Skinfaxi - 01.12.2006, Blaðsíða 18
HO
Ljósmyndir: Gunnar Freyr Steinsson, Hafnarfirði
í tísku að tilheyra
þessari hreyfingu
Gísli Páll Pálsson
erformaður í stóru héraðssambandi en
honum er margt til lista lagt því að hann
hefur einnig getið sér gott orð sem körfu-
knattleiksdómari. Á þeim vettvangi er
hann m.a. að dæma í úrvalsdeildinni. Gísli
er mikill áhugamaður um íþróttir og hon-
um finnst formennska sín í HSK mjög
áhugaverð og margir spennandi hlutir að
gerast á næstu misserum. En hvað var það
sem dró Gísla Pál inn í ungmennafélags-
hreyfinguna?
„Það er þegar ég gerist formaður
íþróttafélagsins Hamars í Hveragerði. Áður
en ég tók við formennskunni í HSK var ég
gjaldkeri í nokkur ár. Mér finnst rosalega
gaman að vinna í því andrúmslofti sem er
í ungmennafélagshreyfingunni. Enginn er
að vinna í þessari hreyfingu fyrir peninga
en í staðinn kemur það skemmtilega og
duglega fólk sem maður er að vinna með.
Það má alveg segja fullum fetum að það er
þetta dugmikla fólk sem heldur manni við
efnið. Það er líka gaman að sjá hluti verða
til eins og landsmót, unglingalandsmót.
þátttöku í hinu og þessu og aðkomu að
ýmsum málum sem hreyfingin kemur að,"
sagði Gísli Páll.
- Hvernig sérðu framtíð ungmenna-
félagshreyfingarinnar fyrirþér í nánustu
framtíð?
„Stórt er spurt. Mér sýnist mikið í far-
vatninu og má í því sambandi benda á
fyrirhugaða byggingu nýrra höfuðstöðva.
Það eru áhugaverðir og spennandi tímar
fram undan og UMFI er að markaðssetja
sig meira og koma sér um leið með
jákvæðum hætti á koppinn hjá lands-
mönnum almennt. Vonandi heldur hreyf-
ingin áfram á þeirri braut en ég fékk á
tilfinguna fyrir 10-15 árum að það þætti
kannski ekki flott að vera ungmennafélagi.
Nú er það hins vegar að komast í tísku að
tilheyra þessum samtökum. Við þurfum að
passa upp á að það sé áhugavert að starfa í
þessari hreyfingu. Ef það gengur eftir, sem
mér sýnist ætla að verða, óttast ég ekki
framhaldið hjá samtökunum."
- Hvað annars með þína aðkomu að
íþróttum ? Nú ert þú að dæma á fullu í körfu-
boltanum. Hvenær byrjaðirðu að dæma fyrir
alvöru?
„Þegar ég var orðinn of gamall til að
spila sneri ég mér að dómgæslunni. Þetta
er fjórða árið í röð sem ég dæmi og mig
langaði lengi til þess en lagði bara ekki al-
mennilega í það. Ég skellti mér á dómara-
námskeið og eftir það varð ekki aftur snú-
ið. Mér þykir þetta óskaplega skemmtilegt
og ég nýt mín á þessum vettvangi. Ég er
núna að dæma annað árið í úrvalsdeildinni
og þetta er mjög gefandi. Þarna fær maður
fína hreyfingu, félagsskap og þátttöku í
íþróttum. Þegar ég hóf að dæma fannst
mér opnast nýr heimur því að maður átt-
aði sig ekki á því hversu sérstakur heimur
þetta er að komast í dómgæslu. Ég vona
að ég eigi nokkur ár fram undan í dóm-
gæslunni, það er vel þess virði."
- Það hefur verið eftirþví tekið að starfið
hjá HSK hefur lengið staðið í bióma. Hvað
veidurþví?
„Við verðum að hafa í huga að félagið er
stórt en innan þess eru 53 aðildarfélög. Við
erum með framkvæmdastjóra í fullu starfi
sem er þyngdar sinnar virði í gulli. HSK
byggir á mikilli hefð en árið 2010 fögnum
við aldarafmæli þess. Við búum líka að því
að sambandssvæðið er í raun að stækka
og dafna en uppbygging er töluverð á
stórum stöðum á borð við Selfoss, Hvera-
gerði, Þorlákshöfn, Hellu og Hvolsvöll, svo
einhverjir staðir séu nefndir. Við erum ekki
eins og stendur að berjast við fólksfækkun
eins og á Vestfjörðum og sums staðar á
18 SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands