Skinfaxi - 01.12.2006, Blaðsíða 5
Björn B. Jónsson, formaður UMFÍ
Hreyfingin sækir
stöðugt fram
Jólin nálgast með birtu og yl sem
einkennir hátíð Ijóss og friðar. I
beinu framhaldi jólanna rennur
árið sitt skeið á enda. Þessi tímamót
fá okkur til að setjast niður og taka
gamla árið út, vega það og meta og
bera saman við önnur ár. Þannig er
gangur lífsins, ekki satt?
Ungmennafélagar munu hugsa með gleði til ársins 2006. Ársins þegar
Unglingalandsmótið var haldið á Laugum í Þingeyjarsveit, ársins þegar
hreyfingin fékk vilyrði fyrir lóð í Reykjavík undir nýjar aðalstöðvar samtak-
anna, ársins þegar fyrsta svæðismiðstöð UMFl var formlega opnuð á Vest-
fjörðum, ársins þegar hafist var handa við að skrifa aldarsögu hreyfingar-
innar, ársins þegar Flott án fíknar hófst, ársins þegar lagður var varanleg-
ur grunnur að íþrótta- og tómstundabúðunum að Laugum í Sælingsdal,
ársins þegar Ungmennavika NSU var haldin með glæsibrag á Islandi, ársins
þegar menntamálaráðuneytið fól UMFl umsjón með og framkvæmd stórs
evróverkefnis, en síðast en ekki síst, síðasta ársins fyrir aldarafmælið og þá
um leið síðasta ársins sem ber einvörðungu tvær tölur í aldri samtakanna.
Upptalningin hér að framan sýnir að ungmennafélagshreyfingin sækir
stöðugt fram. Nýjungar í starfi líta stöðugt dagsins Ijós og því ber að fagna.
Það er margt að gerast og spennandi tímar framundan hjá UMFl. Á
hundrað ára afmæli samtakanna verður margt um að vera. Frímerki verður
gefið út, glæsiieg afmælisbók verður gefin út í tengslum við þing UMFl í
október, afmælishátíðardagskrá 5. júlí í Kópavogi, Landsmót í Kópavogi,
Unglingalandsmót á Flöfn, afmæli samtakanna 2. ágúst, alþjóðleg ráð-
stefna verður næsta haust, fundaferð um landið, nýjungar í fræðslumálum
og sögusýning verður í tengslum við Landsmótið. Þetta er það helsta sem
gert verður, en þó verður mesta vinnan, og sjálfsagt ein sú fyrirferðar-
mesta, uppbygging nýrra aðalstöðva UMFI.
Hér er á ferðinni risaverkefni sem vel þarf að takast. I nýju húsi við
Tryggvagötu í Reykjavík verður gert ráð fyrir ýmsum afþreyingarmöguleik-
um þar sem boðið verður upp á fjölbreytt tækifæri til líkamlegar hreyfing-
ar sem og listrænnar sköpunar. Auk þess verður rúmgott þjónusturými og
gistimöguleikar. Fyrst og fremst verður lögð rík áhersla á að hanna húsið
með það fólk í huga sem vill taka þátt í að skapa betra líf með eða í sam-
starfi við UMFf.
Ég óskar öllum ungmennafélögum, sem og öðrum landsmönnum, árs og
friðar með von um kraftmikið æskulýðsstarfá aldarafmæli UMFÍárið 2007.
Hvatningarverðlaun UMFÍ til Keflavíkur og Akraness
Á sambandsráðsfundi UMFÍ á Flúðum 28.
október sl. var tilkynnt hverjir hefðu hreppt
hvatningarverðlaun UMFÍ fyrir árið 2006.
Björn B. Jónsson, formaður UMFÍ, gerði
grein fyrir verðlaununum og tilkynnti að
þau hefðu komið í hlut Keflavíkur íþrótta-
og ungmennafélags og Ungmenna-
félagsins Skipaskaga.
„Það var sannarlega mikill heiður og
hvatning fyrir okkur að fá þessi verðlaun.
Það er verið að vinna gott starf í öllum
deildum félagsins og segja má að það sé
gróska í öllum greinum. Við erum bara
rígmontnir yfir að fá þessa útnefningu,"
sagði Einar Haraldsson, formaður Kefla-
víkur íþrótta- og ungmennafélags, í spjalli
við Skinfaxa. Einar sagði uppsveiflu vera á
öllum sviðum og að mikill metnaður væri í
Einar Haraidsson,
formaður Kefla-
vikur iþrótta- og
ungmennafélags
U.M.F.
I skipaskag |
1 AKRANEBI 1
iJP Wa
Anna BJarnadóttir,
formaður Ung-
mennafélagsins
Skipaskaga
því að hafa gott aðgengi fyrir alla að íþrót-
tum. Hann sagði þetta eiga almennt við
um íþróttir í Reykjanesbæ.
„Sem dæmi um hve áhuginn er mikill
get ég sagt frá því að hátt í 90% nemenda
í öðrum bekk grunnskóla á svæðinu leg-
gja stund á íþróttir," sagði Einar. Keflavík
íþrótta- og ungmennafélagi verða afhent
verðlaunin með formlegum hætti á aðal-
fundi sem ráðgerður er í febrúar nk.
Á síðustu árum hefur vakið athygli vel-
gengni Ungmennafélagsins Skipaskaga en
Anna Bjarnadóttir tók við formennkunni í
félaginu fyrir tveimur árum. Innan Skipa-
skaga eru dans- og hnefaleikadeild, skokk-
hópur og frjálsar íþróttir. Það má með sanni
segja að ungmennafélagsandinn lifi góðu
lífi í Reykjanesbæ og á Akranesi.
SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands 5