?"
Athyglinni verður beint að afleið-
ingum fíkniefnaneyslu, líkamlegum
og félagslegum og kynntar verða
niðurstöður nýrra rannsókna um
áhrif fíkniefna á líkamann.
„Forvarnasamtök, sem eru
starfandi í dag, bundust samtökum
og stofnuðu samstarfsvettvang
sem ber heitið Samstarfsráð um
forvarnir. Ráðið varð til fyrir þrem-
urárum.Verkefni þess er í raun
veru að búa til vettvang til að
vinna að verkefni í forvörnum. Ut
úr þeirri fyrstu vinnu varð til hug-
mynd um að helga þessu málefni
eina viku á hverju ári. I ár erum
við með nálgunina „Byrjunaraldur
- hvað er í húfi?” Að undirbúningi
verkefnisins koma ýmis samtök í
landinu, íþrótta- og forvarnahreyf-
ingin, skátarnir UMFI, Kvenfélaga-
samband Islands, FHeimili og skóli,
öll foreldrasamtökin og fleiri
aðilar Saman höfum við verið að
undirbúa þessa viku og útbúið
dagskrá sem stendur yfir dagana
17.-22. októbeþ’ sagði Guðni R.
Björnsson hjá Fræðslumiðstöð í
fiknivörnum.
Guðni segir að í þessari
dagskrá sé verið að koma upplýs-
ingum til almennings og fagfólks
um skaðsemina. Hún er fyrst og
fremst af tvennum toga, annars
vegar líffræðileg og hins vegar
félagsleg. Ofan á allt þetta erum
við með herferð í gangi þar sem
unglingar beina orðum sínum að
unglingum og út í samfélagið undir
orðunum: „Eg ætla að bíða.”
- Hvað fmnst þér hafa áunnist í
forvarnastarfi á síðustu árum?
„Það hefur ofsalega mikið
breyst. Það á ekki bara við um
Island heldur einnig löndin í
kringum okkur Það má segja að
Island hefur aldrei verið í vondum
málum miðað við aðrar þjóðir
Við höfum drukkið minnst og hér
hefur verið minnsta dópið um
áratugi. Hins vegar hefur orðið
sú breyting eins og víða annars
staðar að áfengisneysla hefur
stóraukist hér á landi. Það er það
neikvæða og afleiðingar þess eru
augljósarVið erum aftur á móti
að taka vel til f uppeldismálum og
þar hefur orðið bylting á sfðustu
10-15 árum. Iþrótta- og sveitar-
félög hafa eflst í starfi sínu sem
síðan skilar sér í beittari forvörn-
um. Þetta er gleðileg þróun sem
alls ekki má slakna á, hún virkar og
að því leyti að við höldum betur
utan um börnin okkar Sá áróður
sem fór í gang í kringum 1990 er
að skila sér margfalt til baka. Það
eru margir jákvæðir hlutir í gangi.
Við verðum samt alltaf að halda
vöku okkar og þessari baráttu
lýkur f raun aldrei," segir Guðni
R. Björnsson hjá Fræðslumiðstöð í
fiknivörnum.
Dregið hefur úr neyslu sterhs dfengis
Dregið hefur úr neyslu sterks áfengis á Islandi. Hún hefur aukist í Danmörku, Noregi og Finnlandi en verið
fremur stöðug í Svíþjóð fram til ársins 2004, en þá dró heldur úr neyslu sterks áfengis þar. Þá hefur neysla
á vi'ni aukist og eru Danir þar efstir á listanum, með að meðaltali 4,4 áfengislítra á mann en íslendingar
neðstir; með 1,38 lítra. Fram kemur í skýrslunni að sala á víni hefur aukist um 62% á Islandi frá árinu 1998.
Aukningin var heldur minni á hinum Norðurlöndunum.
Athygli vekur að heldur hefur dregið úr neyslu á bjór á hinum Norðurlöndunum; i' Danmörku úr 145
lítrum (1993) í I 10 lítra (2004) á mann, Finnlandi úr 105 lítrum (1993) í 99 lítra (2004) og Svíþjóð úr 63
lítrum (1993) í 57 li'tra (2004). A sama tíma hefur neysla á bjór aukist á Islandi þar sem neyslan á árunum
1993 til 2003 fór úr 30 lítrum í 67 lítra á mann, 15 ára og eldri.
|| SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands