Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2006, Blaðsíða 23

Skinfaxi - 01.02.2006, Blaðsíða 23
I EiðurSmári íþróttamaðurársins annað árið í röð: Færði Einstökum börnum 500 þúsund krónur Eiður Smári Guðjohnsen,fyrirliði íslenska landsliðsins í knatt- spyrnu og leikmaður ensku meistaranna í Chelsea, var krýndur íþróttamaður ársins 2005 af Samtökum íþróttafréttamanna. Þetta er annað árið í röð sem Eiður hlýtur þennan heiður. Allir þeir íþróttafréttamenn sem tóku þátt í kjörinu settu Eið Smára í efsta sætið og hlaut hann því fullt hús stiga. íþróttamaður ársins hlýtur m.a. hálfrar milljónar króna peningagjöf frá l'slands- banka og færði Eiður Smári félaginu Einstökum börnum ávísun- ina. Þetta var í síðasta sinn sem styttan, sem fylgt hefur kjörinu frá upphafi, er afhent, en í reglugerð um kjörið segir að hana skuli afhenda í fimmtíu skipti en fela síðan Þjóðminjasafni íslands til varðveislu. Það voru þeir Atli Steinarsson, einn af stofnendum Samtaka íþróttafréttamanna, og Vilhjálmur Einarsson, sem fyrstur var kjörinn íþróttamaður ársins, sem afhentu Eiði Smára styttuna. Knattspyrnumenn skipuðu fimm af sjö efstu sætunum í kjörinu og alls komust níu knattspyrnumenn á blað. Alls fengu 29 íþróttamenn atkvæði í kjörinu, en þeir eru: Eiður Smári Guðjohnsen 460 GuðjónValurSigurðsson 287 Ásthildur Helgadóttir 203 Jón Arnór Stefánsson 131 Þóra B. Helgadóttir 78 Gunnar Heiðar Þorvaldss. 72 Hermann Hreiðarsson 71 Ólöf María Jónsdóttir 58 Snorri Steinn Guðjónsson 46 Jakob Jóhann Sveinsson 37 Róbert Gunnarsson 34 Jón Oddur Halldórsson 29 Sigurður Sigurðarson 29 Birgir Leifur Hafþórsson Þórey Edda Elísdóttir Árni Gautur Arason Björn Þorleifsson Heiðar Davíð Bragason Ólafur Stefánsson Kristjana Sæunn Ólafsd. Arnar Sigurðsson Margrét Lára Viðarsdóttir Ragnhildur Sigurðardóttir Þormóður Jónsson Björgvin Björgvinsson Kristín Rós Hákonardóttir Berglind Hansdóttir Greta Mjöll Samúelsdóttir Grétar Rafn Steinsson 25 21 19 16 12 11 10 7 4 4 4 3 3 2 2 1 SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands 23

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.