Skinfaxi - 01.08.2005, Side 14
■
Hreyfmg af öllu tagi er nauðsynlegur þáttur í lífi barna og unglingc
UMFI fékk dr: Hermund Sigmunds-
son híngað til lands í sumar til
að fl/tja fyrirlestur um mikilvægi
íþrótta á líkamlega, andlega og
félagslega heilsu barna og unglinga.
Hermundur fór víða um land og
voru langflestir fyrirlestrarnir vel
sóttir enda mjög athyglisvert efni
hér á ferð. Fyrirlestrarnir voru
öllum opnir en sérstaklega ætlaðir
foreldrum, þjálfurum, kennurum
og leikskólakennurum.
Hermundur Sigmundsson
varð doktor árið 1998 frá Norska
tækni- og vísindaháskólanum
(NTNU) í Þrándheimi. Hermund-
ur er nú prófessor við þennan
skóla. Hann hefur m.a. rannsakað
börn með hreyfivandamál, les-
blindu og erfiðleika í stærðfræði-
námi og birt rannsóknir í virtum
tímaritum eins og Experimental
Brain Research, Behavioural Brain
Research og Developmental Med-
icine and Child Neurology. Hann
hugsar sér til hreyfings á næsta
ári en hann hefur fengið stöðu
prófessors í lífeðlislegri sálarfræði
við Háskólann á Akureyri og
mun hefja störf við skólann næsta
haust.
Hermundur segist oft velta
því fyrir sér hvað verði um börn
og unglinga í þjóðfélaginu sem
eiga við hreyfiþroskavandamál
að stríða. Skoða verði einnig þá
einstaklinga sem öðlast eðlilegan
þroska og eru með í öllu, i'þrótt-
um og annarri félagslegri starfsemi.
Hvaða munur er á þessum ein-
staklingum og þeim sem eru með
hreyfiþroskavandamál og þroskast
ekki á eðlilegan hátt?
„Það vill fara svo að börn,
sem eru með hreyfiþroskavanda-
mál.taka alla jafna ekki þátt í
íþróttum og verða þannig út
undan og eru ekki með í þeirri
starfsemi sem getur aukið félags-
legan þroska þeirra.Við verðum
af öllum mætti að komast að því
hvaða mismunandi svið í þjóðfélag-
inu geta komið til móts við þessa
einstaklinga, eins og heimilið, um-
hverfið, skólarnir íþróttastarfsemin
og leikskólarnir Hinum, sem eru
með í öllu, gengur vel í skóla og
þau hafa sterkt félagslegt bakland.
Spurningin er hins vegar hvernig
við getum fengið fleiri einstaklinga
til að vera með,” segir Hermundur
- Nú liggja margar rannsóknir að
baki í þessum efnum. Hverjar eru
niðurstöðurnar?
„Iþróttaiðkun af öllu tagi og
sterkur félagslegur þroski skila
sér alla leið og efla þá sem njóta
þessa á allan hátt. Heilsufar þeirra
er einnig mun betra en hinna,
niðurstöður rannsókna sýna þetta
ótvírætt.Við megum ekki gleyma
andlegri líðan í þessari umræðu,