Skinfaxi - 01.08.2008, Side 13
Garðar Svansson, formaður HSH:
Snæfellingar eru yfir
höfuð mikið baráttufólk
Það hefur vakið eftirtekt hve starfið
innan Héraðssambands Snæfells-
ness- og Hnappadalssýslu hefur
verið kröftugt og blómlegt. Innan
héraðssambandsins í dag eru 13
aðildarfélög og félagar eru um tvö
þúsund að sögn Garðars Svanssonar,
formanns HSH. Unglingastarf hefur
verið með miklum ágætum og þátt-
taka HSH á Unglingalandsmótum
UMFI hefur vakið verðskuldaða
athygli. HSH hefur síðastliðin þrjú
ár í röð verið valið fyrirmyndarfélag
mótsins.
Garðar byrjaði fyrst að fara á héraðsþing
16 ára gamall, þá í félagsheimilinu Breiða-
bliki, árið 1984. Hann hefur setið héraðs-
þing allar götur síðan. Garðar segist hafa
komið lítið nálægt keppni sjálfur heldur
beint kröftum sínum meira að félagsmál-
unum.
Á héraðsmet í boltakasti
„Ég var mikill grjótkastari þegar ég var
gutti og á fyrsta íþróttamótinu, sem ég
mætti á, var ég níu ára gamall. Ég tók þátt í
boltakasti og I fyrsta kastinu setti ég héraðs-
met og það met stendur í dag," segir Garðar
léttur í bragði.„Ég er afar sáttur að vinna í
þessum geira og þetta hefur gefið mér heil-
mikið."
Aðspurður hvort formaðurinn sé ekki
ánægður með framgöngu síns fólks og
stöðuna innan héraðssambandsins segir
Garðar Svansson að hann geti ekki annað
en verið stoltur. I haust hafi farið fram upp-
skeruhátíðar innan félaganna eftir sumarið
og nú sé vetrarstarfið komið í fullan gang.
Garðar segir óhætt að segja að allt iði af lífi
í HSH.
„í dag eru um tvö þúsund félagar skráðir í
HSH og nýlega færðum við skrifstofuna inn
í Grundarfjörð frá Stykkishólmi. Skipti urðu
á framkvæmdastjóra en staður skrifstof-
unnar ákvarðast af því hvaðan fram-
kvæmdastjórinn kemur."
Kraftur í Snæfellingum
- Hverju þakkar þú það að starfHéraðs-
sambandsins skuli vera jafnbiómlegt og það
erídag?
„Það er bara mikill kraftur í Snæfellingum
eins og sést í knattspyrnunni, körfuboltan-
Garðar hlaut titilinn „matmaður þingsins" á sambandsþingi UMFf
sem haldið var á Þingvöllum í október 2007.
Ungar körfuboltahetjur úr Snæfelli í Stykkishólmi.
um og blakinu svo að ég nefni eitthvað.
Snæfellingar eru yfir höfuð mikið baráttu-
fólk. Þátttaka okkar fólks í Unglingalands-
mótinu ber einnig glöggt vitni um kröftugt
starf."
- Nú hefur HSH verið valið fyrirmyndar-
félag á Unglingalandsmóti þrjú ár í röð. Hver
er ástæðan fyrir því?
„Það er mikill metnaður hjá börnunum
og unglingunum sjálfum. Þau vita að þau
eru til fyrirmyndar og fá viðurkenningu fyrir
það. Gunnar Svanlaugsson, skólastjóri og
hvatningarstjóri, hefur náð vel til krakk-
anna, þekkir þau vel, og þetta er afrakstur-
inn. Við ætlum ekki svo glatt að láta þessa
viðurkenningu af hendi og Ijóst að hinir
verða að fara að veita okkur meiri sam-
keppni," sagði Garðar.
Spenningur í loftinu
-HSH stendur fyrir næsta Unglingalands-
móti sem haldið verður í Grundarfirði.
Hvernig gengur undirbúningurinn?
„Undirbúningur gengur samkvæmt áætl-
un og það er hugur í fólki að vinna þetta vel.
Jarðvegsframkvæmdum er að Ijúka og
gerviefni verður lagt á íþróttavöllinn með
hækkandi sól i vor. Það er tilhlökkun meðal
fólks hér á svæðinu. Það er áskorun og upp-
lyfting fyrir íþróttalífið á Snæfellsnesi allt
að fá Unglingalandsmótið hingað. Það er
spenningur í loftinu og við ætlum að taka
vel á móti fólki."
Frábær skemmtun
- Unglingalandsmótin íþinum huga:
Hvernig finnst þér hafa til tekist?
„Ég er mjög ánægður með að Ungmenna-
félag Islands tók þessa stefnu, að halda Ungl-
ingalandsmót yfir höfuð. Ég hafði efasemd-
ir um tíma um að halda mótið um verslunar-
mannahelgina. Ég greiddi því samt atkvæði
mitt og sé ekki eftir því. Unglingalandsmót-
in hafa sannað gildi sitt og hér er á ferð frá-
bær skemmtun fyrir alla fjölskylduna," sagði
Garðar.
Framtíðin er björt
- Hvernig sérðu þú héraðssambandið fyrir
þér I nánustu framtið?
„Framtíðin er björt I mínum huga en starf
héraðssambandsins er að breytast frá því
sem áður var. Hið beina íþróttastarf hefur
smám saman færst yfir til aðildarfélaganna,"
sagði Garðar sem setið hefur í stjórn HSH í
13 ár samfleytt.Jþróttalíf hefur alltaf staðið
sterkt hér á Snæfellsnesinu og það mun
gera það framvegis. Við eigum fullt af
áhugasömu og efnilegu íþróttafólki sem er
Héraðssamþandinu alls staðar til sóma í
keppni og leik. Við erum bjartsýn að eðlis-
fari og sjáum fram á bjarta tíma með blóm
í haga," sagði Garðar Svansson, formaður
HSH, í samtali við Skinfaxa.
SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands 13