Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1967, Side 6

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1967, Side 6
Ræila í tilefni Sjómannadagsins 1967 Flutt af SVERRT GUÐVARÐSSYNI «--------------------------æ Heiðruðu áheyrendur nær og fjær! Það virðist oft á tíðum hefð á slíku mannamóti sem hér er, að gagnrýna þá hluti, sem ekki hafa tekizt svo öllum líki, eins er það jafn sjálfsagt að virða það, sem vel hefur farið. Að því leyti til er ég líklega engin undantekn- ing, og þykir mér ástæða til á þessum degi, að byrja á því að undirstrika ýmislegt af því, sem íslenzkir sjómenn og íslenzka þjóðin hafa ástæðu til að harma og óttast. Er ekki úr vegi að undirstrika fyrst þá erfiðleika og þau áföll, sem útflutningsat- vinnuvegir okkar hafa orðið fyr- ir á síðustu missirum. Þótt enn hafi aðeins lítill hluti þjóðarinn- ar orðið fyrir beinu tjóni af því stórkostlega verðfalli, sem orðið hefur á stórum hluta útflutþ- ingsafurða okkar, er tjón þeirra, sem fyrir því hafa orðið nú þeg- ar því tilfinnanlegra. Þjóðin í heild nýtur þess að búa við gjald- eyrisvarasjóði, yfirfullar verzl- anir, ný og fjölbreytt vinnutæki í öllum atvinnugreinum. Sjó- menn, útgerðarmenn og þeir sem úr aflanum vinna, eru hins veg- ar þeir sem fyrstir hafa orðið fyrir tjóni af þessum sökum. Það skal þá viðurkennt, að það kem- ur líka fljótt í þeirra hlut er vel aflast og árar. En sá er munur- inn á launþegum í landi og sjó- manninum, sem tekur laun sín í aflahlut, að sjómaðurinn verður að mestu leyti að hlýta einföld- ustu markaðslögmálum og verð- ur að taka því, að laun hans hækki eða lækki eftir því verði, sem fyrir afurðirnar fæst á er- lendum mörkuðum. Þeir sem í landi vinna, halda sínum launum óskertum og gagnrýna jafnvel og mótmæla, ef sjómenn telja eðli- legt að hjálp komi af sameigin- legu aflafé þjóðarinnar, þegar þannig stendur á. Sömu aðilum þykir sjálfsagt að vitna til hæstu launa sjó- manna, þegar vel gengur og gera þá kröfur um sambærileg laun frá sínum atvinnuvegi. Þegar ofaná þetta bætist, að sú vetrar- vertíð, sem nú er nýlokið, er ein sú erfiðasta, sem fiskiskipafloti okkar hefur búið við nú í tæpa V2 öld vegna hinnar erfiðu veðr- áttu og stöðugra ógæfta, er ekki að undra þótt svartsýnismönn- um tækist að kveikja ugg í brjósti sumra. En ég hef sjálfur þá trú á íslenzku þjóðinni, að henni takist að komast yfir þá stundarörðugleika, sem búið er við nú, án þess að færa þurfi fórnir af þeim lífsþægindum, sem við búum við í dag. Hitt getur skeð, að heildin verði að leggja sitt af mörkum til að aðstoða þá, sem standa í tímabundnum erfið- leikum af orsökum, sem enginn Islendingur fær ráðið við. Nú næstu daga er þess að vænta, að síldarverðið verði á- kveðið. Það er ekki nema eðli- legt, að síldarsjómenn séu orðnir órólegir eftir því að fá að vita hvaða verð eigi að gilda á sumar- síldveiðum. Án þess að vilja hætta mér um of út á þann hála ís að ræða mál, sem ég hef ekki fulla þekkingu á, vil ég þó láta í ljósi þá skoðun mína, að of mik- ill flýtir á verðákvörðun nú, gæti orðið sjómönnum til tjóns, þegar þess er gætt, að það er álit margra, sem gleggst hafa vit á, að verð síldarafurða hafi þeg- ar náð lágmarki og megi jafn- Sverrir Guðvarðsson. vel sjá merki lítilsháttar breyt- ingar upp á við. Oft hefur verið látið að því liggja, að þær tölu- legu upplýsingar, sem lagðar eru til grundvallar síldarverðinu væru ekki svo réttar sem skyldi, því ber að fagna þeim áfanga, sem sjómannasamtökin hafa náð, er þau fengu sinn eigin fulltrúa í stjórn Síldarverksmiðja ríkis- ins, en lög þar um voru samþykkt á síðasta alþingi. Þessi fulltrúi sjómannasamtakanna mun eiga þess kost að fylgjast með rekstri og uppgjöri verksmiðjanna. Er þess að vænta, að starf þess, sem í þetta hefur verið skipaður, eigi eftir að gefa síldveiðisjómönnum þann ávöxt, er þeir vænta sér þar af. Ég vil þó taka fram, að þrátt fyrir þá gagnrýni, sem oft á tíðum hefur komið fram á stjórn þessa fyrirtækis, muni sannleikurinn vera sá, að reikn- ingar Síldarverksm. Ríkisins eru eitt af því fáa, sem fulltrúar sjó- manna meta og virða sem gögn, er þeim sjálfum kemur að haldi þegar deilt er um síldarverð. VÍKINGUR 118

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.