Skinfaxi - 01.08.2008, Qupperneq 22
Halldór Ólafsson, formaður Ungmennafélagsins Fram:
LÍFLEGT SUMARSTARF
hjá Umf. Fram á Skagaströnd
Nú, þegar sumarið
er senn á enda,
er gaman að rifja
upp hvað krakkar
í Umf. Fram á
Skagaströnd hafa
haft fyrir stafni. St;
félagsins byrjaði á
boltanámskeiði undir stjórn Ágústs Inga
sem endaði með þátttöku á Smábæjar-
leikum á Blönduósi. Eftir fótboltanám-
skeiðið hófst starf á íþróttavellinum sem
var eins og undanfarin ár í góðu sam-
starfi við Sveitarfélagið Skagaströnd. Að
þessu sinni voru þátttakendur um 45.
Hér var um að ræða sambland af kofa-
smíði, skólagörðum og almennri hreyf-
ingu, m.a. frjálsum íþróttum, undir
stjórn Hilmars Sigurjónssonar.
Margir tóku þátt í starfinu
Við hjá Ungmennafélaginu Fram erum
eins og alltaf ákaflega stolt af börnunum
okkar en að þessu sinni erum við sérstak-
lega ánægð með hvað margir tóku þátt í
íþróttamótum í sumar og hversu góður
árangur náðist. Umf. Fram lenti í þriðja
sæti á héraðsmóti USAH sem haldið
var á Blönduósi. Þar unnu til verðlauna
Róbert Björn Ingvarsson, Stefán Velemir,
Elvar Geir Ágústsson, Guðrún Anna
Halldórsdóttir, Sigurbjörg Birta Bernd-
sen, Guðjón Örn Kristjánsson og Laufey
Inga Stefánsdóttir.
Á Barnamóti USAH, sem haldið var í
Húnaveri, átti Umf. Fram 15 keppendur
sem allir stóðu sig með mikilli prýði.
Unnum til verðlauna á
Unglingalandsmótinu
Níu þátttakendur frá Umf. Fram tóku
þátt í Unglingalandsmóti UMFÍ sem nú
var haldið í Þorlákshöfn. Hafa aldrei jafn-
margir keppendur frá Umf. Fram tekið
þátt í þessu stórskemmtilega móti sem
er í raun ein stór hátíð fyrir alla fjölskyld-
una. Að sjálfsögðu var allt okkar fólk til
fyrirmyndar og stóð sig allt frábærlega.
Krakkarnir kepptu í frjálsum íþróttum
og fótbolta. Á landsmótinu vann Stefán
Velemir til verðlauna en hann hlaut
silfurverðlaun í kúluvarpi. Frændi hans,
Róbert Björn Ingvarsson, varð fjórði í
800 metra hlaupi.
Þristurinn 2008
Þristurinn, frjálsíþróttamót, þar sem
USAH, USVH og UMSS keppa, var að
þessu sinni haldið að Reykjum í Hrúta-
firði. Mótið var æsispennandi og barátt-
an í fyrirrúmi en svo fór að lokum að
USAH sigraði, m.a. með góðum árangri
krakkanna frá Skagaströnd. Frammar-
arnir, sem tóku þar þátt, voru Róbert
Björn Ingvarsson, Sigurbjörg Birta
Berndsen, Elvar Geir Ágústsson, Guðrún
Anna Halldórsdóttir og Stefán Velemir.
Lönduðu þau samtals 7 gullverðlaunum,
4 silfurverðlaunum og einu bronsi.
Silfur á MÍ
Rúsínan í pylsuendanum var að þeir
frændur Stefán Velemir og Róbert Björn
Ingvarsson tóku þátt á Meistaramóti
Islands sem haldið var að Laugum í
Þingeyjarsýslu nú um miðjan ágúst.
Gerðu þeir sér lítið fyrir og hlutu báðir
silfurverðlaun í sínum greinum. Róbert
í 800 m hlaupi en Stefán í kúluvarpi.
Eftir þessa upptalningu á afrekum
sumarsins er ljóst að við getum öll verið
virkilega stolt af unga fólkinu okkar og
því mikilvægt að foreldrar haldi áfram
að hvetja börnin til þátttöku í íþróttum.
Stefán Velemir með silfurverðlaunin sem hann
hlaut í kúluvarpi á Unglingalandsmótinu í
Þorlákshöfn.
Krakkarnir koma saman og grilla sér eitthvað
gott í gogginn eftir einn keppnisdaginn í
sumar.
22 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags fslands