Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2006, Blaðsíða 26

Skinfaxi - 01.02.2006, Blaðsíða 26
Förum langt á hefðinni „Það er rótgróin hefð fýrir þessari starfsemi í minni sveit og við förum langt á hefðinni. Okkur tekst að vera með verk- efnaframboð sem höfðar nánast til allra barna og unglinga í sveitinni þótt þau séu ekki mörg. Miðað viðað hver einasti maður skilar sér inn og unglingar halda tryggð við þetta fram eftir öllu þá gengur þetta blússandi fínt. Auðvitað þarf að halda vel á spilunum varðandi kostnað, aðstöðu og öðru í ýmsum málum,"sagði Halldóra Gunnarsdóttir, gjaldkeri Ungmennafélagsins Baldurs í Hraungerðishreppi, þegar hún var innt eftir starfsemi félagsins. Halldóra hefur verið í ungmennafélagshreyfingunni frá því að hún man eftir sér. Hún starfar sem skóla- fulltrúi í Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi. Félagsstarf og samkomuhald allan ársins hring - Hvaða þáttum haldið þið aðallega úti í dag? „Við erum með íþróttaæfingarallan ársins hring, einkum í frjálsum íþróttum, fótbolta á sumrin og það kemur síðan fyrir að við grípum í fleira, eins og skák, borðtennis og glímu. Þetta fer að sjálfsögðu eftir áhuga hverju sinni og því hvaða leiðbeinendur við fáum. Við erum einnig með félagsstarf og samkomuhald allan ársins hring og nýverið héldum við stórt þorrablót sem unglingarnir sjá alfarið um. Fram undan er að halda hestamanna- kaffi sem er fjáröflun og skemmtun í senn. Síðan fylgja á eftir sumardagurinn fyrsti, 17. júní og þannig koll af kolli með skemmt- unum úti og inni. Það eru svo alltaf að detta inn ný og skemmtileg verkefni en í því sambandi héldum við í fyrra olsen olsen-maraþon sem heppnaðist ákaflega vel. Þá stukku þrjú ungmennafélög hér í Flóanum í samstarf við að setja upp leikrit í fyrravor sem var þó ekki hægt að sýna fyrr en í nóvember. Unga fólkið smitaðist svo af leiklistarbakteríunni að þau eru komin í öll leikrit sem er verið að sýna á Suðurlandi um þessar mundir. Það er ekki hægt að kvarta yfir því að fólk sé ekki tilbúið til að vera með og gera ýmislegt. Mér þykir afskaplega gaman að vinna með ungu og spræku fólki sem er alltaf til í að takast á við spenn- andi og skemmtileg verkefni. Það ennfremur augljóst hvaða for- varnagildi þetta hefur en við erum að skila fólkinu út í lífið í góðu standi. Það þarf ekki áfengi til að skemmta sér en unga fólkið gerir það svikalaust án þess," sagði Halldóra. Unglingarnir sjá alfarið um þorrablótið 26 SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.