Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2006, Blaðsíða 24

Skinfaxi - 01.02.2006, Blaðsíða 24
Fréttir úr hreyfingunni... UMFi-félagar á coaching-námskeiði Sextán félagar úr ungmennafélagshreyfingunni sóttu coaching-námskeið sem haldið var í þjónustumiðstöðinni í mars. Um heilsdagsnámskeið var ræða og lýstu þátttakendur mikilli ánægju með námskeiðið sem Mathilda Gregersdotter stýrði.„Coaching"veitir aðstoð til að auka frammistöðu og hámarka lífsgæði. Viðskiptavinurinn dýpkar námshæfileika, bætir frammi- stöðu sína og þróar lífsgæði. Allar nánari upplýsingar um coaching er að finna á www.leidtogi.is Fjögurfélög innan HSH fá nýtt merki Nú er lokið vinnu við að safna sam- an, laga og hreinteikna merki aðildarfélaga innan HSH.Vinnan hefur staðið yfir undanfarna mán- uði og fengu aðildarfélögin afhentan disk með merkjunum á héraðsþingi HSH í byrjun mars. Örn Guðnason, grafískur hönnuður og gamall ungmennafélagi, hefur séð um þessa vinnu fyrir HSH í samráði við Öldu Pálsdóttur, fram- kvæmdastjóra HSH. Við vinnslu merkjanna var lögð áhersla á að hafa merkin í sinni upprunalegu mynd, skilgreina liti og vista þau þannig að hægt sé að nota þau í bestu gæðum hvar sem er. Innan vébanda Héraðssambands Snæfellsness- og Hnappadalssýslu eru sautján félög og af þeim áttu 13 félög merki en fjögur ekki. Ákveðið var að hanna ný merki fyrir þessi fjögur félög og var Örn fenginn til þess. Félögin, sem ekki áttu merki, eru íþróttafélag Miklaholtshrepps, Umf. Árroðinn, Umf. Helgafell og Umf. Þröstur. Merki sambanda og félaga Undanfarin ár hefur verið unnið að því verkefni innan UMFÍ að safna saman merkjum aðildarfélaga héraðssambanda og félaga, hreinteikna þau og koma á tölvutækt form. Þó flest félög eigi merki og jafnvel á tölvutæku formi þá eru þau mörg hver í lélegum gæðum og þarfnast lagfæringar. Upphafið að þessu verkefni má rekja til þess að Örn Guðnason grafískur hönnuður var fenginn til að taka að sér vinnu fyrir UMFÍ og safnaði hann saman merkjum sambands- aðila UMFÍ og félaga með beina aðild. Örn er sjálfur gamall ungmennafélagi frá Hvolsvelli og var m.a. formaður Umf. Baldurs í þrjú ár og framkvæmdastjóri HSS tvö sumur. Þessi vinna kláraðist fyrir Landsmótið á Egilsstöðum 2001 og mátti m.a. sjá afrakstur hennar í fánaborg sem umlukti leikvang- inn. UMFf lét einnig gera lítinn bækling sem samböndin fengu ásamt diski með merkjunum. Þá lét UMFÍ prenta plakat með öllum merkjunum og litla borðstanda sem hafa verið notaðir á þingum UMFÍ. í framhaldi af þessu hafa nokkur sambönd fengið Örn til að vinna fyrir sig sams konar merkjavinnu. UMSK reið á vaðið 2002, en síðan hafa bæst við HSK, UMSB, UMSS og nú síðast HSH. UMSK, HSK og UMSS létu prenta lítinn bækling með merkjunum ásamt plakati sem dreift var á félagsvæði við- komandi sambands. Samböndin fengu öll styrk úr verkefna- sjóði UMFI í þetta verkefni þannig að teljandi kostnaður hef- ur ekki fylgt því. Við vinnslu merkjanna hafa samböndin fyrst safnað sam- an þeim merkjum sem til eru hjá þeim eða bestu útgáfum hjá félögunum. Fá sambönd eiga merki allra aðildarfélaganna í góðri útgáfu og því hefur víða verið leitað fanga til að finna þau merki sem upp á vantar. Reynslan hefur sýnt að fá félög eiga merki sem eru alveg hrein og klár. Oft hafa útlínur og form aflagast og stundum verið skönnuð mjög gróf merki. í nokkrum tilfellum hefur tekist að hafa upp á gömlum merkj- um sem menn héldu jafnvel að væru glötuð. Nokkur félög áttu ekki merki og hefurörn þá hannað ný merki í samvinnu við forsvarsmenn félaganna. Þannig hefur tekist að ná saman merkjum allra félaga innan viðkomandi sambands. Við vinnslu merkjanna hefur verið lögð áhersla á að þau haldist óbreytt í sem næst upprunalegri mynd. Einstaka merki hafa verið lagfærð eða stílfærð lítilsháttar og hefur það þá verið gert í fullu samráði við forráðamenn viðkomandi félags. Sú vinna sem hér hefur verið unnin hefur mikið menning- arsögulegt gildi því mörg félög hafa lognast út af eða hætt og merkin jafnvel glatast. Vonandi taka fleiri sambönd við sér og drífa í þessari vinnu. 24 SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.