Skinfaxi - 01.02.2006, Side 18
Breytilegt og lifandi starf í alla staði
Mjög góð aðsókn hefur verið að Ungmenna- og tómstundabúðunum að
Laugum í Dalasýslu í vetur og eru skráningar orðnar nálægt 1700 talsins.
Forstöðumannaskipti urðu um síðustu áramót, þegar Bjarni Gunnarsson,
sem stýrt hafði búðunum frá byrjun þeirra í upphafi árs 2005, lét afstörfum
og við starfi hans tókAnna Margrét Tómasdóttir frá Akranesi sem var áður
starfsmaður í búðunum. Anna Margrét er menntaður tómstundafræðingur
frá Kaupmannahöfn og hefur víða komið að félagsstörfum.
cnnfamir»fremsiu roo
ngmenna- og tómstundabúðirnar
að Laugum í Dalasýslu hafa
vakið verðskulduga athygli
Búðirnar eru fyrir nemendur í 9. bekkjum grunnskólanna
sem dvelja þar frá mánudegi til föstudags við leik og
störf. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma
434-1600 og 861-2660. Einnig þjónustumiðstöð UMFl
í síma 568-2929 eða á www.umfi.is.
Andrúmsloftið í
sveitinni getur
varla verið betra
Það var líf og fjör í búðunum þegar Skin-
faxi leit þar inn á dögunum en þá voru þar
nemendurfrá Húsavík, Hofsósi og Heiðarskóla í
Borgarfirði.
„Mér líst Ijómandi vel á starfið sem er mjög
breytilegt og lifandi í alla staði. Það er nóg að
gera og allir leggjast á eitt við að gera dvölina
í búðunum sem skemmtilegasta. Maður hittir
mikið af nýju fólki og það gerir starfið enn líf-
legra. Staðsetn-
ing búðanna finnst
méralvegfrábær
og nálægðin við
Dalamenn er mjög
góð. Við getum
alveg sagt að
andrúmsloftið í sveitinni geti varla verið betra
og Dalir heilla alveg sérstaklega," sagði Anna
Margrét. Hún sagði krakkana, sem koma í búð-
irnar, almennt mjög áhugasama. Það væri oft-
ast nær líf og fjör og reynt væri að hafa dag-
skrána einsfjölbreytta og kostur væri. Ferða-
dagurinn hefði til þessa slegið alveg í gegn en
þá væri farið í heimsókn á kúa- og fjárbú og að
Eiríksstöðum.
Aðspurð hvað hefði komið henni mest á
óvart í starfinu sagði Anna Margrét margt
koma upp þegar svona fjöldi heimsækir búð-
irnar.
„Verkefnin eru endalaus og ég sé ekki ann-
að en að ungmennabúðirnar eigi bjarta fram-
tíð fyrir sér. Unglingarnir lýsa yfir mikilli ánægju
með dvölina og nú þegar eru farnar að berast
pantanir um dvöl á næsta skólaári," sagði Anna
Margrét.
18 SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands