Skinfaxi - 01.08.2008, Blaðsíða 6
Framganga handboltalandsliðsins
blæs nýju lífi í íslenskt íþróttalíf
Þegar litið er um öxl frá því að
Skinfaxi kom síðast út hefur
ýmislegt á dagana drifið. f
ágústmánuði fóru fram tveir
stórir íþróttaviðburðir, 11. Ungl-
ingalandsmót UMFÍ í Þorláks-
höfn og Ólympíuleikarnir í
Peking. Unglingalandsmótið
heppnaðist afburðavel og dró
að sér fjölda keppenda og gesti.
Umgjörð mótsins var sérlega
glæsileg, íþróttamannvirkin
fyrsta flokks og aðstaða fyrir
áhorfendur til fyrirmyndar.
Unglingalandsmótin hafa skapað
sér ákveðna virðingu í íþrótta-
flóru landsins. Þar stíga margir
sín fyrstu skref á íþróttaferlin-
um og minnast þátttöku í mót-
unum með hlýjum hug. Ástæða
er til hlakka til næsta móts sem
verður haldið í Grundarfirði um
næstu verslunarmannahelgi. Þar
sitja menn ekki auðum höndum
og undirbúningur fyrir mótið er
nú þegar hafinn af fullum krafti.
Líklega hefur ekki farið fram
hjá neinum glæsilegur árangur
íslenska landsliðsins í hand-
knattleik á Ólympíuleikunum í
Peking. fslenska liðið hreppti
silfurverðlaun fyrir eitt stærsta
íþróttaafrek sem unnið hefur
verið í sögu þjóðarinnar. Þetta
var í fjórða skipti sem íslend-
ingar vinna til verðlauna á
Ólympíuleikum og var þessum
rnerka áfanga fagnað með
ógleymanlegum hætti. Ekki
voru miklar væntingar fyrir leik-
ina en fljótlega varð ljóst að
hverju stefndi enda lék liðið við
sinn hvern fingur og uppskar
að lokum silfurverðlaun. Það er
ekki spurning að þessi árangur
á eftir að verða íþróttalífi hér á
landi mikil lyftistöng þegar fram
í sækir. Ekki einungis fyrir hand-
boltann heldur allar íþrótta-
greinar.
Þetta ýtir ennfremur undir
áhuga barna og unglinga á
íþróttaiðkunum almennt. Fyrir-
myndirnar eru til staðar sem
ungviðið lítur upp til. Árangur
íslenska landsliðsins vakti ekki
bara athygli hér á landi heldur
sáu margir af stærstu fréttamiðl-
um i heiminum ástæðu til að
fjalla um þennan einstaka árang-
ur. fsland fékk þarna glæsilega
landkynningu sem mun skila
sér enn frekar þegar fram í sækir.
Það er lag og íslenskt íþrótta-
líf nýtur meðbyrs um þessar
mundir. Þökk sé framgöngu
íslenska handknattleikslands-
liðsins á Ólympíuleikunum í
Peking.
Jón Kristján Sigurðsson,
ritstjóri
Leiðabókin Göngum um
ísland gefin út í sjötta sinn
Leiðabók Ungmennafélags íslands,
Göngum um ísland kom út í byrjun
sumars. Þetta er í sjötta sinn sem bókin
ergefin úten hún inniheldur upplýsing-
ar um stikaðar gönguleiðir. Um er að ræða
styttri leiðir, sem tekur um 1-2 tíma að
ganga. I bókinni eru upplýsingar um upp-
hafsstað hverrar göngu og stutt leiðar-
lýsing. Fjallað er alls um 289 stuttar
gönguleiðir um allt land.
Frekari upplýsingar um leiðirnar og um
lengri gönguleiðir ásamt upplýsingum
um lengd þeirra eru að finna á vefnum
www.ganga.is. Á heimasíðunni má einnig
finna fjölda upplýsinga er varða göngu-
búnað og undirbúning fyrir gönguferðir.
I leiðabókinni eru einnig upplýsingar
um verkefnið Fjölskyldan á fjallið. Sam-
bandsaðilar Ungmennafélags Islands
hafa tilnefnt 20 fjöll sem bera nú gesta-
bækur í sumar. Þeir sem skrá sig í bæk-
urnar lenda í lukkupotti UMFl er dregið
verður úr í haust.
Leiðabókin er aðgengileg á öllum Olís-
stöðvum um landið og er öllum að kostn-
aðarlausu.
Grípið eintak og skellið ykkur í göngu
- það er góð tilbreyting að fara i stuttar
gönguferðir!
Göngum um ísland
289 stuttar gönguleiðir
Fjölskyldan á fjallið/
20 Qallgönguleiðir
w
Skinfaxi 3. tbl. 2008
Ritstjóri: Jón Kristján Sigurðsson.
Ábyrgðarmaður: Flelga Guðrún
Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ.
Ljósmyndir: Jón Kristján Sigurðsson,
Ómar Bragi Stefánsson o.fl.
Umbrot og hönnun: Indígó.
Prentun: Prentmet.
Prófarkalestur: Fielgi Magnússon.
Auglýsingar: Miðlun ehf. og
Gunnar Bender.
Ritnefnd:
Björg Jakobsdóttir, formaður, Anna R.
Möller og Sigurður Guðmundsson.
Skrifstofa UMFÍ/Skinfaxa:
Þjónustumiðstöð UMFl,
Laugavegi 170-172,105 Reykjavík.
Sími: 568-2929
Netfang: umfi@umfi.is
Heimasíða: www.umfi.is
Starfsmenn:
Sæmundur Runólfsson, framkv.stjóri,
Ómar Bragi Stefánsson, tandsfulltrúi,
með aðsetur á Sauðárkróki,
Guðrún Snorradóttir, landsfulltrúiog
verkefnisstjóri forvarna,
Helgi Gunnarsson, fjármálastjóri,
Jón Kristján Sigurðsson, ritstjóriSkinfaxa
og kynningarfulltrúi,
Alda Pálsdóttir, skrifstofustjóri.
Stjórn UMF(:
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður,
Ásdís Helga Bjarnadóttir, varaformaður,
Björn Ármann Ólafsson, gjaldkeri,
Örn Guðnason, ritari,
Hringur Hreinsson, meðstjórnandi,
Einar Haraldsson, meðstjórnandi,
Björg Jakobsdóttir, meðstjórnandi,
Eyrún Harpa Hlynsdóttir, varastjórn,
Haraldur Þór Jóhannsson, varastjórn,
Jóhann Tryggvason, varastjórn,
Einar Jón Geirsson, varastjórn.
Forsíðumynd:
Aðalmynd: Lið HSH var valið fyrirmyndar-
félag á Unglingalandsmótinu í Þorlákshöfn.
Neðri mynd til vinstri: I lýðháskólanum í
Sönderborg.
Neðri mynd til hægri: Frá frjálsíþróttaskóla
UMFl.
6 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags fslands