Skinfaxi - 01.02.2006, Page 35
Fréttir úr hreyfingunni...
Starfssamt og málefnalegt
þing hjá HSH
*
68. héraðsþing Héraðssambands Snæ-
fellsnes- og Hnappadalssýslu - HSH, var
IHI haldið í félagsheimilinu Klifi í Snæfellsbæ
l|l 4. mars sl. Gestir þingsins voru Sigríður Finsen,
111 formaður Héraðsnefndar Snæfellinga, Helga Guðrún
Guðjónsdóttir, varaformaður UMFI, Stefán Konráðs-
son, framkvæmdastjóri ÍSÍ og Sigurður Gíslason,
íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Snæfellsbæjar.
Um þrjátíu manns mættu á þingið sem var starfssamt og mál-
efnalegt og Ijóst að mikið líf er í íþróttastarfinu á Snæfellsnesi.
Góðar umræður áttu sér stað í nefndarstörfum þingsins og meðal
þess sem mest var rætt á þinginu var umsókn um unglingalands-
mót sem haldið yrði í Grundarfirði og Snæfellsbæ. Einnig voru lög
HSH yfirfarin.
Á þinginu voru veitt tvö starfsmerki UMFf, Maríu Ölmu Valdi-
marsdóttur, Snæfelli og Sigrúnu Ólafsdóttur, Víkingi. íþróttamenn
HSH 2005 veittu viðurkenningum sínum viðtöku og eru þeir
eftirfarandi:
Heiðar Geirmundsson, UMFG
Lárus Ástmar Hannesson, Snæfellingi
Jón Oddur Halldórsson, Reyni
Hannes Marinó Ellertsson, Jökli
Einar Hjörleifsson, Víking
Sigurður Ágúst Þorvaldsson, Snæfelli
Fadel A. Fadel, Víking
Jón Oddur Halldórsson, Reyni
Vinnuþjarksbikarinn er verðlaunagripur sem UMFÍ gaf HSH á
80 ára afmæli HSH (2002). Bikarinn varafhentur nú í fyrsta skipti á
68. héraðsþingi HSH fyrir starfsárið 2005. Bikar þessi er farandbik-
ar sem táknar hvatningu og þakklæti sambandsins til einstaklinga
sem hafa skarað fram úr í uppbyggingu íþróttagreinar og/eða
félagsstörfum hvers konar á sambandssvæðinu og er hann veittur
Frjálsíþróttamaður:
Hestamaður:
fþróttamaður fatlaðra:
Kylfingur:
Knattspyrnumaður:
Körfuknattleiksmaður:
Sundmaður:
fþróttamaður HSH 2005:
Alda Pálsdóttir framkvæmdastjóri HSH.
til eins árs í senn. Sá sem fyrstur hlaut útnefninguna„Vinnuþjarkur
HSH" er Viðar Gylfason, Umf. Reyni, Hellissandi, fyrir uppbyggingu
á krakkablaksstarfi í Snæfellsbæ, en það hefurteygt anga sína yfir
í Grundarfjörð.
Á þinginu var gefin út ársskýrsla sambandsins sem inniheldur
upplýsingar um starf innan sambandsins og aðildarfélaga þess á
liðnu ári.
Guðmundur M. Sigurðsson gaf ekki kost á sér til formanns-
starfa vegna anna. Varaformaður HSH, Garðar Svansson, tók við
formennsku í janúar sl. og var kjörinn formaður HSH á þinginu. í
lok þings var kosin 5 manna stjórn HSH og skipað í 8 ráð. Stjórn
HSH 2006-2007 skipa Garðar Svansson formaður, Eygló Bára
Jónsdóttir varaformaður, Hjörleifur Kristinn Hjörleifsson gjaldkeri,
Friða Sveinsdóttir ritari og Freyr Jónsson meðstjórn-andi.
Aðalfundur Ungmennafélags
Akureyrar var haldinn 24. febrúar sl.
Á dagskrá voru hefðbundin aðalfund-
arstörf, veiting viðurkenninga og þess
minnst að 100 ár eru liðin frá stofnun
Ungmennafélags Akureyrar.
í stjórn voru kosin Gísli Pálsson, Rannveig Oddsdóttir, Guð-
mundur Víðir Gunnlaugsson, Katrín Pálsdóttir, Svanhildur Karls-
dóttir, Birna Ingólfsdóttir og Kristín Konráðsdóttir. Gísli Pálsson
flutti skýrslu stjórnar og Guðmundur Víðir skýrði reikninga félags-
ins. Jákvæð afkoma er hjá félaginu og allur rekstur og starfsemi
til sóma. UnnarVilhjálmsson þjálfari sagði frá utanlandsferð sem
verið er að undirbúa og afreksfólk var heiðrað.
Margir gestir voru á fundinum og tóku til máls og færðu félag-
inu kveðjur samtaka sinna. Sæmundur Runólfsson framkvæmda-
stjóri UMFÍ, Hringur Hreinsson stjórnarmaður UMFI og Ómar Bragi
Stefánsson landsfulltrúi voru fulltrúar UMFÍ.
Frá aðalfundi Ungmennafélags Akureyrar (UFA).
SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands 35