Skinfaxi - 01.08.2005, Page 18
Forvarnir hjd Bldtt dfram:
Vegna vanþekkingar almennings á
vandanum bregst fólk við kynferð-
islegu ofbeldi fyrst og fremst með
reiði, vantrú og þá afneitun. Þessi
viðbrögð eru okkur eðlileg þegar
við höfum ekki aflað okkur nægra
upplýsinga til þess að geta horfst í
augu við vandann, okkur líður ekki
vel og við teljum að við getum
sjálf ekkert gert við vandanum.
Hjá Blátt áfram er aðalmarkmið-
ið að styðja fólk til að leita sér
hjálpar og fræða almenning. Þá er
sérstaklega um að ræða þá sem
vinna með börnunum okkar; að
þeir afli sér upplýsinga um vand-
ann, sem við getum flest verið
sammála um á þessu stigi málsins
að sé til staðar Einnig að styrkja
landsmenn í vitneskju um hvað
þeir sem einstaklingar geta gert til
þess að breyta og taka ábyrgð á
þessum samfélagsvanda.
Starf Blátt áfram í vetur felst í
að bjóða upp á fræðslu fyrir alla.
Fyrir börnin, hvernig þau geta
varið sig eða leitað sér hjálpar; og
fyrir foreldra og aðra fullorðna
sem bera ábyrgð á börnum og
unglingum.Verkefnið hvetur þá
sem eru í forsvari fyrir félög og
stofnanir að hafa samband til að
kynna sér nánar hvað er í boði
eða fara á www.blattafram.is
A meðan boðið er upp á
fræðslu fyrir landsmenn er líka
verið að gera ýmislegt skemmti-
legt. Þann 6. október verða haldnir
styrktartónleikar fyrir Blátt áfram
á Gauki á Stöng. Þar munu koma
fram m.a. Ragnheiður Gröndal,
Buff, Ske, Hera, Lokbrá, Hot
Damn, Smack, Solid iv og Mínus.
Blátt áfram finnst þessir tón-
listamenn vera að taka
persónulega ábyrgð á því
að breyta hvernig við fjöll-
um um kynferðisofbeldi.
Vonast er til þess að ná
til ungs fólks í leiðinni og
hvetja það til að leita sér
hjálpar.
I lok október mun
Blátt áfram taka þátt í
kvikmyndahátíðinni með
myndina Searching for
Angela Shelton. Mynd
þessi var sýnd hér fyrir
nokkrum árum en þá
komust ekki eins margir
að og vildu og varð að
vísa fólki frá.Verið er að athuga
hvort Angela Shelton komist á
hátíðina en staðfesting þess efnis
hefur ekki borist enn. Shelton
hefur fengið margar viðurkenn-
ingar fyrir myndina og framganga
hennar hefur hvatt marga til að
koma fram og segja frá. Einnig er
verið að undirbúa auglýsingaher-
ferð fyrir fjölmiðla sem er ekki
búið að dagsetja en verður líklega
ekki hrundið af stað fyrr en eftir
áramót. Ágóða af tónleikunum
verður varið í að standa straum
af auglýsingum sem verða birtar í
sjónvarpi og blöðum.
Blátt áfram vill þakka þeim
mörgu aðilum sem hafa lagt
verkefninu lið og styrkt það frá
upphafi. Blátt áfram er styrkt að
mestu leyti með framlögum frá
fyrirtækjum og einstaklingum en
einnig hafa fjögur ráðuneyti stutt
okkur fjárhagslega. Nú á dögunum
fékk verkefnið veglegan styrk úr
samfélagssjóði Alcan. Listinn yfir
þá sem hafa styrkt Blátt áfram
er orðinn langur og er hann á
heimasíðunni www.blattafram.is.
Landsmenn hafa með stuðningi
við verkefnið sýnt vilja til að koma
á breytingum og sýna börnum
okkar að við erum að rjúfa þögn-
ina sem kynferðisofbeldi þn'fst í.
Nemendur úr Álftanesskóla og Dalvíkurskóla dvöldu að Laugum fýrir skemmstu. Þar
hlustuðu þeir á fyrirlestur hjá Svövu Björnsdóttur frá Blátt áfram.
Hrannar Pétursson, upplýsingaf ulltrúi Alcnn d íslandi:
Bldtt dfram hefur unnið hraftaverk
Við hjá Alcan erum stolt af því að leggja þessu merkilega verkefni lið.
Aðstandendur Blátt áfram hafa að okkar mati unnið kraftaverk og vakið fólk til umhugsunar um þessi
viðkvæmu mál sem hafa lítið verið rædd hingað til.
Nú í haust fengu rúmlega 50 verkefni styrk úr Samfélagssjóði Alcan, en
Blátt áfram var annað tveggja verkefna sem fékk hæsta styrkinn og það segir allt um það hvaða augum við
li'tum verkefnið.