Skinfaxi - 01.08.2008, Síða 16
Eftirtaldir aðilar
styðja starfsemi
Ungmennafélags íslands:
Reykjavík
Alþýðusamband (slands, www.asi.is,
Sætúni 1
Arkþing ehf., Bolholti 8
B.K. flutningar ehf., Krosshömrum 2
Bakarameistarinn ehf., Stigahlíð 45-47
Blaðamannafélag (slands, Síðumúla 23
Borgarholtsskóli, Mosvegi
Bóksala kennaranema,
Kennaraháskólanum við Stakkahlíð
Danica sjávarafurðir ehf., Laugavegi 44
Eyrir fjárfestingafélag ehf.,
Skólavörðustíg 13
Fjölhönnun hf., verkfræðistofa,
Stórhöfða 27
Færeyska sjómannaheimilið,
Brautarholti 29
G.S. varahlutir ehf., Bíldshöfða 14
Gáski sjúkraþjálfun ehf., Bolholti 8
Gissurog Pálmi ehf., byggingafélag,
Álfabakka 14a
Grænn markaður ehf., Réttarhálsi 2
Hárgreiðslustofan Stubbalubbar,
Barðastöðum 1-3
Kaþólska kirkjan á fslandi,
Hávallagötu 14-16
Kjaran ehf., Síðumúla 12-14
Knattspyrnusamband (slands,
Laugardal
Löndun ehf., Kjalarvogi 21
Menntamálaráðuneytið,
Sölvhólsgötu 4
Nýi ökuskólinn ehf., Klettagörðum 11
Rafey ehf., Hamrahlíð 33a
Rafstilling ehf., Dugguvogi 23
Raftíðni ehf., Eyjarslóð 3
Ráðgjafar ehf., Garðastræti 36
Rimaskóli, Rósarima 11
Saxhóll ehf., Nóatúni 17
Seljakirkja, Hagaseli 40
S(BS, Síðumúla 6
Snurfus slf almennar bílaviðgerðir,
Katrínarlind 3
Stórborg fasteignasala ehf.,
Kirkjustétt 4
T. arkTeiknistofan ehf., Brautarholti 6
Tannlæknastofa BarkarThoroddsen,
Borgartúni 33
Trésmiðjan Jari ehf., Funahöfða 3
Túnþökuþjónustan ehf, s. 897 6651,
Reykási 43
Útfararstofa Kirkjugarðanna ehf.,
Vesturhlíð 2
VA arkitektar ehf., Borgartúni 6
Veigur ehf., Langagerði 26
Vinnumálastofnun, Hafnarhúsinu,
Tryggvagötu 17
Víkurós ehf„ bílamálun og réttingar,
Bæjarflöt 6
XL verktakar ehf., Faxafeni 12
Yogastöðin Heilsubót, Síðumúla 15
Þýðingaþjónusta Boga Arnars,
Engjaseli 43
Öskjuhlíðarskóli, Suðurhlíð 9
Kópavogur
ALARK arkitektar ehf., Dalvegi 18
dk hugbúnaður ehf., www.dk.is,
Hlíðasmára 17
Freyðing ehf., Kórsölum 1
Gæðaflutningar ehf., Krossalind 19
Hagblikk ehf., Smiðjuvegi 4c
Húseik ehf., Bröttugötu 4
(slandsspil sf., Smiðjuvegi 11 a
Kríunes ehf., Kríunesi við Vatnsenda
Púst ehf., Smiðjuvegi 50
Rafvirkni ehf., Akralind 9
Söluturninn Smári, Dalsvegi 16c
Líflegt starf hjá Glóðinni
íþróttafélagið Glóð í Kópavogi var
stofnað 24. okt. 2004. Allir geta
orðið félagar óháð aidri. Markmið
félagsins er að stuðla að bættri
heilsu og kjörorð þess er:
HREYFING - FÆÐUVAL - HEILSA.
Sigríður Bjarnadóttir, formaður Glóð-
arinnar, segir að ýmislegt hafi á dagana
drifið í sumar. Dagana 14.-16. júní komu
níu Danir frá Suðvestur-Jótlandi í heim-
sókn til félagsins og í tilefni af því var
haldið mót.
Farið var í dagsferð um Borgarfjörð í
yndislegu veðri. Þar var m.a. komið við
í Húsafelli, Reykholti, Deildartungu, búið
á Hesti skoðað og farið um Hvalfjörð og
endað í mat hjá Sigurbjörgu í bústað
fjölskyldu hennar í Kjósinni.
Haldinn var fyrirlestur og í honum var
gerður samanburður á heilsufari og aldri
fólks á Norðurlöndum. Einnig var keppt
í ringói og haldin námskeið í ýmsum
greinum, svo sem „Afró“-línudansi,
seniordönsum o.fl. Leiðbeinendur komu
bæði frá Danmörku og Islandi.
Félagar hafa æft ringó og pútt tvisvar
í viku og línudans einu sinni í viku.
Fram undan er mikið starf. Farin var
kynningar- og skemmtiferð Glóðar um
norðanverða Vestfirði dagana 20.-22.
september. Markmið ferðarinnar var að
kynna starfsemi félagsins almennt og að
vekja fólk til umhugsunar um gildi hreyf-
ingar, fæðuvals og heilsu og þar að auki
var ringó kynnt, en það er ný íþróttagrein
hér á landi sem félagar í Glóð hafa nú
æft á annað ár.
I ringó eru áhöldin tveir gúmmíhring-
ir er líkjast hringjum sem notaðir eru í
sundi. Þessi leikur er í grunnatriðum
byggður á sömu reglum og eru í strand-
blaki. Leikurinn er auðveldur í fram-
Félagar úr Glóðinni
í Kópavogi iðka
ringóvið Lista-
safn Kópavogs.
kvæmd og hentar vel fyrir bæðin kynin.
Ringó kemur upphaflega frá Póllandi og
Tékklandi en hefur verið að hasla sér völl
víða um Evrópu þar sem íþróttin nýtur
ört vaxandi vinsælda.
Farið verður til Kanaríeyja á „Golden
Age“-mótið, 13.-26. nóvember, sem
Fimleikasamband Evrópu stendur fyrir
þriðja hvert ár. Höfum við tekið þátt í
einu slíku móti, sem var fyrsta mót sinn-
ar tegundar fyrir fólk á aldrinum 50+ og
höfum við þegar hafið æfingar á atriði
fyrir það.
Einnig verður haldið áfram að æfa
ringó og pútt í vetur og er verið að út-
vega húsnæði fyrir þær æfingar. Gerum
við ráð fyrir að fá inni á sömu stöðum
og s.l. vetur. Línudans verður æfður
einu sinni í viku eins og verið hefur. I
vetur verður lýst kjöri íþróttakarls og
íþróttakonu Glóðar 2008.
Sigríður sagði alla velkomna í félag-
ið og geta þeir sem vilja skráð sig á blöð
sem liggja frammi í afgreiðslum Gull-
smára og Gjábakka. Einnig mun verða
hægt að fá kynningarbækling um
félagið á sömu stöðum.
16 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags (slands