Skinfaxi - 01.08.2008, Qupperneq 17
Afhenti gjörðabækur Umf. Unglings í Geiradal
Nýlega kom gamall ungmennafélagi,
Halldór Jónsson frá Króksfjarðarnesi,
færandi hendi í höfuðstöðvarnar. Hann
hafði meðferðis garnlar gjörðabækur
Umf. Unglings í Geiradal og afhenti þær
UMFÍ til varðveislu. Umf. Unglingur
var stofnað 1909 og starfaði til 1980 að
það var sameinað Umf. Aftureldingu í
Reykhólahreppi. Þetta eru fundargerða-
bækur félagsins frá upphafi til loka og
einnig handskrifað blað félagsins um
áratugaskeið sem nefndist Geirdal.
Allt er þetta vandað að frágangi og
ritað með fagurri rithönd ýmissa félags-
manna. Bækurnar verða varðveittar hjá
UMFÍ en öllum er frjálst að skoða þær
og leita þar upplýsinga.
Halldór Jónsson er frá Garpsdal í Gils-
firði en var lengst af starfsmaður kaup-
félagsins í Króksfjarðarnesi. Hann starf-
aði lengi innan ungmennafélagsins og
tók virkan þátt í stærsta verkefni þess
sem var bygging félagsheimilisins Voga-
lands í Króksíjarðarnesi. Það voru félags-
menn frá 13 heimilum í sveitinni sem
lyftu því grettistaki. Halldór var gjald-
keri Unglings í 20 ár og síðar formaður
um 10 ára skeið. Bækurnar varðveitti
hann eftir daga félagsins og kvaðst hafa
Helga Guðrún
Guðjónsdóttir,
formaður UMFl,
og Halldór Jónsson
í höfuðstöðvum
UMFÍ.
valið fremur að afhenda þær UMFÍ en
senda þær á Þjóðskjalasafnið.
Halldór, sem býr nú í Hafnarfirði, er
hinn ernasti þrátt fyrir að vera orðinn
92 ára að aldri. Hann tók virkan þátt í
leiklist innan félagsins og kvaðst hiklaust
mundu leggja hana fyrir sig nú væri hann
70 árum yngri. Helga G. Guðjónsdóttir,
formaður UMFÍ, færði Halldóri bókina
Vormenn Islands að gjöf í þakklætis-
skyni fyrir ræktarsemi hans í garð UMFÍ
og sést hér á myndinni ásamt Halldóri.
HSV og ísafjarðarbær gera
með sér verkefnasamning
Isaíjarðarbær og Héraðssamband Vest-
firðinga (HSV) hafa gert með sér verk-
efnasamning sem hefur það að mark-
miði að renna enn frekari stoðum undir
íþrótta- og æskulýðsstarf í sveitarfélag-
inu. Samningnum fylgja greiðslur upp
á átta milljónir króna gegn vinnu við
ýmis verkefni.
Með samningnum aukast greiðslur
bæjarins til HSV urn tæp 170% og sér
sambandið um að ráðstafa bæði fjár-
munum og verkefnum til aðildarfélaga
sinna með tilliti til barna- og unglinga-
starfs þeirra.
Segja má að um tímamótasamning sé
að ræða þar sem verið er að tryggja HSV
í sessi sem fulltrúa íþróttafélaganna í
bænum. Beinum samningum bæjarins
við íþróttafélögin fækkar með honum,
en fjárframlagið eykst.
Meðal þeirra verkefna sem skilgreind
eru í fylgiskjali samningsins eru vinna
við atburði Skíðaviku, árleg þrif á fjör-
um, umsjón með sparkvöllum bæjarins,
þrif á rakettum og öðru drasli eftir ára-
mót og umsjón með Fossavatnsgöng-
unni og Óshlíðarhlaupinu.
„Með þessum samningi eru stigin
næstu skref í framtíðarsýn HSV og ísa-
fjarðarbæjar. Stjórnvöld í bænum hafa
komið mjög myndarlega að þessu og
ég get ekki annað séð en að samstarf
þessara aðila eigi bara eftir að aukast í
framtíðinni. Samstarfið er mjög spenn-
andi og lagt upp með að báðir aðilar
hafi hag af því. Samningurinn byggir
tvímælalaust undir grasrótarstarfið í
félögunum þannig að hægt verður að
beina kröftunum í samfélagsverkefni
sem bæjarbúar njóta góðs af. I því sam-
bandi get ég nefnt skipulagningu fyrir
17. júní, Skíðavikuna og Aldrei fór ég
suður og fá á móti greitt fyrir þessi verk-
efni. Samningurinn á eftir að gera góða
hluti fyrir félögin og er áframhald á hinu
góðu samstarfi sem við eigum með bæjar-
félaginu. Yfirvöld í bænum hafa góðan
skilning á gildi íþróttahreyfingarinnar í
uppeldi barnanna okkar,“ sagði Jón Páll
Hreinsson, formaður HSV, í samtali við
Skinfaxa.
Eftirtaldir aðilar
styðja starfsemi
Ungmennafélags íslands:
Tannlæknastofa Sifjar Matthíasdóttur,
Hamraborg 11
Garðabær
H.Filipsson sf., Miðhrauni 22
Raftækniþjónusta Trausta ehf.,
Lyngási 14
Suðurtún ehf., Súlunesi 12
Vistor hf., Hörgatúni 2
Hafnarfjörður
Byggingafélagið Sandfell ehf.,
Reykjavíkurvegi 66
Flúrlampar ehf., Kaplahrauni 20
Klæðning ehf., Reykjavíkurvegi 68
Skógræktarfélag Hafnarfjarðar,
Skúlaskeiði 32
Suzuki umboðið ehf., Kapalhrauni 1
Verkalýðsfélagið Hlíf,
Reykjavíkurvegi 64
Reykjanesbær
Golfklúbbur Suðurnesja,
Hólmsvelli Leiru
Hitaveita Suðurnesja, Brekkustíg 36
Reykjanesbær,Tjarnargötu 12
Tannlæknastofa Einars Magnúss ehf.,
Skólavegi 10
Varmamót ehf., Framnesvegi 19
Verslunarmannafélag Suðurnesja,
Vatnsnesvegi14
Grindavík
Þorbjörn hf., Hafnargötu 12
Mosfellsbær
Garðyrkjustöðin Gróandi, Grásteinum
Guðmundur S. Borgarsson ehf.,
Skeljatanga 4
(sfugl ehf., Reykjavegi 36
Kjósarhreppur www.kjos.is, Ásgarði
Rögn ehf., Súluhöfða 29
Akranes
Byggðarsafn að Görðum, Akranesi
GTTækni ehf., Grundartanga
(þróttabandalag Akraness,
Jaðarbökkum
Runólfur Hallfreðsson ehf., Krókatúni 9
Straumnes ehf., rafverktakar,
Krókatúni 22-24
Sýslumannsembættið á Akranesi,
Stillholti 16-18
Borgarnes
Bókhalds- og tölvuþjónustan sf„
Böðvarsgötu 11
Eyja- og Miklaholtshreppur, Hofstöðum
Golfklúbbur Borgarness, Hamri
Landbúnaðarháskóli íslands, Hvanneyri
Laugaland hf„ Laugalandi
PJ byggingar ehf„ Hvannaeyrargötu 3
Sprautu-og bifreiðaverkstæði
Borgarness sf., Sólbakka 5
Sæmundur Sigmundsson ehf., Brákarey
Stykkishólmur
Grunnskólinn í Stykkishólmi,
Skólastíg 11
Tindur ehf., Hjallatanga 10
Þ.B. Borg ehf., Silfurgötu 36
Grundarfjörður
Kaffi 59, Grundargötu 59
Ólafsvík
Fiskiðjan Bylgja hf, Bankastræti 1
SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands 17