Skinfaxi - 01.02.2006, Síða 23
I
EiðurSmári íþróttamaðurársins annað árið í röð:
Færði Einstökum börnum
500 þúsund krónur
Eiður Smári Guðjohnsen,fyrirliði íslenska landsliðsins í knatt-
spyrnu og leikmaður ensku meistaranna í Chelsea, var krýndur
íþróttamaður ársins 2005 af Samtökum íþróttafréttamanna. Þetta
er annað árið í röð sem Eiður hlýtur þennan heiður.
Allir þeir íþróttafréttamenn sem tóku þátt í kjörinu settu Eið
Smára í efsta sætið og hlaut hann því fullt hús stiga. íþróttamaður
ársins hlýtur m.a. hálfrar milljónar króna peningagjöf frá l'slands-
banka og færði Eiður Smári félaginu Einstökum börnum ávísun-
ina.
Þetta var í síðasta sinn sem styttan, sem fylgt hefur kjörinu frá
upphafi, er afhent, en í reglugerð um kjörið segir að hana skuli
afhenda í fimmtíu skipti en fela síðan Þjóðminjasafni íslands til
varðveislu.
Það voru þeir Atli Steinarsson, einn af stofnendum Samtaka
íþróttafréttamanna, og Vilhjálmur Einarsson, sem fyrstur var
kjörinn íþróttamaður ársins, sem afhentu Eiði Smára styttuna.
Knattspyrnumenn skipuðu fimm af sjö efstu sætunum í
kjörinu og alls komust níu knattspyrnumenn á blað.
Alls fengu 29 íþróttamenn
atkvæði í kjörinu, en þeir
eru:
Eiður Smári Guðjohnsen 460
GuðjónValurSigurðsson 287
Ásthildur Helgadóttir 203
Jón Arnór Stefánsson 131
Þóra B. Helgadóttir 78
Gunnar Heiðar Þorvaldss. 72
Hermann Hreiðarsson 71
Ólöf María Jónsdóttir 58
Snorri Steinn Guðjónsson 46
Jakob Jóhann Sveinsson 37
Róbert Gunnarsson 34
Jón Oddur Halldórsson 29
Sigurður Sigurðarson 29
Birgir Leifur Hafþórsson
Þórey Edda Elísdóttir
Árni Gautur Arason
Björn Þorleifsson
Heiðar Davíð Bragason
Ólafur Stefánsson
Kristjana Sæunn Ólafsd.
Arnar Sigurðsson
Margrét Lára Viðarsdóttir
Ragnhildur Sigurðardóttir
Þormóður Jónsson
Björgvin Björgvinsson
Kristín Rós Hákonardóttir
Berglind Hansdóttir
Greta Mjöll Samúelsdóttir
Grétar Rafn Steinsson
25
21
19
16
12
11
10
7
4
4
4
3
3
2
2
1
SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands 23