Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1967, Qupperneq 12

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1967, Qupperneq 12
EKIÐ UM Reykjavíkurhöfn Eftir Guðfinn Þorbjörnsson Gamli Magni man áður sinn fífil fegri. Annar áfangi. 2. grein. Hagræðing í höfninni. Það gengur illa að komast inn fyrir Ingólfsgarð frá gömlu höfn- inni, enda líður svo langur tími milli ferða, að eitthvað er að ske í gömlu höfninni milli ferða. Nú er kominn hér nýr hús- bóndi (var það reyndar í síðustu ferð). Við bjóðum hann velkom- inn í starfið og óskum honum allra heilla. Ekki er hægt að segja, að sjáanleg séu merki þess, að þessi breyting valdi neinum aldahvörf- um í athafnalífi eða mannvirkja- gerð hafnarinnar, enda erfitt verk að breyta stefnu, ef skipið hefur verið sett fast og stefnan ákveðin langt fram í tímann. Landvinningum hefur verið haldið áfram, og er nú öll strand- lengjan frá Eiði til Vatnagarða í uppbyggingu og með stuttum eyðum út undir miðjan Gufunes- höfða, þ.e. Elliðaárósar og Graf- arvogur. Ekki verður séð að breyta eigi að nokkru vinnuaðferðum við þessar jarðvegatilfæringar. Þar »------------------------------» öllum sviðum og taka sem allra fyrst við því hlutverki, sem því mun hafa verið ætlað í byrjun, og verða stórt, vandað vikurit, vin- sælt af sífjölgandi lesendum, og ég veit, að það hefur öll skilyrði til þess að ná því marki, ef hvergi er slakað á ólinni. Reykjavík, 7. maí 1967. Guðfinnur Þorbjörnsson. koma ekki önnur tæki til greina en bílar og aftur bílar. Mikið mega vörubílstjórar þakka sínum brautryðjendum fyrir það afrek, sem þeir hafa unnið, þar sem þeir bókstaflega virðast ráða allri tilhögun við höfnina (við tölum hér aðeins um höfnina), allt virðist vera miðað við að koma að sem flestum bílum við livaða verk sem er án tillits til hagkvæmni. Smávægilegar breytingar hafa þó orðið með gamlaMagna. Hann hefur verið dreginn í Vestur- höfnina, en gamla grafvélin hef- ur fengið heiðurssætið við Gróf- arbryggju. Ferðamenn og aðrir heiðursmenn, sem heimsækja borgina sjóleiðis og er skipaðupp á gömlu Geirsbryggju, sjá nú ekki lengur gamla Magna með timburuppslætti fyrir alla glugga, heldur æpandi tjöru grafvélar- innar. Ég hafði vonað, að Magni sálugi yrði leystur af með snyrti- legri flotbryggju og fengi verð- ugri útför en að vera dreginn með bundið fyrir augu og lagt á einhverjum versta stað í höfn- inni. Hvers vegna er honum ekki sökkt? Á að bíða eftir að hann sökkvi í höfninni ? Hvað á graf- vélin að liggja lengi á þessum stað? Hvað um þau margumtöl- uðu þrengsli í höfninni, þegar gamalt járnrusl er látið liggja áratugum saman við dýrustu bryggjurnar, sem mestu þrengsl- in eru við? Heyrzt hefur, að nú séu dagar kolakranans taldir og eigi hann að hverfa fljótlega. Hvað kemur í hans stað er ekki vitað, en væntanlega verða það bílar og hj ólandi dísilkranar. Ennþá virðist sú regla viðhöfð að hlaða upp veggi á görðum og kantauppfyllingum (þar sem þeir eru yfirleitt hlaðnir) með laus- um steinum og byggja svo tré- bryggjur út frá þeim. Að vísu eru stálþil notuð nokkuð á stöku stöðum í Vesturhöfninni. Enenn- þá er skáhleðslan við Slysavarna- félagshúsið — því til trausts og halds? sem torveldar mjög upp- og framsátur bj örgunarbátsins og eykur að óþörfu (?) þrengsli á þessum yfirhlaðna stað. Hvenær förum við að byggja bryggjur og önnur hafnarmann- virki eins og aðrir menn? Hvenær lærist okkar hafnar- sérfræðingum að hagnýta flóð og fjöru eins og aðrar þjóðir, sem hafa svipuð skilyrði? Reykjavíkurhöfn hefur þósem betur fer ekki farið inn á stein- kerin, sem mikið hafa verið not- uð víðs vegar um landið, víðast hvar með hörmulegum árangri og miklum kostnaði. Við megum þakka guði og okkar ágætu hafn- arstjórn fyrir það. Næst byrjum við við Ingólfs- garð og höldum inn Skúlatún eða hina götuna fyrir neðan. Vænt- anlega verður sú gatan ennþá ut- ar, ekki orðin fær þá. G. Þorbjörnsson. VÍKINGUR 124

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.