Skinfaxi - 01.02.2006, Blaðsíða 34
Fréttir úr hreyfingunni...
Frá þingi Ungmennasambandsins Ölfljóts sem haldið var á Smyrlabjörgum í Suðursveit.
Fjölmennt á þingi USÚ á Smyrlabjörgum
73. þing USÚ var haldið að Smyrlabjörgum
9. mars. Mæting var góð og voru 33 þingfull-
trúar mættir.
Gestir frá UMFÍ voru Björn Jónsson formaður
og Sæmundur Runólfsson framkvæmdastjóri.
Á þinginu voru tekin fyrir venjuleg aðalfundar-
störf og var stjórnin endurkjörin. í henni sitja
Ragnhildur Einarsdóttir formaður, Kjartan
Hreinsson ritari og Jóhanna Kristjánsdóttir
gjaldkeri.
Mikill hugur var í mönnum á þinginu en
þess má geta að Unglingalandsmótið 2007
verður haldið á Höfn í Hornafirði.
1D.UNGLINGA
LANOSMÓT
UMFf
Besti árangur Fjölnis á bikarmóti
Bikarmót Fimleikasambands íslands í áhalda-
fimleikum var haldið í Laugardalshöll helgina
4.-5.mars. Fimleikadeild Fjölnis sendi lið í 5. þreþi
stúlkna. í þvf þrepi tóku 9 lið þátt en þau komu frá
öllum fimleikafélögum landsins. Fjölnir hafnaði f
3. sæti sem er glæsilegur árangur á stórmóti sem
þessu en þarna voru komin saman efnilegustu
börn landsins. Gerpla bar sigur úr býtum í 5. þrepi
og Björk varð í öðru sæti.
f liði Fjölnis voru þær Dagmar Ýr, llmur Björg, Katrín, Margrét
Unnur, Sara Kristín og Vilborg Edda. Varamenn voru Una og
Alexandra.
34 SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands