Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1964, Side 10

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1964, Side 10
Merktir ungskúmar, sem end- urheimtir hafa verið á ýmsum stöðum, hafa sýnt, að nokkrir þeirra reika hundruð og jafnvel þúsundir mílna meðfram strönd- um Suðurskautslandsins. Engin vitneskja hefur fengizt um, að þeir fari til annarra meginlanda. Fimm dauðir skúmar hafa fund- izt í Ástralíu og Nýja-Sjálandi, þangað hefur þá hrakið undan stormum að því er virðist. Að því er bezt verður séð, elur skúmurinn allan sinn aldur á sjálfu meginlandinu, þar sem hann verpir. Sex kaldari mánuði ársins fer hann ekki út fyrir takmörk íssins umhverfis landið. Suðurskautsskúmurinn er því heimskauts fugl í raun og sann- leika. Höfundur: Carl R. Eklund Scienti- íie American, febr. 1964. Grímur Þorkelsson. UM HÖFUNDINN. Carl R. Eklund var yfirmaður þeirrar deildar rannsóknarstofn- unar bandaríska landhersins, sem annaðist rannsóknir á heimskautasvæðunum. — Hann andaðist eftir að hann lauk við greinina „Suðurskautsskúmur- inn.“ Eklund fæddist 1909 í Tomahawk í Wisconsin. 1932 tók hann B A próf við Carleton- skólann í Oregon. Er hann hafði haft umsjón með rannsóknum á skógum um þriggja ára skeið, þá hlaut hann árið 1936 mennta- gráðuna M. A. við ríkisháskól- ann í Oregon. 1939 fór hann í fyrsta sinn til Suðurskautslands- ins, sem fuglafræðingur í leið- angri Byrds. Þá ferðaðist hann 1264 mílur á 84 dögum og kort- lagði 350 mílna strandlengju af Suðurskautslandinu. Er þessi för talin vera ein hin frábær- asta, sem vitað er um að farin hafi verið á þessum slóðum. — Hann fann einnig eyjaklasa í Georgs konungs VI. sundi. Eru eyjarnar síðan við hann kennd- ar og heita Eklundseyjar. Bandaríski flugherinn hafði sameinaða upplýsingaþjónustu fyrir hitabeltið og heimskauta- löndin í síðari heimsstyrjöldinni og var Eklund majór í þeirri deild, sem hafði rannsóknina á hendi á heimskautasvæðunum. Eftir það vann hann að rann- sóknum í líffræði og fuglafræði við Fiska og Dýralífsstofnun Bandaríkjanna. — Frá 1956 til loka jarðeðlisfræðiársins var hann í vísindaleiðangri í Wilkes- stöðinni á Suðurskautslandinu. Árið 1959 varði Eklund doktors- ritgerð í dýrafræði við Mary- landháskóla. í doktorsritgerðinni er fjallað um Suðurskautsskúm- inn, sem og 1 þessari grein. ÞýS. Nokkrar ráðleggingar viö veiðiskap Þessum ófullkomna uppdrætti læt ég fylgja nokkrar línur til að vekja athygli þeirra drengja, sem á sjóvinnunámskeið fara, og þeirra annarra, sem veiðar stunda til athugunar, og verða mætti til einhvers gagns. Ég hefi á langri leið til sjós kynnst því að fiskur heldur sig á vissum stöðum, oftast eftir botnlagi eða gróðri, og vil ég nefna nokkra líklega staði. Það er ákaflega oft að fiskur heldur sig með hraunköntum og hraun- rimum, álköntum, krikum. renn- um og hólum og öðru misdýpi. Þetta á ekki fremur við Faxa- flóa, sem þessi uppdráttur er af, heldur er það svona allt í kring- um landið. Ég vil því eindregið hvetja verðandi formenn og skipstjóra ef þeir finna líklega staði og á- líta, að það standi eitthvað glöggt með fisk, að hafa með sér VlKINGUR Alþjóðasamþykktin um öryggi mannslífa á sjó mun koma t.il framkvæmda 26. maí 1965. Er það sem næst 5 árum eftir að drög að þessari samþykkt komu fram, og 9 ár eru liðin síðan hafskipið Andrea Doria fórst, en sá atburður kom af stað umræðum um þetta mikla nauðsynjamál. Slík vinnubrögð á alþjóða vettvangi eru sízt af öllu líkleg til þess að örfa framtak og fyrirhyggju á þessu sviði. Saga öryggisaðgerða á sjónum er því miður full af dæm- um um brunna, sem ekki voru byrgðir fyrr en um seinan. Kynnið yður reglur og fyrirskipanir á þessu sviði, og þér munuð komast að raun um, að svo að segja allar meiriháttar umbætur sem komizt hafa í framkvæmd, eru í rauninni af- leiðing stórslysa á sjó. Hinar þunglamalegu aðgerðir, sem beitt er til þess að koma í framkvæmd alþjóðareglum, fegra ekki heldur á neinn hátt þessa mynd. Miklar framfarir hafa orðið í smíði skipa og tækni þar að lútandi, einkum hraða, stærð og öryggisbúnaði síðan fyrst var hcifist handa um hinar sífellt síðbúnu öryggis- varnir. Vér vonum að heimspeki frumkvæðis og framsýni, frekar en réttlætingar á þessu sviði, verði framvegis leiðarljós allra siglingaþjóða heims. (úr erlendu blaði) H. J. 224

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.