Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.2006, Blaðsíða 30

Skinfaxi - 01.12.2006, Blaðsíða 30
25. Landsmót UMFÍ í Kópavogi 5.-8. júlí 2007: Mótið haldið við kjöraðstæður þar semallt ertilalls Risalandsmót Ungmennafélags íslands verður haldið I Kópavogi, dagana 5.-8. júlí næsta sumar. Þetta landsmót verður eitt stærsta mót sem haldið hefur verið. UMFÍ fagnar 100 ára afmæli á næsta ári en hreyfingin var stofnuð 2. ágúst 1907. Að auki er þetta 25. Landsmótið og því tilefni til hátíðarmóts. Mótið verður haldið við kjöraðstæður í Kópavogsbæ, en bærinn heldur veglega menning- arhátíð sína samhliða og í samvinnu við Landsmótið. 4. júlí er móttaka keppenda en undirbúningur fyrir keppni hefst kl. 8 á fimmtudeginum. Formleg mótssetning hefst kl. 20 að kveldi fimmtudagsins. Keppnin heldur síðan áfram á föstudegin- um 6. júlí en henni lýkur að mestu á laugardeginum og þá verða stórtónleikar og stórdansleikur. Dagskrá Landsmótsins byggirá hefðbundnum keppnisgrein- um í gegnum tíðina. Þær eru blak, borðtennis, bridds, dans, fim- leikar, frjálsar íþróttir, glíma, golf, handbolti, hestaíþróttir, íþróttir fatlaðra, knattspyrna, körfubolti, skák, skotfimi, sund og siglingar. Aukframangreindra keppnisgreina erað sjálfsögðu keppni í starfsíþróttum sem alltaf vekja mikla athygli. Þær eru gróðursetn- ing, jurtagreining, lagt á borð, pönnukökubakstur, stafsetning og starfshlaup. Háð verður margs konar keppni utan stigagjafar en þar eigast við hópar og flokkar m.a. í fótbolta, tennis, golfi, götuhlaupi, rat- leik, fitness, hjólreiðum, strandblaki, karate, kubbi, bandí, sky- Imingum, hringdansi, sjóstangaveiði, almennri hreysti, sjósundi, skvassi, fjallamaraþoni, þríþrautarkeppni, (sund, hlaup, hjól) og jafnvel lendingum flugvéla. Einnig verður sérmót í sparkvallafót- bolta með þátttöku skólaliða af öllu landinu. Þá má líka nefna íþróttakeppni og sýningar eldri félaga, t.d. í ringó, boccia, golfi, fimleikum, línudansi, hringdansi, stafagöngu og víkingaspili. Af þessari upptalningu að dæma verður nóg fyrir stafni á mót- inu, í keppni, þúsundir horfa á og öll þjóðin mun fylgjast með. Sýningahald verðurfjölbreytt landsmótsdagana og ber þar hæst sjálfa afmælissýningu UMFÍ. Einnig er gert ráð fyrir fornbílasýnin- gu, mótorhjólasýningu, sýningu í hundasporti, bátasýningu, hóp- dönsum og harmonikkuhátíð auk kvikmyndarhátíðar í Smárabíói. Gistimöguleikar keppenda og annara gesta eru nánast ótæm- andi. Verður vandað vel til þeirra, m.a. gista keppendur í sérstök- um keppendatjaldbúðum á Kópavogstúni. Góð aðstaða er í boði til útivistar og fjölbreytts mannlífs. íþróttamannvirki eru til reiðu fyrir mótshaldið, íþróttaleikvangar, íþróttahús, stórar sundlaugar, söfn, sýningarsalir og tónlistarhús en þara fara fram menningar- viðburðir Landsmótsins. Einnig í húsakynnum í Versölum, Smára- lind, Smáranum og í miðbæ Kópavogs. Björn Hermannsson, framkvæmdastjóri Landsmótsins í Kópa- vogi, segir undirbúning hafa gengið vel. „Með góðri skipulagningu höldum við Risalandsmót þar sem allir finna eithvað við sitt hæfi. Við fáum hvarvetna frábærar mót- tökur og undirtektir. Mótið verður haldið við kjöraðstæður þar sem allt er til alls. Það hefur fátt komið okkur á óvart í undirbún- ingnum fyrir mótið sem krefst gríðarlegrar skipulagningar. Það verður fullt af óvæntum uppákomum og við leggjum áherslu á að fólk skemmti sér og njóti þess að vera í Kópavogi," sagði Björn Hermannsson. 30 SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.