Skinfaxi - 01.08.2005, Blaðsíða 20
Fjölsmiðjan
er líka þjálfun-
ar- og endurhæf-
ingarstaður fyrir
ungt fólk, sem
þarf undirbúning
fyrir frekara nám
eða störf. Þetta
er ekki meðferð-
arstofnun, en á að vera hentugur
vinnustaður fyrir ungt fólk. Það
getur skipt um verkdeild eftir að
það hefur störf, í samráði við sinn
deildarstjóra, ef því sýnist önnur
deild áhugaverðari en sú er það
valdi í upphafi. Framleiðsla og þjón-
usta Fjölsmiðjunnar verður seld
á markaði og eiga tekjurnar að
standa undir hluta af þeim kostn-
aði sem hlýst af rekstri hennar
Hinn I. júlí 2001 var Þorbjörn
Jensson, fyrrverandi landsliðsþjálf-
ari í handknattleik og rafvirki,
ráðinn forstöðumaður Fjölsmiðj-
unnar og í september sama ár
var tekin á leigu 500 fermetra
óinnréttuð hæð í vinnustofum hjá
Landsspítala - háskólasjúkrahúsi,
að Kópavogsbraut 5-7. Fyrsta
deildin, trésmíðadeild, tók til starfa
í október undir verkstjórn Svavars
Jónssonar húsasmíðameistara.
„Markmiðið með starfsem-
inni hér er að krakkarnir takist
á við vinnumarkaðinn eða hefji
skólagöngu á nýjan leik. Hingað
koma krakkarnir og sækja um
eins og um vinnu væri að ræða.
Við starfrækjum nokkrar deildir
og ennfremur bjóðum við upp
á kennslu. Krakkarnir fá ákveðna
þjálfun, vinna vinnuna sína, mæta
á réttum tíma og lynda við vinnu-
félagana. Þeir sem ekki hafa enn
lokið námi í 10. bekk getað tekist
á við námið hér og lokið því si'ðan
með prófi í gegnum Námsflokka
Reykjavíkur Það er misjafnt hvað
þau eru lengi hér en meðaltíminn
er í kringum 6-8 mánuðir;” sagði
Þorbjörn Jensson, forstöðumaður
Fjölsmiðjunnar
- Hvernig fmnst þér hafa tekist á
þeim fjórum árum sem Fjölsmiðjan
hefur verið í rekstri?
„Heilt yfir hefur þetta gengið
mjög vel. Reynslan segir okkur að
80% krakkanna sem fara héðan
hasla sér völl í námi eða úti á hin-
um almenna vinnumarkaði. Hér
í gegn hafa farið um 250 manns
en við reynum að vera með um
50 krakka í hvert sinn á aldrinum
16-24 ára. Leiðbeinendur eru 8
talsins,” sagði Þorbjörn.
Að sögn Þorbjörns var
virkileg þörf á að koma þessari
starfsemi á fót og yfirleitt væru
biðlistan eftirspurnin væri slík.
„Menntamálaráðherra kom
í heimsókn til okkar á dögunum
en ráðuneytið er alltaf að koma
meira inn í þessa starfsemi. Þor-
gerður Katrín var mjög ánægð yfir
að við værum að finna þessum
hópi verkefni og fræðslu sem
reyndar var nokkuð útundan áður
en Fjölsmiðjan kom til."
Vinnutími í Fjölsmiðjunni er
frá kl. 8:30 til 15:00 virka daga.
Nemar og starfsfólk fá keyptan
morgunverð, hádegisverð og síð-
degiskaffi frá eldhúsi Fjölsmiðjunn-
ar á hóflegu verði.
Fjölsmiðjan var formlega
stofnuð 15. mars árið 2001.
Stofnendur eru Félagsmálaráðu-
neytið/Vinnumálastofnun, Rauði
kross Islands, Reykjavíkurborg,
Hafnarfjarðarbær, Kópavogsbær;
Seltjarnarnesbær; Mosfellsbær;
Garðabær og Bessastaðahreppur.
Menntamálaráðuneytið hefureinn-
ig stuðlað að stofnun Fjölsmiðjunn-
ar og á fulltrúa í stjórn hennar
Fjölsmiðjan greiðir öllum
nemum fyrir störf þeirra, en fær
endurgreiddar þær upphæðir frá
öðrum aðilum Fjölsmiðjunnar
Þannig greiðir Atvinnuleysistrygg-
ingasjóður fyrir þá sem koma af
atvinnuleysistryggingaskrá. Félags-
málastofnanir greiða fyrir þá sem
eru á vegum viðkomandi sveitarfé-
laga og Rauði kross Islands ásamt
deildum hans á höfuðborgarsvæð-
inu greiðir fyrir þá sem eru á
aldrinum 16-18 ára og njóta ekki
aðstoðar annarra aðila.
Atvinnuleysistryggingasjóður
hefur auk þess veitt I 8 milljónir
til reksturs Fjölsmiðjunnar og
Menntamálaráðuneytið 3 milljónir
Einnig greiða sveitarfélögin 3 millj-
ónir á ári samtals sem skiptist eftir
fjölda nema frá hverju sveitarfélagi.
Þess sem upp á kann að vanta í
rekstrarkostnaði verður Fjölsmiðj-
an að afla með sölu á framleiðslu
sinni.
Fjölsmiðjunni f Kópavogi er ætlað
að starfrækja verkþjálfunar- og
framleiðslusetur fýrir ungt fólk á
aldrinum 16-24 ára sem hætt hef-
ur námi og ekki fótað sig á vinnu-
markaði. Hugmyndin er fengin frá
dönsku „Produktion"-skólunum,
en slík starfsemi þekkist víða í Evr-
ópu, þótt Danir séu taldir fremstir
á þessu sviði. Hefur Fjölsmiðjan
átt mjög gott samstarf við slíkan
skóla í Oðinsvéum, -Elsesminde-
og þegið þaðan góð ráð.
Markmiðið er að bjóða fjöl-
þætta verkþjálfun og fræðslustarf-
semi þvf unga fólki er þar starfar
og greiða fyrir störf þeirra sem
svarar til atvinnuleysisbóta. Stefnt
er að því að 40-70 nemar geti
verið að störfum hverju sinni f
7- 10 manna verkdeildum undir
verkstjórn fagfólks. Eftirtaldar deild-
ir eru í boði sem valkostir fyrir
væntanlega nema:Trésmíðadeild,
hússtjórnar- og matreiðsludeild,
tölvu- og prentdeild, bilaþvotta-
deild og rafdeild. I framtíðinni er
stefnt að því að bæta við skrif-
stofu- og tölvudeild, hönnunar- og
fatadeild o.s.frv., eftir aðsókn og
eftirspurn. Með þessu móti er
vonast til að nemarnir geti fundið
áhugavert starf fyrir hæfileika
si'na og dvölin verði forvinna að
frekara skólanámi, eða þeir komi
sem þjálfað starfsfólk í áhugavert
starf fyrir þá á almennum vinnu-
markaði.
20
SKINFAXI - tímarií Ungmenna/éiags íslands