Skinfaxi - 01.02.2006, Blaðsíða 10
Gífurlegur efniviður segir Stefán Jóhannsson frjálsíþróttaþjálfari:
Meiriháttar að vinna
unglingum ídag
Hinn landskunni frjálsíþrótta-
þjálfari Stefán Jóhannsson
segir efniviðinn aldrei hafa
verið meiri á sínum 38 ára ferli
sem þjálfari. Stefán segir frjáls-
íþróttafólk almennt séð nýta
sér aðstöðuna í Laugardal til
hins ýtrasta en með tilkomu
hennar er hægt að æfa allt
öðru vísi og skipuleggja æfing-
ar mun betur en áður þekktist.
Áður hafi æfingar verið skipu-
lagðar úti um allan bæ, á gang-
stéttum og æft á bílastæðinu
í Kringlunni á sunnudögum.
Núna sé bara mætt á einn stað
og á staðnum er öll aðstaða.
Þetta er engin smámunur og
þá ekki síður fyrir þjálfarana.
- Sérðu fleiri efni koma fram í
frjálsum íþróttum en áður?
„Ég get fullyrt að það hafa
aldrei verið fleiri efni á landinu.
Við eigum í dag um 15 ungl-
inga sem eru efni í afreksfólk
og þar á eftir er stór hópur sem
er að æfa mikið til þess að ná
þeim sem lengra eru komnir.
Eftir svona 5-6 ár getum við
stillt upp mjög sterku lands-
liði. Ég þakka það fyrst og
fremst góðu starfi félaganna
og síðan á eftir að koma í Ijós
hverju nýja höllin skilar. Nýju
aðstöðunni í Laugardal hef ég
stundum líkt við að fara úr fjósi
í höll eða fyrir sundmenn að
fara úr sjó í laug. Ef við fáum að
með
hafa þessa aðstöðu fyrir okkur
á hún eftir að skila afreksfólki
eftir örfá ár. Ég sé ekki betur en
að árið 2012, þegar Ólympíu-
leikarnir verða haldnir í
London, muni þurfa heila flug-
vél undir frjálsíþróttafólk. Ég er
bara ofsalega bjartsýnn á fram-
tíðina og stafar það ekki hvað
síst af jákvæðum hug þeirra
sem koma að frjálsum íþrótt-
um í dag, og eins frá sveitar-
félögum og ríkisvaldinu,"sagði
Stefán.
Góður árangur í íþróttum
- gott gengi í skóla
„Það er meiriháttar að vinna
með unglingum í dag. Þetta
er allt fyrirmyndarfólk, leggur
hart að sér við æfingar og
stendur sig upp til hópa frá-
bærlega vel I námi. Það er
alveg greinilegt að þeir sem ná
árangri í íþróttum standa sig
einnig vel í skóla,"sagði Stefán
Jóhannsson frjálsíþrótta-
þjálfari.
NÓATXTN
10 SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands