Skinfaxi - 01.02.2006, Side 7
Ritstjóraspjall - Jón Kristján Sigurðsson
Bætt aðstaða - betri árangur
Algjör umskipti hafa orðið á
síðustu misserum hvað varðar
aðstöðu til íþróttaiðkana vítt
og breitt um landið. Um árabil
bjuggu frjálsíþrótta-, knatt-
spyrnu- og sundmenn við afar
bága aðstöðu. Svo alvarlegt
var ástandið að það stóð þessum greinum hreinlega fyrir þrifum
og í mörgum tilvikum kom það niður á árangri. Sex mánuði á
ári höfðu iðkendur þessara greina varla í nokkurt hús að venda.
Barátta íþróttamannanna fyrir
bættri aðstöðu stóð í mörg ár
og loks bar sú barátta árangur.
Knattspyrnuhús risu í upphafi
á Stór-Reykjavíkursvæðinu og
síðan fylgdu í kjölfarið hús ann-
ars staðar á landinu og brátt
hillir undir að knattspyrnuhús
verði tekið í notkun á Austfjörð-
um. í þessari umræðu má ekki
gleyma sparkvöllum KSÍ en
það átak á örugglega eftir að
skila sér þegar fram í sækir. Nú
geta knattspyrnumenn æft við
toppaðstæður allt árið og fyrir
vikið hljóta fleiri betri knatt-
spyrnumenn að koma fram í sviðsljósið.
Iðkendurfrjálsra íþrótta hafa tekið nýju aðstöðunni í Laugar-
dal fagnandi og ekki stendur á árangrinum. Aðstaðan i Laugardal-
num er eins og hún gerist best og hvert metið af öðru hefur verið
sett síðan að húsið var tekið í notkun skömmu fyrir áramót. Bætt
inniaðstaða var búin að vera baráttumál forystumanna í frjáls-
íþróttahreyfingunni í mörg ár. Biðlund frjálsíþróttamanna var með
ólíkindum en nú geta allir kætst. Þessi aðstaða ýtir örugglega
undir það að fleiri börn og unglingar fari að æfa frjálsar íþróttir og
er það vel.
Ekki má gleyma þætti UMFÍ í þessum efnum en í tengslum við
Unglingalandsmótin hafa risið glæsileg íþróttamannvirki og fyrsta
flokks aðstaða til æfinga og keppni í frjálsum íþróttum.
Sundmenn búa orðið við
glæsilega inniaðstöðu í Laugar-
dal en þar er 50 metra innilaug.
Sundmenn voru búnir að berj-
ast fyrir 50 metra innilaug í ára-
tugi og eru því mikil umskipti
að fá þessa aðstöðu.
Þessari bættu aðstöðu í
íþróttum ber að fagna og er
hún auknum skilningi ráða-
manna í þessum efnum að
þakka. Það vita orðið allir í dag,
staðreyndirtala sínu máli þar,
að gildi íþrótta vegur þungt á
uppvaxtarárum barna og ungl-
inga og þá er brýnt að viðun-
andi aðstaða til að leggja stund á íþróttir sé til staðar. Auðvitað
kostar þessi uppbygging sitt en hún skilar sér margfalt í sterkari
einstaklingum þegar út í lífið er komið.
Ritstjóri: Jón Kristján Sigurðsson
Ábyrgðarmaður:
Björn B. Jónsson, formaður UMFl
Ljósmyndir: Jón Kristján Sigurðs-
son o.fl.
Umbrot/hönnun: Örn Guðnason
Prentun: Prentmet
Prófarkalestur: Helgi Magnússon
Auglýsingar: PSN-samskipti og
Gunnar Bender
Ritnefnd: Anna R. Möller
Einar Haraldsson
BirgirGunnlaugsson
Ester Jónsdóttir
Skrifstofa:
Þjónustumiðstöð UMFl, Fellsmúla 26,
108 Reykjavík, sími: 568-2929,
netfang: umfi@umfi.is
Heimasíða: www.umfi.is
Starfsmenn UMFÍ:
Sæmundur Runólfsson, framkv.stjóri,
Valdimar Gunnarsson, landsfulltrúi,
Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi,
með aðsetur á Sauðárkróki,
Ásdís Sigurðardóttir, ritari,
Þóra Kristinsdóttir, bókhald,
Jón Kristján Sigurðsson, ritstjóri
Skinfaxa, kynningar-og upplýsinga-
fulltrúi.
Stjórn UMFl:
Björn B.Jónsson, formaður
Helga Guðjónsdóttir, varaformaður
Björn Ármann Ólafsson, gjaldkeri
Ásdís Helga Bjarnadóttir, ritari
Anna R. Möller
Haraldur Þór Jóhannsson
Hringur Hreinsson
Jóhann Tryggvason
Einar Jón Geirsson
Einar Haraldsson
Eyrún H. Hlynsdóttir
Forsíðumynd:
Meyjasveit HSÞ 15-16 ára sem sigraði
í 4 x 400 m boðhlaupi á Meistaramóti
íslands. Meyjarnar urðu fyrstar til að
vinna sigur i þessari grein en mótið
fórfram í nýju frjálsíþróttahöllinni í
Laugardal og settu þannig um leið
bæði héraðsmet og íslandsmet.
Sveitina skipuðu þær Arna Krístín
Sigfúsdóttir, Ólafía Helga Jónsdótt-
ir, Ragna Baldvinsdóttir og Gígja
Valgerður Harðardóttir
SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands 7