Skinfaxi - 01.08.2005, Side 21
Hjdlparsími Rau5a hrossins 1717:
Hjálparsími Rauða krossins, 1717,
er gjaldfrjáls sími sem er opinn
allan sólarhringinn fyrir þá sem
þurfa aðstoð vegna depurðar;
kvíða, þunglyndis eða sjálfsvígshugs-
ana.Tilgangurinn með Hjálparsíma
Rauða krossins er að vera til stað-
ar fyrir þá sem finnst þeir vera
komnir í ðngstræti en vilja þiggja
aðstoð til að sjá tilgang með lífinu.
Auk þess að taka við sjálfsvígs-
símtölum getur Hjálparsíminn haft
vi'ðtækara hlutverk, til dæmis íkjöl-
far stóráfalla eða sem almennur
neyðar- og upplýsingasími Rauða
krossins.
Starfsmenn og sjálfboðaliðar
svara í Hjálparsíma Rauða kross-
ins. Þeir hafa reynslu af að svara
slíkum símtölum og fá reglulega
þjálfun í samvinnu við geðsvið
Landsspítala - háskólasjúkrahúss
og Landlæknisembættið.
Kannanir benda til að margir
þeirra sem gera tilraun til sjálfsvígs
vilji í raun ekki deyja en finnist lífið
of erfitt til að geta höndlað það.
Síminn og OgVodafone gefa
eftir gjald vegna símtala í 1717.
Allar hringingar í 1717 eru þvi'
gjaldfrjálsar fyrir þá sem hringja.
Niðurstaða rannsóknar sem gerð var fyrir nokkrum árum leiddi
í Ijós að stór hópur drengja og stúlkna er vel yfir kjörþyngd sinni.
Flest bendirtil að þessari þróun hafi ekki verið snúið við. Þessi
aldurshópur neytir í æ meira mæli óhollustu og fyrir vikið verða
íslensku börnin þyngri.Við verðum að gera allttil að snúa dæminu
við en til lengri tíma litið er þetta mjög slæmt mál.
Ekki kemur fram á símreikningum
að hringt hafi verið í 1717.
„Til okkar geta allir þeir leitað
sem eiga í erfiðleikum, við hlust-
um og fullum trúnaði er heitið.
Ástæður þess að fólk hringir inn
eru af ýmsum toga en sálræn
vandamál eru þó langstærsta
orsökin. Einnig er þó nokkuð um
hringingar vegna einmanaleika og
geðraskana. Stór hópur hringjenda
er á aldrinum 14-18 ára og þá
eru spurningar á borð við áfengis-
neyslu og um kynlíf oftast lagðar
á borð. Það má alveg Ijóst vera
að það vara mikil þörf fyrir þessa
þjónustu,” segir Elfa Dögg S. Leifs-
dóttin umsjónarkona sjálfboðaliða
Hjálparsíma Rauða krossins sem
starfræktur hefur verið síðan
2002.
Um 90 sjálfboðaliðar starfa
við Hjálparsíma Rauða krossins og
svara um 40 símtölum á dag eða
um 1200 yfir mánuðinn.
Við byggjum á
fólki og færni!
Höfum alltí lagi!
Hugmyndafræði ANZA gengur út á að farsælast sé fyrir fyrirtækl að einbeita sér að
þvi sem þau gera best. Rekstrarþjónusta ANZA gerir fyrirtækjum kleift að hagræða
í rekstri, auka rekstraröryggi og að einbeita sér að kjarnastarfsemi sinni.
ANZA býður upp á enn fleiri þjónustuþætti. Kynntu þér Rekstur, Lausnir, Öryggi og
Sérþekkingu á heimasíðu okkar, anza.is, eða i sima 522 5000.
ANZA séthæfir sig i rekstri og uppbyggingu tblvukeifa. Hvort
sem það ei á sviði öiyggismála, samspils forrita, útvistunar
eða tölvustýiinga getur þú reilt þig á hugvit, færni og
þjðnustulund starlslólks ANZA.
« Öruggur rekstur lölvukcrfa
SKINFAXI - gejiö út somfleytt síöon 1909 Jj