Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1943, Síða 10

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1943, Síða 10
en veðurstofur, sem aðstoða loftsiglingar, hafa notað þessa þekkingu árum saman, og flugmenn verða að læra það. Þetta er ómissandi þekking fyrir lofthernað og flugsamgöngur. Vér gætum flogið án benzíns og þótt vér hefðum ekki alu- minium, jafnvel þótt vér hefðum ekki loftskeyti, en vér gætum það ekki, ef vér þekktum ekki veðurfræði Bjerkness. Þér kynnuð nú að spyrja hvaðan hið nýkomna morgunloft væri og hvernig það hafi kólnað, þornað og orðið tært. Og þarna er einmitt kjarni hinna nýju veðurvísinda, og þarna verð- ur veðurfræðin að skiljanlegri og mjög svo skynsamlegri landafræði. Morgunloftið, sem vér erum að tala um, er komið frá Canada, en þar hefir það verið hreinsað. Möguleikar til loft- hreinsunar eru ekki fyrir hendi allsstaðar í heiminum, þótt þeir séu það í Canada. Sérstak- lega á þetta við á haustin, veturna og snemma á vorin. Norðurhluti Ameríku verður þá nærri því að vélrænni kælistöð. Hin vestlægu Kletta- fjöll varna nýjum loftstraumum að komast inn á þetta svæði, og loftið er hreyfingarlaust vik- um saman. Snævi þakin jörðin, vötnin ísilögð og hinn sífelldi kuldi við Hudsonflóann kæla neðsta lofslagið sem næst þeim liggur. Þetta kemur jafnvægi og kyrrð á lofthjúpinn upp úr öllu valdi. Vegna þess, að kalda loftið er þungt í sér og liggur í þykku lagi og þéttu lágt niður við jörðina, er hér ekki um uppstreymi af heitu og röku lofti að ræða, sem leitar upp í kaldari og hærri loftslög, en einmitt slíkt fyrirbrigði myndar skýin. Þoka getur samt myndast þarna við yfirborð jarðar, en fyrir ofan hana eru hin- ar löngu nætur norðursins stjörnubjartar út í óendanlegan himingeiminn. Og út í óendanlegt svartnættið, missir loftið smátt og smátt þann hita, sem því hefir áskotnast í fyrri ferðum sín- um um hin ýmsu svæði veraldai-innar. Árangur margra vikna kyrrstöðu verður geysilegt lofthaf, sem er allt ískalt, þurrt og hreint. Það nær alla leið vestan frá Klettafjöll- um austur til Labrador og frá ísauðnum norð- urskautsins til sléttanna í Minnesota og Norð- ur-Dakota. Og um þriðja víðernið, sem mest er um vert, er það að segja, að það er ískalt alla leið neðan frá yfirborði jarðar og upp í háloft- in. f stuttu máli: þetta er hrein kuldalcista, eða canadiskt heimskautaloft sem flugmennirnir eru vanir að nefna það. Þegar bylgja af ó- sviknu, fersku heimskautalofti flæðir suður á bóginn og inn yfir Bandaríkin — og þetta skeð- ur nærri reglubundið á fárra daga fresti, — þá þurfið þér ekki á loftvoginni að halda til þess að komast að því, hvað hér er að gerast. Hér þarf enga skarpskyggni eða kennisetningar. Þér getið séð loftið sjálft, þreifað á því og heyrt til þess. Það kemur æðandi undir heiðskýrum himni, þvert yfir Dakota-fylkin. Menn fara í þykka ullarfrakka og moka á eldinn í hitun- artækjum íbúðarhúsanna. Það flæðir suður Missisippidalinn sem kuldabylgja á vetrum, en þægilegur svali á sumrin. Vindurinn er á norðvestan og þeytir á undan sér litlum skýjahnoðrum. Á vetrum sópast þetta ef til vill alla leið suður til Tennessee eða Karó- línufylkis með frosti og heiðskýrum himni. Svertingjarnir fara að skjálfa í bjálkakofunum og lungnabólgufaraldur veldur dauðsföllum. Stundum nær þetta suður til Texas á ströndum Mexicoflóans, þar kallast þetta veðurlag „norð- angarri", og kýrnar þyrpast að eldunum við olíubrunnana til þess að fá sér hlýju, en fugla- skyttur deyja vegna ofkælingar á mýraflákun- um við ströndina. Canadiskt heimskautaloft kemst stundum suður á Floridaskaga, skaðar appelsínuræktina og veldur verzlunarráðinu á- hyggjum. Veruleg íhlaup hafa stundum náð alla leið niður til Mið-Ameríku. Þar óttast menn þennan napra norðannæðing. Canadiska heimskautaloftið er aðeins ein af mörgum tegundum loftstrauma. Svo að talað sé venjulegt almúgamál, þá felst hin mikilvæga norska uppgötvun í því, að loftið hefir alltaf sérstök einkenni. Það er aldrei bara loft, held- ur er alltaf eitthvað sérstakt við það. Það sem vér köllum „veður“ orsakast af víðáttumiklum risabylgjum í loftinu, sem flæða inn yfir lönd- in og álfurnar dögum saman í einni striklotu og flytja alltaf með sér eina eða aðra sérstaka tegund lofts, „ve‘öráttu“. Það er ekkert vísinda- legt við neina af þessum tegundum veðráttunn- ar. Sérhverja tegund er auðvelt að sjá, heyra og f inna, j afnvel borgarbúinn kannast við þetta, þótt hann geri sér ef til vill ekki sjálfur grein fyrir því. Sérhver tegund hefir sín sérstöku ein- kenni, sitt hitastig, kulda, raka, tærleika eða skyggni, hverri tegund fylgir sérstök birta. Reykurinn hagar sér mismunandi, þegar hann kemur upp úr skorsteininum eftir veðráttunni. Stundum læðist hann letilega, stundum þeytist hann áfram, stundum flýtur hann burt í lögum. Aðallega af þessum einkennum er hægt að greina og þekkja hinar ýmsu tegundir loft- strauma. Hver loftstraumur hefir sín sérkenni, sem öll til samans skapa sitt sérstaka veðurlag, „sína góðu og vondu daga“. Hvort dagurinn er þungbúinn, blíður eða leiðinlegur, fer nærri ein- göngu eftir því, hverskonar loft hvílir yfir byggðarlagi yðar á hverjum tíma. Og ef þér reynduð að lýsa veðrinu með gamla laginu sem vindátt, veðurhæð, raka, útliti skýjanna, tækist VÍKINGUR 106

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.